Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ágúst er enn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar samhliða þingsetu: „Auðvitað finnst sumum þetta skrítið“

Ágúst er enn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar samhliða þingsetu: „Auðvitað finnst sumum þetta skrítið“
Ágúst Bjarni Garð­ars­son er bæj­ar­full­trúi fyrir Framsókn og óháða í Hafn­ar­firði og Alþing­is­maður.

Í byrjun des­em­ber 2021 sagð­ist Ágúst Bjarni Garð­ars­son muna stíga úr stóli sínum í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar „á næstu vikum“ enda þá orð­inn þing­maður Alþingis. Nú, rúm­lega þremur mán­uðum síðar situr Ágúst enn í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar á fullum launum sem slíkur.

Ágúst Bjarni Garð­ars­son starfar bæði á Alþingi Íslend­inga fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn og í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar fyrir Framsókn og óháða en Þann 6. des­em­ber 2021 sagði hann í sam­tali við Mannlíf að hann stefndi á að hætta í bæj­ar­stjórn­inni „á næstu vikum“ en sagði hann þá að vara­maður sinn væri skóla­stjóri í stórum skóla og því snúið að láta hann taka sæti sitt vegna þeirra verk­efna sem hvíldi á skólum lands­ins vegna Covid far­ald­urs­ins.

„Staðan er þannig að ég er for­maður bæj­ar­ráðs og við erum í miðri á með fjár­hags­á­ætlun. Seinni umræða er 8. des­em­ber. Ég mun klára þá vinnu, en stíga svo til hliðar á næstu vikum. Vara­bæj­ar­full­trúi minn er skóla­stjóri, Valdimar Víðisson, í stórum skóla og við erum að reyna finna lend­ingu á þessum málum. Ég hef þegar sagt mig frá setu í hafn­ar­stjórn og stjórn Sorpu,“ sagði Ágúst þann 6. des­em­ber í sam­tali við Mannlíf.

Fram kom í frétt­inni í fyrra að heim­ild­ar­menn Mannlífs bæru öllum saman um að bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar, Rósa Guð­bjarts­dóttir, vildi alls ekki missa Ágúst úr bæj­ar­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar og óháðra og að hún hefði lagt hart að honum að sinna báðum störfum. „Rósu finnst gott að vinna með Ágústi, og ég er ekki að segja að hún treysti ekki Valdi­mari Víð­is­syni sem tekur við af Ágústi sem odd­viti Fram­sóknar og óháðra, en það alveg óhætt að segja að Rósa er lítt spennt fyrir að starfa með nýjum manni í meiri­hlut­anum, jafn­vel þótt stutt sé til kosn­inga. Hún veit að Valdimar er treg­ari í taumi en Ágúst,“ er haft eftir einum af heim­ild­ar­mönnum Mannlífs.

Mannlíf heyrði í Ágústi í dag og spurði hann hvernig stæði á því að hann væri enn við störf í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar. „Það fer svona að líða að þessu. Ég sagði blaða­manni Mannlífs í des­em­ber það sama, vara­maður minn er skóla­stjóri og hefur bara haft í nógu af snú­ast í Covid far­aldr­inum. En það var þá og það er farið að horfa til betri vegar hvað það varðar. Þannig að það fer að líða að því að ég yfir­gefi sviðið hér.“

Blaða­maður: „Hefurðu verið að þyggja laun frá Hafn­ar­firði fyrir störf þín þar?“

Ágúst: „Já, já. Það er allt saman skráð í hags­muna­skrá Alþingis. Það er nú bara svona Björgvin að auð­vitað finnst sumum þetta skrítið en kosn­ingar eru bara með þeim hætti að við erum kosin til ákveð­inna verka af fólk­inu og svo koma þarna þing­kosn­ingar sem maður ákveður að taka þátt í.“

Blaða­maður: „Það hlýtur að vera 100% vinna að starfa á Alþingi ekki satt?“

Ágúst: „Jú, það er það.“

Blaða­maður: „Ertu þá í 200% starfi eða?“

Ágúst: „Nei, sveita­stjórn­ar­mál eru ekki 100% störf. Allir sveita­stjórn­ar­menn eru í öðrum vinnu, þeir eru kenn­arar, smiðir og hvað eina. Ég er líka ekki eini þing­mað­ur­inn sem er í þess­ari stöðu, við erum nokkur sem erum að koma úr sveita­stjórn­ar­störfum og á þing.“

Blaða­maður: „Hvenær býstu við að hætta í bæj­ar­stjórn­inni?“

Ágúst: „Ég er bara ekki alveg viss um það, hvort það sé á næsta fundi eða þar næsta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi