Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rósa lagði hart að Ágústi að hætta ekki í bæjarstjórn: „Hún veit að Valdimar er tregari í taumi“

Rósa lagði hart að Ágústi að hætta ekki í bæjarstjórn: „Hún veit að Valdimar er tregari í taumi“
Ágúst Bjarni Garð­ars­son er bæj­ar­full­trúi fyrir Framsókn og óháða í Hafn­ar­firði og Alþing­is­maður.

Ágúst Bjarni Garð­ars­son er bæj­ar­full­trúi í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar, en hann komst inn í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum fyrir hönd Fram­sókn­ar­flokks­ins og óháðra; sá eini úr því fram­boði sem hlaut kosn­ingu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mynd­aði meiri­hluta­stjórn með Ágústi, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hlaut fimm menn kjörna í áður­nefndum kosn­ingum. Meiri­hluta­stjórn þess­ara flokka hefur starfað saman síðan.

Í nóv­em­ber í fyrra til­kynnti Ágúst að hann ætl­aði að bjóða sig fram til alþingis. Framsókn vann stór­sigur í kosn­ing­unum í sept­em­ber síð­ast­liðnum og mjög óvænt var Ágúst kos­inn sem þing­maður, þvert ofan í allar spár.

En hvað ætlar Ágúst að gera?

Mannlíf heyrði hljóðið í Ágústi og spurði hann hvað hann ætl­aði að gera núna þegar hann er bæði kos­inn sem bæj­ar­full­trúi og þing­maður.

„Staðan er þannig að ég er for­maður bæj­ar­ráðs og við erum í miðri á með fjár­hags­á­ætlun. Seinni umræða er 8. des­em­ber. Ég mun klára þá vinnu, en stíga svo til hliðar á næstu vikum. Vara­bæj­ar­full­trúi minn er skóla­stjóri, Valdimar Víðisson, í stórum skóla og við erum að reyna finna lend­ingu á þessum málum. Ég hef þegar sagt mig frá setu í hafn­ar­stjórn og stjórn Sorpu,“ sagði Ágúst.

Öllum heim­ild­ar­mönnum Mannlífs ber saman að Rósa Guð­bjarts­dóttir, bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar, hafi viljað í lengstu lög halda Ágústi í bæj­ar­stjórn, og lagt hart að honum að hætta ekki í bæj­ar­stjórn; Rósa vildi að hann sinnti báðum áður­nefndum störfum, en myndi minnka eitt­hvað við sig í nefnd­ar­störfum; jafn­vel hætta öllum nefnd­ar­störfum fyrir Hafn­ar­fjarð­arbæ.

Eða eins og einn af mörgum heim­ild­ar­mönnum Mannlífs í stjórn­kerfi Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar sagði:

„Rósa kippti sér lítið upp við það þegar Ágúst til­kynnti fram­boð sitt, enda var hann í öðru sæti og hvorki Rósa né flestir aðrir áttu von á að Ágúst kæm­ist inn, en annað kom á dag­inn. Rósa vill ekki að Ágúst Bjarni hætti sem bæj­ar­full­trúi – hún lagði til að hann héldi áfram og minnk­aði við sig eða hætti jafn­vel alveg að vera nefnd­ar­full­trúi – yrði sem sagt bæj­ar­full­trúi og þing­maður.

Valdimar Víðisson.

Rósu finnst gott að vinna með Ágústi, og ég er ekki að segja að hún treysti ekki Valdi­mari Víð­is­syni sem tekur við af Ágústi sem odd­viti Fram­sóknar og óháðra, en það alveg óhætt að segja að Rósa er lítt spennt fyrir að starfa með nýjum manni í meiri­hlut­anum, jafn­vel þótt stutt sé til kosn­inga. Hún veit að Valdimar er treg­ari í taumi en Ágúst.“

Samkvæmt ummælum Ágústar hér í frétt­inni að ofan mun Rósa missa hann úr bæj­ar­stjórn og inn á þing eftir nokkrar vikur, hvort sem henni líkar betur eða verr, og deg­inum ljós­ara að Valdimar Víðisson mun taka sæti hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi