Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tvær sögur af Þóri Sæmundssyni: „Hann vissi allan tímann að hann var að tala við barn“

Þórir Sæmundsson. Mynd/skjáskot RÚV
Þórir Sæmunds­son. Mynd/skjá­skot RÚV

„Ég var 17 ára þegar hann byrjaði að senda óviðeigandi skilaboð á Facebook,“ segir í frásögn ungrar konu sem lýsir þar reynslu sinni af samskiptum við Þóri Sæmundsson, sem kom fram í viðtali í frétta­skýringa­þættinum Kveik í gær. Mannlíf fékk söguna senda og er hún birt með góðfús­legu leyfi konunnar.

Þær frásagnir sem hér á eftir fara eru einhliða og því birtar með fyrirvara. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í Þóri Sæmundsson við vinnslu fréttarinnar.

Konan segir frá því hvernig þau Þórir hafi á þessum tíma leikið saman í sýningu. Þar var hann í aðal­hlutverki en hún tilheyrði barnahópi í leik­ritinu og var, eins og áður sagði, enn barnung þegar samskipti þeirra hófust.

Hún segir frá því hvernig hún hafi seinna meir hitt hann á bar og farið heim með honum, þá orðin 18 ára gömul. Þau hafi í fram­haldinu sofið saman.

„Þar sagði hann meðal annars að ég væri svo ung og saklaus.“

Hún lýsir því hvernig hann hafi seinna falast eftir því við hana og aðra stúlku, þá 17 ára, að þær kæmu heim með honum og þau færu í trekant (threesome). Hann hafi reynt að selja hugmyndina með því að segja stelpunum að hann ætti mjög mikið af grasi.

Stuttu seinna hafi hún og tvær vinkonur hennar, þær allar á aldrinum 17-18 ára, átt í Snapchat-samskiptum við Þóri, þar sem hún segir hann ýmist hafa sent myndir af typpinu á sér eða beðið þær um að koma til sín í kynlífs­orgíu (foursome).

„Á þessum tíma var ég mjög ung og leit upp til eldri og reyndari manns sem naut virðingar í leikhúsi og sjónvarpi og var upp með mér að fá athygli frá honum og að hann vildi sofa hjá mér. En þegar ég lít til baka núna finnst mér þetta allt mjög ógeðslegt og að hugsa til þess að ég hafi verið rétt skriðin yfir 17 ára aldur og varla komin með brjóst eða búin með kynþroskann.“

„Einnig finnst mér vont að hugsa til stöðunnar sem ég var í gagnvart honum sérstak­lega eftir þetta þar sem hann lék aðal­hlutverk í leik­ritinu en ég var partur af barnahóp og hafði því ekki jafn mikið vægi í stóra samhenginu fyrir utan að vera töluvert yngri.“

Sagan var í fyrsta sinn birt í lokuðum Facebook-hópi árið 2017. Þá sagðist unga konan enn vera að átta sig á því að þetta hafi ekki verið í lagi, þótt hún hafi viljað sofa hjá honum á sínum tíma. Hún hafi hinsvegar ákveðið að birta sína sögu eftir að hafa séð umfjöllun fjölmiðla um mál Þóris og uppsögn hans frá Þjóð­leikhúsinu á sínum tíma.

„Við getum ekki kennt óskilgreindum aldri um þennan „klaufa­skap“ hjá honum, í mínu tilfelli vissi hann allan tímann að hann var að tala við barn,“ segir hún.

Aldrei á ævinni unnið með jafn óþægilegum leikara

Önnur frásögn sem Mannlíf hefur undir höndum, fjallar um reynslu konu af því að starfa með Þóri í leikhúsi og slæma framkomu hans við samstarfs­fólk. Þessi saga var líka birt í lokuðum hópi árið 2017 og er, eins og sú fyrri, birt með leyfi viðkomandi.

„Flott að hann sé að leita sér hjálpar og að vinna í sínum málum, en aldrei á ævinni hef ég unnið með jafn óþægilegum leikara. Sem betur fer fékk ég ekki typpamynd, en framkoman, skíturinn, hrokinn og viðbjóðurinn sem við fengum þegar hann mætti inn í smink var gjör­samlega óbærilegur.

Held að hver einasta stelpa sem ég þekki eigi einhverja skítasögu af honum. Mín er sú að hann ætlaði að ganga í skrokk á mér í partýi einu sinni eftir að hann var búinn að grýta bjórnum sínum í gólfið, þar sem ég var búin að drulla yfir hann fyrir að haga sér við stelpurnar eins og þær væru einhver bráð sem hann ætlaði að komast yfir.

Eftir að hann kallaði sjálfan sig femínista, bað hann vinsamlegast að kalla sig það aldrei aftur þar sem konur væru bara leikföng í hans augum, já eða þær sem ættu að þjónusta hann. Þá var það náttúru­lega túlkað að ég væri að kalla hann nauðgara.

Súrrelískasta móment lífs míns. Batnandi mönnum er best að lifa, en sumum er því miður ekki viðbjargandi. Hér er ein af mínum sögum, out in the open. Þegjum ekki lengur yfir svona yfirgangsseggum sem kunna ekki að haga sér.“

Þórir Sæmunds­son í Kveik. Mynd/skjá­skot RÚV

Sakaður um að senda barnungum stúlkum nektarmyndir

Frétta­skýringa­þátturinn Kveikur, sem var á dagskrá RÚV í gærkvöldi, virðist ekki hafa farið framhjá mörgum og hefur umræðan í kjölfarið verið hávær.

Í þættinum lýsti Þórir Sæmundsson vonlausri stöðu sinni fjórum árum eftir að hafa verið sagt upp í Þjóð­leikhúsinu í kjölfar þess að kynferðisleg mynda­sending hans komst í hámæli. Hann sé til dæmis búinn að vera meira eða minna atvinnu­laus allan þennan tíma.

Þórir hefur verið sakaður um að hafa sent fimmtán ára stúlkum mynd af kynfærum sínum í gegnum samskipta­miðilinn Snapchat. Í Kveik í gærkvöldi sagðist Þórir ekki hafa vitað að um væri að ræða einstaklinga undir lögaldri. Hann sagði að stúlkurnar hefðu tjáð honum að þær væru átján ára. Eftir að hafa fengið myndir af kynfærum hans segir hann þær hafa sagt að þær hafi „náð honum“.

Hann gekkst í þættinum við því að hafa sofið hjá mörgum konum og oft hagað sér ósæmilega. Hann vildi þó ekki kannast við að hafa áreitt eða átt í kynferðis­legum samskiptum við stúlkur undir lögaldri. Ekki nema þetta eina skipti þar sem hann var gabbaður, að eigin sögn.

Þórir lýsti því að hann hefði verið í neyslu á tímabili og afar erfiður í samskiptum. Hann sagði það meðal annars víst að hann hefði gengið of nærri samstarfs­konum sínum í Borgar­leikhúsinu þegar hann lék í söng­leiknum Mary Poppins árið 2015.

„Þarna er ég ennþá í neyslu og er svolítið ruglaður á því og er að vinna með mörgum ungum konum,“ sagði Þórir. Hann sagðist svo hafa fengið tiltal frá leik­stjóra sýningarinnar eftir að ein þeirra kvartaði yfir skila­boðum frá honum.

Þórir gekkst við því að um hefði verið að ræða óviðeigandi skilaboð, en ekki nektar­myndir.

Þóra Arnórs­dóttir sagði við Þóri í þættinum að ef hann væri að fela eitthvað eða ekki að segja satt og rétt frá myndi það tvímæla­laust koma upp eftir sýningu þáttarins. Sagði Þórir þá við hana að ef svo væri, væri það löngu komið fram í okkar litla samfélagi.

Ekki tókst að ná í Þóri Sæmundsson við gerð þessarar fréttar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Fjórar unglingsstúlkur eru í haldi í Malang, grunaðar um aðild að dauða skólastúlku.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli