Þórður Snær Júlíusson, einn fjögurra blaðamanna sem boðaðir hafa verið til yfirheyrslu hjá lögreglunni á Norðurlandi, skrifaði í dag stutta en vel meitlaða færslu á Twitter. Þar upplýsir hann Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra, um erindi lögreglunnar.
Bjarni Benediktsson olli fjaðrafoki er hann skrifaði færslu þar sem hann gagnrýnir fréttaflutning og túlkun fjölmiðla á yfirheyrslubeiðni lögreglunnar á hendur blaðamanna sem hafa undanfarin ár fjallað um málefni Samherja í fréttum sínum.
„Það er óvenjuleg upplifun að formaður flokks/ráðherra og dagblað taki sig saman og gefi í skyn að maður sé mögulega þjófur. Glæpamaður. Fjármálaráðherra til upplýsingar þá veit ég hvað mér er gefið að sök. Ég spurði. Lögregla staðfesti það í yfirlýsingu: Að skrifa fréttir.“
Sjá einnig: Færsla Bjarna Ben olli fjaðrafoki: „Siðleysa og siðblinda einkennir þig og þinn flokk“































Athugasemdir