Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum – Hann var í rauninni að segja mér að þetta væri búið

Lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum – Hann var í rauninni að segja mér að þetta væri búið
Steindór

Daníel Örn Sig­urðs­son, sagði sögu sína í helg­ar­við­tali Mannlífs. Hann talar um dauð­ann og sorg­ina og um hálf­bróðir sinn sem framdi sjálfs­morð.

Lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum hjá Daníel enda rósir almennt með þyrna. Það sama má segja um einn bróður hans, Steindór, sem var þremur árum yngri. Daníel er elstur bræðr­anna. Þeir voru fjórir í allt. Nú eru þeir þrír á lífi. Þeir Steindór voru hálf­bræður. Sammæðra. Allir eru hálf­bræður Daníels en þeir tveir yngstu eru þó albræður.

„Steindór dó 13. júní árið 2018. Hann var búinn að vera í gríð­ar­lega mik­illi fíkni­efna­neyslu alveg frá því hann var 13 ára. Hann fór sínar eigin leiðir. Hann var rosa­lega ævin­týra­gjarn en hann var á sama tíma ofsa­lega hlé­drægur. Rosalega skrýt­inn per­sónu­leiki. En hann var flug­gáf­aður. Rosalega gáf­aður strákur. Þetta var svo dýrt dauðs­fall af því að hann var svo gáf­aður. Og hann var svo klár. Hann var svo áhrifa­gjarn. Rosalega áhrifa­gjarn. Alveg svaka­lega. Og átti mjög auð­velt með að verða bara undir áhrifum. Hann leidd­ist fljótt út í við­ur­kenn­ingu ein­hvers staðar ann­ars staðar.“

Steindór Smári

13 ára í neyslu.

„Þá var hann byrj­aður að reykja hass en hann byrj­aði að neyta kóka­íns þegar hann var 16 ára og hann var byrj­aður að sprauta sig 19 ára svo sem með lækna­dópi, kókaín og amfetamíni. Hann var orð­inn svo sár­þjáður sprautu­fík­ill að það var orðið erfitt fyrir hann að finna æð. Hann spraut­aði sig þangað til hann lést 32 ára.

Ég fékk að vita rosa­lega mikið eftir dauðs­fall hans sem var ofboðs­lega sárt af því að hann sagði öðrum að hann lang­aði til að verða eins og stóri bróðir sinn. Eins og ég. Þetta vissi ég ekki vegna þess að hann gaf mér ekki tæki­færi á því að umgang­ast sig vegna þess að hann var ekki í sama heimi og ég. Hann gaf okkur ekki tæki­færi á að kynn­ast almenni­lega til þess að geta sagt að hann þyrfti hjálp. Hann lok­aði sig af af því að hann var svo greindur. Hann vissi að það var ekki hægt að vera innan um okkur þegar hann var í neyslu þannig að hann lok­aði okkur af.“

Daníel talar um nýárs­dag árið 2018. „Hann kom til mín grát­andi og skít­hræddur með sitt eigið líf af því að vinir hans voru að hríð­falla. Detta niður dauðir. Hann sagði að hann væri vanur að sprauta sig með því sama og þeir og vissi hvað hann þyldi en að þeir væru að deyja og það væri ein­hver að útrýma þeim. Hann laug aldrei að mér. Hann hélt að ein­hver væri að útrýma þeim af því að þeir vissu eitt­hvað sem þeir máttu ekki vita. Það var hans kenn­ing.“

Hann var í raun­inni að segja mér að þetta væri búið.

Daníel segir að þeir Steindór hafi talað saman einni og hálfri viku áður en Steindór dó. „Ég var að skutla honum til mömmu viku áður en hann dó og þá sagði hann mér hvað hann væri kom­inn í mikið þrot. Hann sagð­ist ekki hafa meiri orku í þetta. Hann var í raun­inni að segja mér að þetta væri búið. Ég fatt­aði ekki fyrr en eftir á að hann var að kalla á hjálp. Hann var að segja mér að hann væri að fara að hengja sig. Svo gerði hann það einni og hálfri viku síðar.“

„Drullaðu þér út, hel­vítis aum­ing­inn þinn,“ sagði ég.

Daníel segir að Steindór hafi beðið móður þeirra um að fá að vera hjá henni um helg­ina þar sem hann væri að bíða eftir félags­legri íbúð og fékk hann leyfi svo lengi sem hann væri edrú. Daníel bað móður þeirra um að passa dóttur sína á laug­ar­deg­inum. „Svo þegar ég kom að sækja hana á sunnu­deg­inum þá sagði mamma að Steindór hefði farið út og komið aftur aðfara­nótt sunnu­dags­ins dóp­aður. Ég var svo reiður þar sem stelpan mín var þarna að ég kall­aði hann „hel­vítis drullu­sokk“ og gjör­sam­lega spark­aði honum út og henti í hann 2000 kalli til að kom­ast með rútu í bæinn. „Drullaðu þér út, hel­vítis aum­ing­inn þinn,“ sagði ég og skellti hurð­inni. Ég sá hann ekki eftir þetta. Viku seinna hengdi hann sig.“

Daníel segir að Steindór hafi verið lif­andi þegar hann fannst. „Það var hnoðað í tæpa tvo tíma. Það bar árangur en hann fékk púls en eftir fjóra daga í önd­un­ar­vél var ljóst hver nið­ur­staðan yrði svo hann var settur í líkn­andi með­ferð og lést degi síðar.“

Daníel á erfitt með að halda tár­unum í skefjum þegar hann talar um þetta. Þessi síð­ustu orð sem hann sagði við bróður sinn áður en hann lést valda honum mik­illi van­líðan.

Þetta er svo mikil van­líðan að það er ógeðs­legt.

„Þetta er hræði­legt. Það er hrika­legt að hafa skilið svona. Þetta er alveg skelfi­legt. Þetta er svo skelfi­legt,“ segir hann með áherslu, „að þurfa að lifa með þetta. Þetta er svo mikil van­líðan að það er ógeðs­legt.“

Þetta nær engri átt

„Það er kannski líka rétt að nefna það að ástæðan fyrir því að Steindór lést var ekki af því að honum leið illa og líf hans var ömur­legt og allt það; hann var svo ósáttur við það hver hann var. Hann vildi ekki vera þessi maður sem var í fíkni­efnum. Ég fékk að vita það eftir á hjá fólki sem var með honum á geð­deild að hann þráði ekk­ert heitar en að vera eins og bróðir sinn eins og ég hef sagt. Eins og ég. Eiga fjöl­skyldu og hús. Hann þráði bara eðli­legt líf. Hann vildi ekk­ert húllumæ. Hann vildi ekki þessa þrá­hyggju. Hann gat fengið hjálp við fíkn og hjálp við geð­veik­inni en ekki á sama tíma. Því miður.“

Var Steindór greindur með geð­sjúk­dóm?

„Nei. En þetta var orðin hálf­gerð geð­veiki þegar hann var búinn að búa á göt­unni frá því hann var krakki. Hann var kom­inn á göt­una 21 árs og þá voru bara þrjú ár síðan hann varð lög­ráða. Þetta er byrði, sér­stak­lega fyrir svona óþroskaða ein­stak­linga.

Það þarf að stofna ein­hvers konar sam­tök.

Daníel segir að Steindór hafi stundum farið inn á geð­deild en að honum hafi verið hent út af því að hann var ekki í sjálf­skaða­hættu í augna­blik­inu, af því að hann var ekki að fara að drepa sig, af því að hann var ekki í maníu eða af því að hann var ekki öskr­andi eða geð­veikur. „Hann fékk ekki þá hjálp sem hann var að biðja um. Hann fór sjálf­vilj­ugur inn á geð­deild til þess að fá hjálp en af því að hann var ekki í „critical“ ástandi þá; „sorrí, út með þig, komdu þegar ástandið verður „critical“.“

En ef það var orðið of seint? Hvers lags… Hvers eigum við aðstand­endur að gjalda þegar við getum ekki treyst á okkar eigin kerfi? Hvað eigum við þá að gera? Við verðum að geta treyst á okkar kerfi. Það er svo mikið í húfi. Á bak við hvern fíkil er fjöl­skylda sem situr eftir með alla sorg­ina. Þetta er bara galið og nær engri átt. Þetta getur ekki verið svona. Þetta verður að breyt­ast. Þetta er ekki hægt. Það þarf að stofna ein­hvers konar sam­tök; það þarf að búa til ein­hvers konar konsept þannig að það sé hlustað. Það þarf eitt­hvað að ger­ast þangað til að þeir sem sjá um pen­inga­völdin verða komnir upp að vegg og dæla pen­ing í þetta. Við verðum að fara að skilja hvað þetta er mik­il­vægt.

Þegar ein­stak­lingur fer þá eru margir skildir eftir í sárum. Margir fjöl­skyldu­með­limir þurfa kannski að taka sér frí í eina til tvær vikur og þurfa áfalla­hjálp eða á sál­fræð­ingi að halda. Þetta er svo mik­ill kostn­aður fyrir svo ofboðs­lega marga bara af því að heil­brigð­is­kerfið okkar er bara á rass­gat­inu. Þetta er stropað. Þetta nær engri átt. Sorrí. Ég er bara svo reiður.“

Kross í bandi hangir á vegg á heim­ili Daníels. Steindór átti þennan kross og hafði hann oft um háls­inn.

Jú, það er þessi sorg.

Hann var bara einn.

„Þetta var gríð­ar­lega erfitt. Ég missti helm­ing­inn af sjálfum mér þegar Steindór dó. Ég á tvo aðra hálf­bræður sem eiga aðra feður en ég hef ekki náð að tengj­ast þeim nógu vel af því að ég var svo lítið heima; þeir fædd­ust 1995 og 1997 og á þeim tíma var ég á svo miklu flakki út í sveit og hingað og þangað og bjó hjá ömmu og svona. Þannig að ég kynnt­ist þeim lítið en ég ólst svo­lítið upp með Stein­dóri. Hann var svo­lítið hluti af mér. Að missa Steindór er það erf­ið­asta sem ég hef upp­lifað og gengið í gegnum vegna þess í fyrsta lagi hvernig við skildum. Og að vita það eftir á hversu mikið hann stóð einn í þessu. Ég vissi það ekki en ég hélt hann væri með ein­hverja vini þarna úti og væri með þeim að gera eitt­hvað. Hann var bara einn. Stóð bara einn. Og á jólum og á afmæli sínu.“

„Hann var ein­hvern veg­inn einn. Mamma varð aldrei söm eftir að hann dó. Hún lam­að­ist af gráti. Hún grét svo sárt þegar hann dó. Ég tók þetta svo­lítið út á vinn­unni; ég fór að vinna mikið eftir þetta sem kom í bakið á mér en tveimur til þremur mán­uðum síðar grét ég í mánuð. Ég grét haf­sjó. Ég var eins og pínu­lítið barn. Ég syrgði hann svo svaka­lega. Ég samdi ljóð til hans. Ég vakn­aði klukkan sjö um morg­un­inn dag­inn sem jarð­ar­förin var með þetta í hausnum og skrif­aði niður. Ég lagð­ist síðan niður og sofn­aði aftur. Síðustu orðin hafa svo­lítið gildi vegna þess að ég enda ljóðið á „mér var aldrei sama“. Ég man ekki einu sinni eftir því þegar ég las ljóðið upp í jarð­ar­för­inni. Fólk sagði að það hefði reglu­lega lekið tár eins og í takti. Ég man ekki eftir því. Það skilur eng­inn hvernig ég gat staðið í pont­unni en það var ein­hver styrkur í mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina