Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Rósa bæjarstjóri fullyrðir að hafa ekkert vitað – Leyndu bæjarlögmaður og sviðsstjóri hana gögnum?

Rósa bæjarstjóri fullyrðir að hafa ekkert vitað – Leyndu bæjarlögmaður og sviðsstjóri hana gögnum?

Eins og Mannlíf hefur greint frá eru deilur í gangi á milli meiri­hlut­ans í Hafn­ar­firði undir stjórn Rósu Guð­bjarts­dóttur bæj­ar­stjóra, og meiri­hlut­ans í Reykja­vík undir stjórn Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra, varð­andi áætl­aðan flutn­ing mal­bik­un­ar­stöðv­ar­innar Höfða frá Reykja­vík til Hafn­ar­fjarðar.

Íbúar í Hafn­ar­firði hafa sett í gang und­ir­skrift­ar­lista þar sem mót­mælt er að mal­bik­un­ar­stöðin Höfði verði verði flutt úr Reykja­vík í hið vax­andi, blóm­lega og fjöl­skyldu­væna hverfi í Hafn­ar­firði, Ásvelli.

Orð stjórn­mála­mann­anna Rósu og Dags um málið eru ansi ólík og margt sem sagt hefur gengur ein­fald­lega ekki upp, þegar málið er skoðað frá hliðum beggja og krufið til mergjar.

Rósa og meiri­hlut­inn furð­aði sig á því á bæj­ar­stjórn­ar­fundi að Reykja­vík undir stjórn Dags, væri að koma nán­ast „bak­dyra­megin“ með heila mal­bik­un­ar­stöð úr Reykja­vík til Hafn­ar­fjarðar. Samkvæmt fund­ar­gerð­inni vissi Rósa ekki af þessum stóra „gjörn­ingi“ þrátt fyrir að vera æðsti og valda­mesti ein­stak­ling­ur­inn í bæ sem telur yfir 30 þús­und íbúa.

Dagur segir aftur á móti að allt varð­andi málið sé uppi á borð­inu og að lög­fræð­ingur Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar, Ívar Bragason, og sviðs­stjóri sama bæjar, Sigurður Har­alds­son, hafi klár­lega vitað af mál­inu, enda séu gögn til sem sanni það.

Og þá er spurt: Voru Ívar og Sigurður að fara á bak­við yfir­mann sinn, bæj­ar­stjór­ann Rósu Guð­bjarts­dóttur, eða vissi hún af fyr­ir­hug­uðum flutn­ingi Höfða til Hafn­ar­fjarðar, en kaus af ein­hverju ástæðum að við­ur­kenna það ekki? Hvers vegna ættu bæj­ar­lög­maður og sviðs­stjóri að halda því leyndu fyrir Rósu að mal­bik­un­ar­stöðin Höfði væri að flytja til Hafn­ar­fjarðar?

Þess má geta að Mannlíf hefur sent bæj­ar­lög­manni Hafn­ar­fjarðar, Ívari Braga­syni, og sviðs­stjóra, Sigurði Har­alds­syni, fyr­ir­spurn með vísan í upp­lýs­inga­lög nr. 140/2012. þess efnis hvort þeir hafi vitað af mál­inu og ef svo er þá hvort þeir hafi greint Rósu Guð­bjarts­dóttur frá því.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn til Rósu Guð­bjarts­dóttur varð­andi málið með vísan í upp­lýs­inga­lög nr. 140/2012.

Hér að neðan eru sam­skipti blaða­manns Mannlífs og Rósu Guð­bjarts­dóttur bæj­ar­stjóra Hafn­ar­fjarðar; spurn­ingar blaða­manns og svör hennar við þeim:

Blm: Ert þú búin að ræða við Dag B. Egg­erts­son borg­ar­stjóra um mál Höfða? Ef svo er, þá hvenær og með hvaða hætti, og hvað kom út úr því sam­tali?

Rósa: Bæjarráð Hafn­ar­fjarðar fól bæj­ar­stjóra að ræða við borg­ar­stjór­ann í Reykja­vík um þetta mál á fundi sínum 1. júlí sl. og ræddum við saman dag­inn eftir. Ljóst er að við borg­ar­stjóri munum verða í sam­bandi um málið  áfram þegar frek­ari upp­lýs­ingar liggja fyrir. Andstaða bæj­ar­yf­ir­valda í Hafn­ar­firði við fyr­ir­hug­aðan flutn­ing þess­arar starf­semi frá Reykja­vík til Hafn­ar­fjarðar liggur hins vegar skýr fyrir.

Blm: Vissir þú sem bæj­ar­stjóri ekki af fyr­ir­hug­uðum flutn­ingi Höfða til Hafn­ar­fjarðar?

Rósa: Fyr­ir­ætl­anir Mal­bik­un­ar­mið­stöðv­ar­innar Höfða hf., sem er félag í eigu Reykja­vík­ur­borgar, voru ekki bornar undir mig sem bæj­ar­stjóra Hafn­ar­fjarðar, heldur keypti Höfði lóð að Álhellu 18 í Hafn­ar­firði þar sem Munck Ísland hefur haft starfs­leyfi fyrir mun minni mal­bik­un­ar­stöð. Starfs­menn Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar upp­lýstu Höfða um það starfs­leyfi sem Umhverf­is­stofnun hefur veitt á lóð­inni og þurfti ekki aðkomu bæj­ar­stjóra að þeirri upp­lýs­inga­gjöf. Þegar fréttir fóru að ber­ast um mögu­legan flutn­ing allrar starf­semi Mal­bik­un­ar­stöðv­ar­innar Höfða til Hafn­ar­fjarðar á þessa lóð var málið þegar sett á dag­skrá bæj­ar­ráðs að frum­kvæði meiri­hluta bæj­ar­stjórnar til þess að ræða mögu­leg við­brögð af hálfu bæj­ar­ins.

Blm: Ef þú vissir ekki um málið, hvernig stendur þá á því að bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar veit ekki af slíkum risa­stórum gjörn­ingi í sem æðsti yfir­maður í sínu eigin sveit­ar­fé­lagi?

Rósa: Við­skipti með lóðir fara fram á milli lóð­ar­hafa og vænt­an­legra kaup­enda og eru bæj­ar­stjóri og bæj­ar­yf­ir­völd ekki aðilar að við­skiptum með lóðir sem ekki eru á for­ræði sveit­ar­fé­lags­ins. Hlutverk starfs­manna bæj­ar­ins er þá fyrst og fremst að svara fyr­ir­spurnum í tengslum við skipu­lags­mál og öðrum þáttum er lúta að valdsviði sveit­ar­fé­lags­ins.

Blm: Vissi Dagur B. Egg­erts­son af fyr­ir­hug­uðum flutn­ingi Höfða til Hafn­ar­fjarðar?

Rósa: Spurn­ingum um hvenær borg­ar­stjóra var kunn­ugt um fyr­ir­ætl­anir Höfða ber að beina til hans.

Blm: Ljóst er að ann­að­hvort veistu um það vegna mögu­legs sam­tals við hann sem boðað var til í áður­nefndri fund­ar­gerð, eða þá að þú veist ekki hvort hann hafi vitað af þessu vegna þess að þú sért ekki búinn að ræða málið við hann. Hvort er það?

Rósa: Borg­ar­stjóra var kunn­ugt um málið þegar við hófum okkar sam­tal enda þegar verið fjallað um það opin­ber­lega.

Blm: Er það rétt að fyr­ir­hug­aður flutn­ingur Höfða frá Reykja­vík til Hafn­ar­fjarðar hafi verið frá­geng­inn í byrjun maí 2021 og að þessi flutn­ingur hafi staðið til frá því í apríl sama ár?

Rósa: Mér er ekki kunn­ugt um tíma­setn­ingar varð­andi áætl­anir Mal­bik­un­ar­stöðv­ar­innar Höfða.

Blm: Fékk Ágúst Bjarni Garð­ars­son, bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður bæj­ar­ráðs Hafn­ar­fjarðar, vit­neskju af þessum fyr­ir­hug­aða flutn­ingi á sama tíma og þú? Ef svo er, hvenær var það nákvæm­lega? Var það mögu­lega á fundi þeim sem hald­inn var 1. júlí s.l.? (Bæjarráð – 3577. Haldinn í fund­ar­sal bæj­ar­ráðs, Strand­götu 6, 01.07.2021. 2106621 – Höfði, mal­bik­un­ar­stöð).

Rósa: Fréttir fjöl­miðla í lok júní um að Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði hefði hug á því að flytja starf­semi sína frá Reykja­vík til Hafn­ar­fjarðar komu bæði for­manni bæj­ar­ráðs Hafn­ar­fjarðar og bæj­ar­stjóra að óvörum. Meiri­hluta­flokk­arnir í Hafn­ar­firði stóðu svo saman að því að taka málið strax fyrir á fundi bæj­ar­ráðs 1. júlí sl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ