Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Eftirtaldir bæjarfulltrúar sem ekki höfðu sómatilfinningu“ – Sigurður krefur bæjarstjórn svara

„Eftirtaldir bæjarfulltrúar sem ekki höfðu sómatilfinningu“ – Sigurður krefur bæjarstjórn svara

Sigurður nokkur skrif­aði færslu á Facebook hóp­inn Norð­ur­bær­inn minn – Íbúar í Norðurbæ Hafn­ar­fjarðar þar sem hann segir frá spurn­ingum sem hann lagði fyrir þá 11 bæj­ar­full­trúa er vinna hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ. Snéru spurn­ing­arnar ákvörðun um að hefja fram­kvæmdur við bygg­ingu íbúða við Hjalla­braut, við hlið skáta­heim­il­is­ins. Segir Sigurður að fram­kvæmd­irnar, sem nú eru í fullum gangi, hafi mætt mik­illi and­stöðu Hafn­firð­inga en svo virð­ist sem bæj­ar­full­tú­arnir hafi virt vilja bæj­ar­búa að vettugi. Hér eru spurn­ing­arnar sem Sigurður sendi í tölvu­pósti til allra bæj­ar­full­trú­anna ell­efu:

1. Veittir þú þinn stuðn­ing fyrir breyttu deilu­skipu­lagi til þess að greiða fyrir að af þessum fram­kvæmdum við Hjalla­braut gæti orðið?

2. Ertu hlynntur þessum fram­kvæmdum við Hjalla­braut?

Segist Sigurður hafa gefið full­trú­unum um þrjár vikur til að svara en aðeins tveir hafi séð sóma sinn í að svara. Það sé honum mikil von­brigði.

„Ólafur Ingi Tómasson Sjálf­stæð­is­flokki svarar eft­ir­far­andi:

Sæll Sigurður.

Til að svara þessum spurn­ingum er ein­falt að vísa í fund­ar­gerðir bæj­ar­ins þar sem allir full­trúar í skipu­lags- og bygg­ing­ar­ráði sam­þykktu deiliskipu­lags­til­lög­una. Í bæj­ar­stjórn var deiliskipu­lagið sam­þykkt án mót­at­kvæða, eða með níu atkvæðum, tveir sátu hjá.

Kveðja­Ingi Tóm­as­son­bæj­ar­full­trúi Hafn­ar­fjarð­ar­bæ­for­maður skipu­lags- og bygg­ing­ar­ráðs“

Sigurður við­ur­kennir að hann hefði ekki vitað að þessar upp­lýs­ingar væru opin­berar en sagði þó að þegar hann hafi reynt að finna þær á heima­síðu Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar hafi það verið eins og að leita að nál í hey­stakka.

Hinn bæj­ar­full­trú­inn sem svar­aði Sigurði var Jón Ingi Hákon­ar­son, Viðreisn.

„Sælir

Sjálf­sagt að svara þessum spurn­ingum.Já ég greiddi atkvæði með fram­kvæmd­inni sem leiðir til hins aug­ljósa svars að ég styð fram­kvæmd­irnar, ástæður fyrir atkvæði mínu er sú að Viðreisn styður almennt þétt­ingu byggðar, auk þess er gríð­ar­legur skortur á íbúð­ar­hús­næði í bænum þar sem lítið hefur verið byggt á und­an­förnum rúma ára­tug. Þétt­ing­ar­verk­efni verða alltaf umdeild og smekkur fólks er mis­mun­andi. Okkar sýn er sú að þétt­ing­ar­verk­efni verða að falla að þeirri byggð sem fyrir er og við teljum að þetta verk­efni geri það. Það voru því engin efn­is­leg rök til að vera á móti verk­efn­inu.Bestu kveðj­urJón Ingi Hákon­ar­son

Oddviti Við­reisnar í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar“

Þakkar Sigurður þeim Ólafi Inga og Jóni Inga fyrir svörin en lýsir svo yfir von­brigðum með svara­leysi hinna níu full­trúa, sem hann telur upp og setur þannig pressu á að þau svari sér.

„Ég þakka þeim Ólafi Inga Tómassyni og Jóni Inga Hákon­ar­syni kær­lega fyrir svörin en jafn­fremt lýsi ég von­brigðum og þungum áhyggjum yfir því að í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar sitji fólk sem hundsar þá sem þeir eru í vinnu hjá. Eft­ir­taldir bæj­ar­full­trúar sem ekki höfðu sóma­til­finn­ingu til þess að svara og jafn­vel standa fyrir máli sínu eru :

Rósa Guð­bjarts­dótt­ir­Krist­inn And­er­sen­Helga Ing­ólfs­dótt­ir­Kristín María Thorodd­sen­Sjál­stæð­is­flokki.Ágúst Bjarni Garð­ars­son­Fram­sókn og óháðir.Adda María Jóhanns­dótt­ir­Frið­þjófur Helgi Karls­son­Sam­fylk­ingu.Guðlaug Svala Stein­unnar Krist­jáns­dótt­ir­Bæj­ar­list­anum.Sigurður Þ. Ragn­ars­son­Mið­flokki“

Færslan hefur fengið tölu­verð við­brögð í hópnum en sitt sýn­ist þó hverjum. Flestir sem tjá sig undir færsl­unni eru mjög á móti fram­kvæmd­unum en nokkrir styðja hana þó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi