Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Rósa skellir skuldinni á Dag B: „Ótrúlega hæpið að bæjarstjóri hafi ekki vitað af málinu“

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar
Rósa Guð­bjarts­dóttir, bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar

Málefni malbikunar­stöðvarinnar Höfða í Reykjavík skekja nú stjórn­sýslu Hafnar­fjarðar­bæjar og valda reiði innan þeirrar reykvísku.

Undir­skriftar­söfnum er hafin til að mótmæla því að fyrir­tækið fái lóð á Ásvöllum undir starfsemi sína eins og sjá má hér.

Svo virðist sem bæjar­stjóri Hafnar­fjarðar, Rósa Guðbjarts­dóttir, og meirihluti bæjar­stjórnar Sjálfstæðis­flokks og Fram­sóknar, hafi ekki vitað af því að til stæði að setja malbikunar­stöðina  upp í stóru og fjölskyldu­vænu hverfi í Hafnar­firði. Í það minnsta ef skoðaðar eru fundar­gerðir bæjar­stjórnar um málið:

Bæjarráð – 3577. Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strand­götu 6, 01.07.2021.

2106621 – Höfði, malbikunarstöð. Til umræðu. Bæjarráð lýsir yfir furðu sinni með þau áform sem fréttir berast af um að Malbikunar­stöðin Höfði hyggist flytja starfsemi sína til Hafnar­fjarðar. Bæjar­stjóra er falið að ræða við borgar­stjórann í Reykjavík vegna þessa og afla upplýsinga um fyrir­ætlanir fyrir­tækisins, áhrif á umhverfi- og umferð á svæðinu og fleira sem málinu tengist.

Bæjarráð – 3578. Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strand­götu 6, 15.07.2021.

2106621 – Höfði, malbikunarstöð. Til upplýsinga. Bæjar­stjóra falið að halda áfram að vinna að málinu.

Ekkert hefur heyrst af málinu síðan frá Rósu og meirihlutanum, og ekkert um nein viðbrögð frá Degi B. Eggerts­syni, borgar­stjóra Reykja­víkur.

Vænta má svara frá þessum aðilum eftir helgi við fyrir­spurn Mannlífs um málið.

Svo virðist sem Rósa og meirihlutinn leggi málið þannig upp að borgar­stjóri sé í skjóli nætur að lauma heilli malbikunarstöð frá Reykjavík inn í stórt og fjölskyldu­vænt hverfi í Hafnar­firði; að Rósa og meirihlutinn hafi hreinlega ekki haft grænan grun um þennan stóra flutning.

Mannlíf hefur talað við fjölda fólks sem kemur með einum eða öðrum hætti að stjórn­sýslu Hafnar­fjarðar­bæjar og Reykja­víkur. Eru svörin flest á eina lund: Að Rósa og meirihlutinn hljóti að hafa vitað af málinu en viljað að það myndi fari leynt. Síðan eftir að málið komst í hámæli er sú aðferð notuð að klína því á Dag borgar­stjóra og meirihlutann í Reykjavík; að Dagur B. sé að fara með malbikunar­stöðina „bakdyramegin“ til Hafnar­fjarðar.

Innan Hafnar­fjarðar gætir mikillar ólgu um málið og þá sérstak­lega hjá íbúum á Völlunum, sem líst illa á að fá mengandi malbikunarstöð inn í hverfið.

Samkvæmt mjög áreiðanlegum heimildum Mannlífs er það fullyrt að Rósa hafi fyrir löngu vitað af málinu og verið því mjög hlynnt, og segir einn af fjölmörgum heimildar­mönnum Mannlífs að sér finnist það „ótrúlega hæpið að bæjar­stjóri hafi ekki fengið veður af þessu fyrr. Mínar heimildir segja mér að þetta hafi verið frágengið í byrjun maí. Ég hef komist að því eftir á að þessi flutningur hafði staðið til frá því í lok apríl. Þannig að það að bæjar­stjóri hafi ekki vitað af því eru mikil vonbrigði og benda ekki til mikillar hæfni sem bæjar­stjóra. Eitt af því sem ég hef velt fyrir mér er spurningin: Væri Rósa að pæla í þessu ef Sjálfstæðis­flokkurinn og Framsóknar­flokkurinn væru í meirihluta í Reykjavík?“

Annar heimildar­maður sagði í samtali við blaðamann Mannlífs að „oddviti Framsóknar­flokksins og formaður bæjarráðs, Ágúst Bjarni Garðarsson, virtist ekki vita af þessu, og það fyrsta sem ég sá voru yfir­lýsingar hans á Facebook um að hann ætlaði að setja málið á dagskrá bæjarráðs. Óháð þeim skoðunum sem má hafa á malbikunar­stöðvum lyktar þetta af pólitík frekar en malbiki fyrir mér; tengist miklu heldur eignar­haldi á fyrir­tækinu en starfseminni sjálfri. Á svæðinu er fyrir malbikunar­stöðin Hlaðbær Colas og á umræddri lóð er Munck með starfs­leyfi fyrir malbikunarstöð frá júní 2018, sem var veitt á vakt Rósu og meirihlutans.“

Mannlíf mun fjalla meira um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim