Leikarinn Þórir Sæmundsson hefur verið bendlaður við að vera Eva Luna á Twitter, þar sem viðkomandi viðraði gjarnan óvinsælar eða umdeildar skoðanir.
Þórir hins vegar harðneitar því að halda úti þessum aðgangi, Eva Luna, á Twitter.
„Heyrði það að það væri brjálað fólk á twitter að vera brjálað af því það heldur að ég sé einhver er nafnlaus account þar. Eitthvað Eva Lúna dæmi. Ég vissi ekki hvað maðurinn frá Mannlífi sem hringdi í mig gær var að tala um, því það er orðið nokkuð síðan ég var á þeim eitraða vettvangi sem twitter er, en vissulega lék ég í Evu Lunu í Borgarleikhúsinu um 1994 að ég held.
Svo á ég að hata Píetasamtökin undir þessu nafni eða eitthvað svoleiðis. Ég hef ekki séð eða lesið það sem stendur á þessum reikningi og ég nenni ekki að kynna mér það, en ég skal fullyrða hér að það er ekki ég sem stend á bakvið þetta Evu Lunu dæmi.“































Athugasemdir