Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Guðrún Hulda Fossdal býður sig fram fyrir Sósíalista: „Þú hefur ekki efni á að vera pjöttuð“

Guðrún Hulda Fossdal býður sig fram fyrir Sósíalista: „Þú hefur ekki efni á að vera pjöttuð“
Guðrún Hulda Fossdal

„Mitt helsta bar­áttu­efni er hús­næð­is­mark­að­ur­inn í Reykja­vík. Ég vil bæta hann og eins er ég með mjög sterkar skoð­anir á því hvernig Félags­bú­staðir Reykja­víkur eru reknir,“ segir Guðrún Fossdal sem býður sig fram í 15. sæti fyrir Sós­í­alista í Reykja­vík í kom­andi kosn­ingum og sem seg­ist alltaf hafa verið heit fyrir því að vera í póli­tík. „Ég myndi vilja að sett yrði reglu­gerð sem borg­ar­stjórn myndi knýja á um að ríkið setti um þök á leigu; að það séu ekki bara enda­laus hagn­að­ar­drifin leigu­fyr­ir­tæki. Það þarf til dæmis að hætta með útboð á lóðum. Sveit­ar­fé­lög eiga yfir höfuð ekki að vera með útboð þannig að sá sem borgar mest fái bestu lóð­ina. Við þurfum kannski að fara aftur í tíma; ein­hvern tím­ann tíðk­að­ist lóða­happ­drætti. Ef Reykja­vík­ur­borg byrjar að vera þannig að það sé unnið meira að því að allir eigi meiri mögu­leika á hús­næði þá fylgja hin sveit­ar­fé­lögin.“

Það stang­ast á við stefnu Reykja­vík­ur­borgar um að fækka einka­bílum.

Guðrún Hulda segir að Sós­í­alistar vilji sam­vinnu eins og varð­andi almenn­ings­sam­göngur. „Þeir vilja vinna með Strætó í að skipu­leggja ferðir. Strætó er að fækka ferðum og hækka verð en það stang­ast á við stefnu Reykja­vík­ur­borgar um að fækka einka­bílum. Þetta er hluti af því sem ég vil vinna með; árskort ung­menna í Strætó hækk­uðu um 60% í haust. Þarna hefði ég viljað að Reykja­vík­ur­borg sem stærsta sveit­ar­fé­lagið myndi reyna að ná í ein­hverja sam­vinnu til að koma í veg fyrir svona.“

Álag og fjárskortur

Guðrún Hulda seg­ist vita að búið sé að stokka upp hjá Félags­bú­stöðum en að þar megi gera betur; sjálf býr hún í íbúð á vegum Félags­bú­staða. „Margir leigj­endur Félags­bú­staða upp­lifa enn að þeir séu ekki einu sinni núll þjóð­fé­lags­þegnar heldur fyrir neðan það þegar þeir hafa beðið um að eitt­hvað yrði gert. Fólk á ekki að þurfa að marg­hringja og betla eftir því að fá eitt­hvað lagað. Það þarf að breyta áherslum þar. Reynsla mín af þessu er ekki góð og fram­koma starfs­fólks hefur ekki alltaf verið góð. Enginn myndi held ég sætta sig við sum til­svörin sem ég hef fengið. Það voru til dæmis bruna­göt á eld­hús­bekkj­unum þegar ég flutti inn 2008 og spurði ég starfs­mann hvort það hafi ekki átt að skipta um þetta. Ég fékk svarið „þú hefur ekki efni á að vera pjöttuð“.“

Þögn.

„Það var svarið sem ég fékk. Ég spurði mann­inn hvort hann ætti konu. Hann sagði svo vera. Þá spurði ég hvort hann myndi tala svona við kon­una sína. Hann sagði að það myndi hann ekki gera. Þá sagði ég að hann skyldi ekki tala svona við mig.

Enn þarf maður að marg­hringja til þess að eitt­hvað sé gert

Það er búin að vera mikil breyt­ing hvað þetta varðar en enn þarf maður að marg­hringja til þess að eitt­hvað sé gert. Ég held að þetta teng­ist álagi á starfs­menn; ég held að það sé ekki nógu mik­ill mann­afli til að takast á við allt sem þarf að gera þarna. Auðvitað teng­ist þetta líka fjár­skorti en ég held að þetta sé samt aðal­lega vegna álags á starfs­fólk. Svo á leiga á félags­legu hús­næði ekki að vera vísi­tölu­tengd og það er líka svo­lítið hita­mál hjá mér.“

Gefur aukakrónurnar

Guðrún Hulda seg­ist hafa skráð sig í Sós­í­alista­flokk­inn við stofnun hans. „Ég skráð mig upp­haf­lega í flokk­inn af því að hann leggur áherslu á jöfnuð. Sós­í­alista­flokk­ur­inn gengur út á að allir eigi sömu mögu­leika og að þeir sem eiga erf­ið­ara með að nýta mögu­leik­ana fái þá hjálp.“ Hún segir að það hafi síðan verið Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, sem er í odd­vita­sæti flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar, sem hafi beðið sig um að gefa kost á sér. „Sanna er nátt­úr­lega búin að sanna það að við venju­lega fólkið úti í bæ getum verið þarna. Ég hefði ekki haft trú á að maður gæti þetta nema af því að ég er búin að sjá hvað hún er búin að vinna ofboðs­lega gott starf.

Það að gefa kost á mér gefur mér tæki­færi til að hafa áhrif og láta í mér heyra sem og að hlusta á aðra; þetta fær mig til að hugsa, velta hlut­unum fyrir mér og hafa skoð­anir. Það gefur mér mikið gildi í líf­inu að reyna að sjá hlut­ina út frá öðru sjón­ar­horni.“

Ég hefði viljað að fleiri hefðu það gott.

Mis­skipt­ing auðs kemur til tals. „Ég er nátt­úr­lega ekki hlynnt þess­ari mis­skipt­ingu og ég er ekki hlynnt því eins og hús­næð­is­mark­að­ur­inn er að það séu örfáir ein­stak­lingar sem geti verið að kaupa upp eignir og haldið þeim frá sölu til þess að hækka mark­að­inn. Ég hefði viljað sjá ein­hverjar breyt­ingar þar líka. Ég er ekki gröm eða sár út í þá sem hafa það gott en ég hefði viljað að fleiri hefðu það gott. Sumir sem eiga fullt af pen­ingum hafa lagt hart að sér; aðrir fá þá upp í hend­urnar. Það er hins vegar ekki mitt að meta hverjir það eru sem hafa ekki þurft að hafa fyrir hlut­unum. Það er hins vegar ekki rétt­látt að börn okkar sem erum í félags­legu hús­næði sem öryrkjar og/eða lág­tekju­fólk þurfi að fara að heiman þegar þau eru 18 ára en dag­inn sem barnið verður 18 ára má það ekki lengur vera skráð heima hjá sér vegna þess að þá þarf að fara að borga hærri leigu. Þá þyrfti barnið að fara að vinna með skóla.“

Guðrún Hulda vill hafa áhrif til góðs í sam­fé­lag­inu sem myndi nýt­ast þeim sem þurfa á því að halda. „Það hefur alltaf verið fram­tíð­ar­draumur minn og mark­mið að geta hjálpað. Ég nota hverja ein­ustu auka­krónu sem ég finn til að styrkja ein­hver lítil félög ef ég mögu­lega get. Ég hef ekki þörf fyrir að vera kosin í borg­ar­stjórn en ég hef þörf fyrir að hafa áhrif á hvernig stefnan er mótuð og geta kannski unnið baka til.“

Einelti og nauðganir

Nei, líf Guðrúnar Huldu hefur ekki alltaf verið dans á rósum, enda rósir með þyrna sem stinga. Mannlíf birti við­tal við hana í fyrra, sem hægt er að lesa hér. Þar kemur fram: Einelti alla grunn­skóla­göng­una, neysla, nauðg­anir, með­ferð, ofþyngd og átröskun, ADHD og sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­ur­inn rauðir úlfar.

Hún byrj­aði að sniffa í kringum ferm­ing­ar­aldur. Byrjaði að drekka tæp­lega 16 ára.

„Ég man eftir fyrsta fyll­er­í­inu. Ég fann alsælu í lík­am­anum og ég var mjög fljót að þróa þetta. Ég fór hratt niður á botn­inn og fór í fyrstu með­ferð­ina 19 ára eftir að hafa verið í neyslu og drykkju í margar vikur. Ég gat ekki meira.“ Hún seg­ist aðal­lega hafa verið í sýru og hassi. „Þessi örvandi efni gerðu ekk­ert annað fyrir mig en að róa mig.“ Guðrún er spurð hvort hún sé með ADHD og hún segir svo vera. „Ég skildi ekki hvað fólk fékk út úr því að taka spítt.“

Ég kenndi sjálfri mér um þetta.

Hún segir að á neyslu­tíma­bil­inu hafi hún upp­lifað sömu hluti og margar konur lenda í sem eru í neyslu. „Maður upp­lifði ofbeldi. Maður upp­lifði nauðgun.“ Hún segir að sér hafi nokkrum sinnum verið nauðgað og að hún líti á það ofbeldi sem hluta af for­tíð­inni. Hún hvorki kærði menn­ina sem nauðg­uðu sér né lét skoða sig hjá lækni í kjöl­farið. „Ég kenndi sjálfri mér um þetta. Það nennti engin kona að fá þessar spurn­inga: Hvað varstu búin að drekka mikið? Hvernig varstu klædd? Hvað varstu að gera? Gafstu honum undir fót­inn?“

Botninum var svo náð í neysl­unni og hún fór í enn eina með­ferð­ina þegar hún var 23 ára og hefur verið edrú síðan.

Í við­tal­inu í fyrra sagði hún meðal ann­ars: „Jú, Guðrún seg­ist vera Pollý­anna í sér; að hún sjái almennt jákvæðu hlið­arnar á mál­unum. Hún er óvinnu­fær vegna rauðu úlf­anna. Hún kláraði á sínum tíma skrif­stofu­braut MK og langar til að vinna við bók­hald. „Mig langar til að upp­lifa að maður sé að gera eitt­hvað sem skiptir máli fyrir sam­fé­lagið; að maður sé að leggja sitt af mörkum.“

Í dag, í maí 2022, er hún komin þangað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina