Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Deilur innan meirihlutans í Hafnarfirði: „Málið ekki fengið efnislega meðferð í Fjölskylduráði“

Deilur innan meirihlutans í Hafnarfirði: „Málið ekki fengið efnislega meðferð í Fjölskylduráði“

Það er hiti í Hafn­ar­firði; nán­ast við suðu­mark. Og hér er um að ræða klofn­ing í meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Óháðra.

Það er stutt í sveita­stjórn­ar­kosn­ingar, en þær fara fram þann 14. maí næst­kom­andi.

Í Hafn­ar­firði hefur átt sér stað við­snún­ingur; sigur Guð­mundar Árna Stef­áns­sonar í próf­kjör­inu hefur nán­ast end­ur­nýjað Sam­fylk­ing­una í Hafn­ar­firði. Og kann­anir sem flokk­arnir í Hafn­ar­firði hafa sjálfir látið gera sýna fram á mikla fylg­is­aukn­ingu Sam­fylk­ing­ar­innar og mikið fylg­is­hrun hjá Sjálf­stæð­is­flokknum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gæti hangið inni með sinn eina mann.

Því er komin ansi hressi­leg tauga­spenna í röðum Sjálf­stæð­is­manna og Fram­sókn­ar­manna í Hafn­ar­firði; og það virð­ist sjást vel þegar skoðað er mál sem snýst um akst­urs­þjón­ustu Hópbíla og það tekju­fall sem fyr­ir­tækið telur sig hafa orðið fyrir vegna Covid 19. Þar eru Sjálf­stæð­is­menn ekki hrifnir af því sem Ágúst Bjarni Garð­ars­son (líka alþing­is­maður sem þáði eða þiggur jafn­vel enn tvö­föld laun, frá bæði ríki og bæ þrátt fyrir lof­orð um annað) lagði fram um málið –  en í fund­ar­gerð um það má lesa eft­ir­far­andi:

2011573 – Samn­ingar um sér­hæfða akst­urs­þjónstu og skóla- og frí­stunda­akstur, tekju­fall Samn­ingar um sér­hæfða akst­urs­þjón­ustu, tekju­fall. Fulltrúi Fram­sóknar og óháðra bókar eft­ir­far­andi. Fulltrúi Fram­sóknar og óháðra tekur jákvætt í erindi Hópbíla um tekju­falls­styrk. Á þessum Covid tímum hafa Hópbílar haldið úti góðri og sam­felldri þjón­ustu. Hópbílar hafa, eins og svo mörg önnur fyr­ir­tæki, orðið fyrir tekju­falli vegna far­ald­urs­ins. Mik­il­vægt er að bregð­ast við, eins og víða hefur verið gert, til að tryggja áfram­hald­andi þjón­ustu fyrir þennan við­kvæma hóp.

Fulltrúi Fram­sókn­ar­flokks­ins í bæj­ar­stjórn er Ágúst Bjarni Garð­ars­son, sem einnig er þing­maður fyrir sama flokk, og hefur þegið tvö­föld laun – frá Hafn­ar­fjarð­arbæ fyrir setu í bæj­ar­stjórn og fjölda nefnda sem og frá Alþingi, eins og sjá má hér.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru ekki sáttir

Helga Ing­ólfs­dóttir er einn af fimm bæj­ar­full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og hún er ekki sátt við afgreiðslu máls­ins. Segir meðal ann­ars:

„Ekki hafa feng­ist skýr­ingar frá for­manni bæj­ar­ráðs á for­sendum sem liggja að baki mis­mun­andi pró­sentum vegna við­bót­ar­greiðslna né nákvæmar fjár­hæðir á þeim greiðslum sem hafa verið sam­þykktar sem eru um 140 milj­ónir vegna árs­ins 2020, 2021 og 2022. Ekki liggja fyrir við­aukar fyrir hluta af þessum greiðslum. Afgreiðslur í bæj­ar­ráði varð­andi tekju­fall­styrki til verk­sala hafa verið án aðkomu eða sam­ráðs við Fjöl­skyldu­ráð sem fer með for­ræði á samn­ingi um Sérhæfða akst­urs­þjón­ustu í Hafn­ar­firði í umboði bæj­ar­stjórnar.“

Sam­ing­ur­inn sem um ræðir var gerður í mik­illi sam­vinnu við Ráð­gjaf­ar­ráð fatl­aðs fólks í Hafn­ar­firði sem áttu tvo full­trúa í starfs­hópi Fjöl­skyldu­ráðs sem und­ir­bjó útboð vegna samn­ings­ins og sem yfir­fór þjón­ustu­þörf og skoð­aði leiðir að því mark­miði að gera akst­urs­þjón­ust­una skil­virk­ari og hag­kvæm­ari en verið hafði í sam­vinnu­verk­efni um þjón­ust­una frá árinu 2015 undir yfir­um­sjón Strætó BS. Með starfs­hópnum starf­aði Inn­kaupa­stjóri Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar og verk­fræð­ingur. Með því að skil­greina þarfir og skipu­lag þjón­ust­unnar náð­ist fram mik­il­væg hag­ræð­ing í núver­andi sam­ingi án þess að slakað væri á kröfum um gæði og það ásamt því að heima­stöð verk­sala er í Hafn­ar­firði er meg­in­á­stæða þess að hag­stæður sam­ingur var gerður milli aðila en jafn­framt sú mikla reynsla sem verk­sali býr yfir. Við­bót­ar­greiðslur vegna við­mið­un­ar­fjölda ferða eiga ekki við miðað við samn­ings­for­sendur.

Fulltrúi Sam­fylk­ing­ar­innar, Árni Rúnar Þor­valds­son bók­aði:

„Und­ir­rit­aður tekur jákvætt í erindið enda mik­il­vægt að tryggja áfram­hald­andi rekstur þess­arar mik­il­vægu þjón­ustu. Fulltrúi Sam­fylk­ing­ar­innar harmar hins vegar þau vinnu­brögð meiri­hluta Fram­sóknar- og Sjálf­stæð­is­flokks að halda fjöl­skyldu­ráði frá umræðu um málið þar til nú og taka ákvarð­anir án sam­ráðs við fjöl­skyldu­ráð í máli sem heyrir undir ráðið. Meiri­hlut­inn ber því alla ábyrgð þeim vand­ræða­gangi sem nú er kom­inn upp vegna máls­ins. Fulltrúi Við­reisnar tekur undir bókun frá full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar.“

Fulltrúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins Krist­jana Ósk Jóns­dóttir bókar:

„Ég harma að málið hafi ekki fengið efn­is­lega með­ferð í Fjöl­skyldu­ráði fyrr. Og tek ekki afstöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við