Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Segir borgarstjóra halda þræla: „Erfiðisvinna án þóknunar né launa“

Segir borgarstjóra halda þræla: „Erfiðisvinna án þóknunar né launa“

Ásta Kristrún Ólafs­dóttir, sál­fræð­ingur, kenn­ari og móðir, skrif­aði grein sem birt­ist í Frétta­blað­inu undir yfir­skrift­inni; Borg­ar­stjóri heldur þræla.

Í grein sinni gagn­rýnir hún þann litla stuðn­ing sem borgin veitir fólki sem sér um umönnun fólks sem fötl­unar sinnar vegna getur ekki séð um sig sjálft.Ásta Kristrún er móðir ungs manns með fötlun og skrif­aði hún opið bréf í Frétta­blaðið árið 2019 sem vakti tals­verða athygli. Í því gagn­rýndi hún þann skort á upp­lýs­ingum sem oft mætir for­eldrum ein­stak­linga með fötlun.

Borgarstjóri heldur fólki nauðugu

„Bara svo þið vitið það áður en þið gangið til kosn­inga, þá heldur borg­ar­stjóri og hans lið, hópi fólks nauð­ugu í erf­ið­is­vinnu án þókn­unar né launa. Þessi vinna, sem fólk er neytt til að inna af hendi, er bæði lík­am­lega og and­lega erfið. Hún er félags­lega ein­angr­andi, krefst við­veru allan sól­ar­hring­inn og gengur nærri heilsu fólks,“ segir Ásta Kristrún í bréfi sínu og bætir við að það sé engin leið út úr þess­ari nauð­ung. „Og ef ein­hver vogar sér að leita réttar síns, grípur borg­ar­stjóri hik­laust til varna.“

Hún segir að ef ein­hver getur sýnt fram á að þessi nauð­ung­ar­vinna hafi skert tekjur sem við­kom­andi kann að hafa haft af annarri vinnu, geti sá hinn sami sótt um hung­ur­lús hjá Trygg­inga­stofnun fyrir þræl­dóm­inn.

„Ef þú bug­ast undan álag­inu og veik­ist á lík­ama eða sál, færðu ekki neitt. Trygg­inga­stofnun hefur rétti­lega bent á að veikt fólk getur ekki ann­ast fatlað fólk og því fær það enga hung­ur­lús.“

Meirihluti borgarinnar skítfellur á siðferðisprófi

Hún segir að þegar veiki þræll­inn biður borg­ina að aðstoða sig við að kom­ast til heilsu sé svarið þvert nei.

„Þrællinn getur fengið að barma sér hjá félags­ráð­gjafa hjá þjón­ustu­mið­stöð, sér að kostn­að­ar­lausu, en ef hann er mjög illa staddur getur hann sótt um nokkra tíma hjá sál­fræð­ingi. Kannski getur hann sótt um tíma í nuddi eða nál­arstungum en þræll­inn sem þetta skrifar hefur ekki haft rænu á að láta sér detta það í hug en eins og alkunna er þá upp­lýsir borgin ekki um val­kosti að fyrra bragði.“

Ásta Kristrún segir að þetta sé vinna sem borgin eigi, lögum sam­kvæmt, að inna af hendi.

„Borgin ber ábyrgð á þjón­ustu við fatlað fólk. Ekki bara smá eða ponsu litla ábyrgð heldur 100% ábyrgð. Borgin axlar ekki þessa ábyrgð og veltir henni yfir á þræla sína, það er for­eldra og aðstand­endur hinna fötl­uðu.“

Hún segir að sið­ferði yfir­valda sjá­ist best á því hvernig það kemur fram við þá sem minnst mega sín.

„Núver­andi meiri­hluti borg­ar­innar skít­fellur á því sið­ferð­is­prófi, mis­notar fólk svo það tapar heils­unni en dúllar sér við að punta og skreyta borg­ina fyrir fjár­muni sem ættu, ef þetta fólk hefði ein­hverja sóma­kennd, að fara í að leysa þræla úr ánauð og veita fötl­uðu fólki þá þjón­ustu sem það þarfn­ast. Það er ósk mín að næsti meiri­hluti í borg­inni verði fólk með sæmi­lega dóm­greind, þokka­legt sið­ferði og hjartað á réttum stað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag