Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Færsla Bjarna Ben olli fjaðrafoki: „Siðleysa og siðblinda einkennir þig og þinn flokk“

Færsla Bjarna Ben olli fjaðrafoki: „Siðleysa og siðblinda einkennir þig og þinn flokk“
Bjarni Bene­dikts­son.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra í Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur skrif­aði að margra mati hreint út sagt ótrú­lega færslu á Facebook í gær. Þar veltir hann þeirri spurn­ingu upp hvort fjórða valdið, fjöl­miðlar, séu yfir lög hafin og hvort lög­reglan megi ekki yfir­heyra blaða­menn eins og aðra þegna þessa lands. Við­brögðin við færsl­unni hafa verið gríð­ar­leg en sitt sýn­ist hverjum um ágæti hennar.

Þess má geta að lög­bann var sett á frétt Stund­ar­innar úr gögnum sem tengd­ust Bjarna og fengin úr Glitni árið 2017. Tíma­setn­ingin þótti grun­sam­leg en Alþing­is­kosn­ingar voru á næsta leyti. Sjálfur neit­aði Bjarni alfarið að hafa komið nálægt því að leggja lög­bann á Stundina. Lög­bannið var að lokum dæmt ólög­legt.

Í færslu Bjarna í gær talar hann um nýlegt mál þar sem lög­reglan á Norð­ur­landi boð­aði fjóra blaða­menn til yfir­heyrslu.

„Nú ber­ast fréttir af því að lög­reglan á Norð­ur­landi eystra hafi tekið mál til rann­sóknar og með sím­tali í gær boðað fjóra frétta­menn til yfir­heyrslu. Það eina sem fram er komið frá lög­regl­unni er að emb­ættið sé með brot á frið­helgi einka­lífs til rann­sóknar.

Við höfum mátt venj­ast því í frétta­flutn­ingi af lög­reglu­málum þegar almennir borg­arar eiga í hlut að fjöl­miðlar beini sjónum sínum að því hvað hinn grun­aði kunni að hafa unnið til saka. Iðulega er mikið á sig lagt til að graf­ast fyrir um það og eng­inn vafi að almenn­ingur kann vel að meta vand­aða rann­sókna­blaða­mennsku. Mál sem eru til rann­sóknar fá reglu­lega umfjöllun í frétta­tímum og fram­vindu mála er fylgt eftir frá rann­sókn til ákæru og dóms eða nið­ur­fell­ingar máls eftir atvikum.

Það verður að segj­ast eins og er að svo virð­ist sem þessi hefð­bundu vinnu­brögð og lög­mál eigi ekki við, að minnsta kosti ekki að öllu leyti, í til­viki blaða­mann­anna sem fengu sím­tal í gær.“

Þá bendir Bjarni einnig á í færsl­unni að engar fréttir hafi verið fluttar af því hvað það er sem lög­reglan kann að hafa í hönd­unum. Segir hann að þeir sem eru til rann­sóknar stjórni sjálfir umræð­unni um málið.

„Engar fréttir hafa verið fluttar af því sem mestu máli skiptir og flesta þyrstir að vita hvað lög­reglan kunni að hafa undir höndum sem gefi til­efni til rann­sóknar. Þeir sem stjórnað hafa þeirri umræðu eru þeir hinir sömu og nú eru til rann­sóknar. Það eina sem þeir hafa fram að færa hins vegar eru get­gátur um það hvað lög­reglan muni mögu­lega vilja spyrja þá um og álit þeirra á eigin get­gátum um það. Þeir segja okkur að þeim sé gefið að sök að hafa nýtt gögn til að skrifa fréttir. En hvað vita þeir svo sem um það á þessu stigi máls?“

Í næsta kafla færslu Bjarna gagn­rýnir hann Rík­is­út­varpið harð­lega.

„Rík­is­út­varpið tók málið skref­inu lengra og fékk lög­mann til að lýsa því yfir að ef málið sner­ist um það sem blaða­menn­irnir sjálfir telja, þá sé nær úti­lokað að ákæra verði gefin út og svo les maður fréttir af dómafor­dæmum um að slík mál séu von­laus frá upp­hafi. ,,Afar ólík­legt að blaða­menn­irnir fjórir verði ákærðir,“ segir í fyr­ir­sögn fréttar á ruv.is. Þetta er áður en nokkur maður veit hvaða gögn lög­reglan hefur eða hvaða spurn­inga hún leitar svörum við. Eru ein­hver for­dæmi fyrir svona vinnu­brögðum frétta­stofu?

Öll fréttin er að gefnum for­sendum þeirra sem fengu sím­tal í gær. Hefði Rík­is­út­varpið ekki mátt láta þess getið að sumir þeirra sem eru með kenn­ingar um það hvað málið snýst hafa starfað á Rík­is­út­varp­inu. Hefði það ekki sýnt lág­marks við­leitni til að gæta hlut­leysis í máli sem virð­ist á algjöru byrj­un­ar­stigi?“

Þvínæst skýtur fjár­mála­ráð­herra á Blaða­manna­fé­lag Íslands og spyr spurn­inga um lögvarðan rétt fjöl­miðla­manna.

„Formaður Blaða­manna­fé­lags­ins hefur kom­ist að því að máið sé alvar­legt og óskilj­an­legt. Gott ef ég heyrði ekki að það væri búið að senda bréf til útlanda til að vekja athygli á þessu alvar­lega máli.

Ég get ekki varist því að spyrja nokk­urra spurn­inga þegar maður les, heyrir og sér hverja frétt­ina á eftir annarri vegna sím­tals­ins frá lög­regl­unni í gær.Eru fjöl­miðla­menn of góðir til að mæta og svara spurn­ingum lög­reglu eins og almennir borg­arar? Hvernig getur það talist alvar­legt mál að lög­regla óski eftir því að þeir gefi skýrslu?

Ef fjöl­miðla­menn­irnir eiga þann lögvarða rétt sem þeir gefa sér að eigi við í þessu máli, að svara ekki spurn­ingum lög­regl­unnar, vilja þeir þá ekki bara gera það, neita að svara. Er það mjög íþyngj­andi? Meira íþyngj­andi en almennir borg­arar þurfa að þola í málum sem eru til rann­sóknar lög­reglu?“

Að lokum spyr Bjarni hvort ekki sé hægt að gera þá kröfu að allir séu jafnir fyrir fjöl­miðl­unum.

„Eru ekki öll for­dæmin sem rakin eru í fjöl­miðlum og frétta­tíma Rík­is­út­varps­ins einmitt til sönn­unar um að við búum í rétt­ar­ríki og að þeir sem telja sig hafa hreinan skjöld geta mætt óhræddir til lög­regl­unnar og treyst því að rétt­ar­kerfið á Íslandi virki.Má ekki bara hafa það í huga að sum mál eru felld niður. Önnur fara í ákæru. Í sumum er sak­fellt, í öðrum sýknað. Þarf öll þessi stór­yrði áður en lög­reglan spyr fyrstu spurn­ing­ar­innar undir rann­sókn máls­ins?Við gerum öll kröfu til þess að hér á landi séu allir jafnir fyrir lög­unum.Má gera þá kröfu að allir séu jafnir fyrir fjöl­miðl­unum líka?“

Færslan hefur vakið gríð­ar­lega athygli enda ekki á hverjum degi sem ráð­herra í rík­is­stjórn tjáir sig með þessum hætti á opin­berum vett­vangi um mál af þessu toga.

Færsl­unni hefur verið deilt 66 sinnum þegar frétt þessi er skrifuð, 197 hafa skrifað athuga­semdir við hana og 913 hafa líkað við hana. Í athuga­semdum kennir margra grasa.

Einar Stein­gríms­son stærð­fræð­ingur og þjóð­fé­lags­rýnir svarar Bjarna:
„Nei, þetta þykir alveg sjálf­sagt mál, Bjarni. Til dæmis í Rúss­landi. Og Tyrk­landi:

„Eru fjöl­miðla­menn of góðir til að mæta og svara spurn­ingum lög­reglu eins og almennir borg­arar? Hvernig getur það talist alvar­legt mál að lög­regla óski eftir því að þeir gefi skýrslu?“,“.

Árni Finnsson nátt­úru­vernd­ar­fröm­uður spyr Bjarna til baka.
„„Má gera þá kröfu að allir séu jafnir fyrir fjöl­miðl­unum líka?“ spyr for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Vísar for­mað­ur­inn þá til þess að hallað hafi á skæru­liða­deild Samherja í umfjöllun fjöl­miðla?“

Trausti nokkur skrifar athuga­semd sem sló ræki­lega í gegn:

„Rétt­ar­ríki seg­irðu? Hvers vegna er þá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum ekki refsað fyrir það lög­brot að fara yfir leyfi­lega hlut­deild í kvóta­kerf­inu? Þeim er sagt að þau hafi 3 ár til að snúa þessu við. Þetta er lög­leysa og ringul­reið í lög­gæslu­málum. Með lögum skal land byggja, en þegar kemur að stór­felldum efna­hags­brotum og sam­keppn­is­brotum eru við­ur­lögin nán­ast engin undir for­ystu Sam­herj­a­flokks­ins. Siðleysa og sið­blinda ein­kennir þig og þinn flokk. Og nú skal fara að gaslýsa þjóð­ina í svona 1000 skiptið eins og ykkur einum er lagið.“

Björn Leví Pírati leið­rétti Trausta að bragði:

„6 ár, ekki 3. En ann­ars þum­all.“

Heimir nokkur spyr Bjarna hvort hann sé orð­inn tals­maður ákveð­ins fyr­ir­tækis á land­inu:

„Ert þú núna orð­inn tals­maður eins ákveð­ins fyr­ir­tækis í land­inu?

Fárán­legt að ráð­herra skuli vera að vasast í máli sem þessu. Augljóst hver tengslin eru hér.Og merki­legt að þú biðjir aðra um að svara spurn­ingum þegar þú gerir það ekki sjálfur.

Ég sé ekki betur en þú sért með þessu að gera lítið úr blaða­manna­stétt­inni sem er eini vett­vangur almenn­ings til að veit þér og þínum aðhald.“

Ágúst vill bendla Sjálf­stæð­is­flokk­inn við þetta mál:

„Hver er ástæðan að Fjár­mála­ráð­herra tjáir sig núna á þennan hátt,getur verið að ákveð­inn stjórn­mála­flokkur standi á bak­við þetta.Nú kemur hver flokks­gæð­ing­ur­inn á fætur öðrum og reynir að rétt­læta árásir á lýð­ræðið og frjálsa fjöl­miðlun.Þetta minnir á ríki þar sem reynt er að þagga sann­leik­ann sem kemur sér illa fyrir valda­stétt­ina.“

Ekki eru allir þó ósam­mála Bjarna en hann á sér víða aðdá­endur enda í stærsta flokki lands­ins.

Óðinn R. Valdi­mars­son, lög­maður er einn af þeim sem tekur undir með Bjarna:

„Nákvæm­lega. Svo gleym­ist það (vilj­andi eða af sökum fákunn­áttu) að rétt­ar­staða sak­born­ings er ákveðin gæði þegar það kemur að rann­sóknum saka­mála. Sak­born­ingar geta neitað að tjá sig og mega segja ósatt, ef þeim sýn­ist svo, sér að refsi­lausu. Vitni þurfa að segja satt og þeim er hægt að refsa, segi þau ósatt.“

Hjörtur nokkur svarar Óðni með góðri spurn­ingu:

„þannig að ef Páley, sem er inn­múruð í sjálf­stæð­is­í­þrótta­fé­laga­flokk­inn og ráðin af tengsla­neti Samherja, vildi í raun kom­ast að sann­leik­anum þá hefðu þau verið boðuð sem vitni… Meikar þessi aðgerð bara sens ef Bjarni Rað-gjald­þrot Bene­dikts­son mælir svo um?“

Pétur svarar svo Hyrti: „Ómar er ekki beitt­asti lög­fræð­ing­ur­inn í flokknum, hlutir eins og að meika sens eru ekki alltaf efst á borði.“

María er líka á sama máli og Bjarni. „ein­stak­lega dap­ur­legt að fylgj­ast með RUV sem er með þetta til umfjöll­unar í fjölda þátta í dag og Þórður Snær fékk sér­stakan þátt fyrir sig í morg­un­þætt­inum á rás 1 til að lýsa furðu sinni á að lög­reglan skuli voga sér að spyrja hann nokk­urra spurn­inga, hlut­drægni RUV er svo aug­ljós að það er ekki einu sinni reynt að fela hana á nokkurn hátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina