Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Ég svelti mig stundum og kastaði upp eftir að ég borðaði“ – Guðrún Hulda, ofþyngdin og eineltið:

„Ég svelti mig stundum og kastaði upp eftir að ég borðaði“ – Guðrún Hulda, ofþyngdin og eineltið:
Guðrún Hulda Fossdal

Hún er 46 ára. Þriggja barna móðir. Öryrki. Guðrún Hulda Fossdal hefur á lífs­leið­inni gengið í um dimma dali og leiðin hefur oft verið grýtt en hún seg­ist vera Pollý­anna í sér og tekur þetta á jákvæðn­inni: Einelti alla grunn­skóla­göng­una, neysla, nauðg­anir, með­ferð, ofþyngd og átröskun, ADHD og sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­ur­inn rauðir úlfar.

„Ég man ekki eftir því að ég hafi ekki verið lögð í ein­elti í grunn­skóla,“ segir Guðrún og bætir við að þeir sem hafi verið verstir hvað varðar ein­eltið hafi allir í gegnum árin haft sam­band við sig og beðist afsök­unar. „Eineltið fólst í úti­lokun. Þegar nýir krakkar byrj­uðu í skól­anum var þeim sagt að þeir fengju ekki að vera með eða yrðu jafn­vel barðir ef þeir myndu umgang­ast mig. Þegar sem mest var talað um eyðni og ég var um 10 ára þá var nýjum nem­endum sagt að ég væri með AIDS.“

Þögn.

Þegar nýir krakkar byrj­uðu í skól­anum var þeim sagt að þeir fengju ekki að vera með eða yrðu jafn­vel barðir ef þeir myndu umgang­ast mig.

Hún seg­ist hafa verið ofboðs­lega reið á þessum árum og að það hafi svo ýtt enn meira undir ein­eltið. „Ég fór að svara fyrir mig þegar ég varð eldri. Ég trúði því lengi að ég væri svona ómögu­legur pappír en svo átti ég reyndar erfitt með að skilja hvers vegna. Það virt­ist vera alveg sama hvað ég gerði; ég stuð­aði samt fólk og það teng­ist því örugg­lega að ég er ekki eins og flestir. Ég er dálítið sér á báti og fer svo­lítið mínar eigin leiðir. Ég er auð­trúa; það er hægt að ljúga öllu að mér en ég á ekki von á því að fólk sé að ljúga. Ég var ekki eins og hinir krakk­arnir og mig lang­aði heldur ekki til að vera eins og þeir.“

Guðrún segir að sumir kenn­arar hafi tekið þátt í ein­elt­inu. „Ég hélt að þetta væri ímyndun í mér þangað til gömul skóla­systir mín kom til mín þegar við vorum um tví­tugt og sagð­ist oft hafa farið grát­andi heim til sín eftir skóla af því að einn kenn­ar­inn var svo vondur við mig. Ef ég rétti upp hend­ina í tímum þá gat ég verið með hana uppi lengi og hann þótt­ist ekki sjá það en ef annar nem­andi rétti upp hendi þá gekk hann strax til hans. Skóla­stjórn­endur í öðrum grunn­skól­anum sem ég var í voru mér mjög góðir og voru stöðugt að finna leiðir til að reyna að láta mér líða betur.“

Jú, ein­eltið braut Guðrúnu niður. Sjálfs­myndin var löskuð.

Sýra og hass

Hún byrj­aði að sniffa í kringum ferm­ing­ar­aldur. Byrjaði að drekka tæp­lega 16 ára.

„Ég man eftir fyrsta fyll­er­í­inu. Ég fann alsælu í lík­am­anum og ég var mjög fljót að þróa þetta. Ég fór hratt niður á botn­inn og fór í fyrstu með­ferð­ina 19 ára eftir að hafa verið í neyslu og drykkju í margar vikur. Ég gat ekki meira.“

Hún seg­ist aðal­lega hafa verið í sýru og hassi. „Þessi örvandi efni gerðu ekk­ert annað fyrir mig en að róa mig.“

Guðrún er spurð hvort hún sé með ADHD og hún segir svo vera. „Ég skildi ekki hvað fólk fékk út úr því að taka spítt.“

Hún hóf nám við FB og eftir annan íslensku­tím­ann spurði íslensku­kenn­ar­inn hana hvort hún væri les­blind; hún seg­ist varla hafa vitað hvað það væri að vera les­blind. Það kom svo í ljós í kjöl­farið að svo er.

Hún hætti í FB eftir fyrstu önn­ina. Fór að vinna og djamma. „Ég vann mikið í verk­smiðjum og við umönn­un­ar­s­töf næstu árin. Mér var skít­sama um allt þegar ég var undir áhrifum og það var það sem ég leit­að­ist eftir.“

Hún segir að á neyslu­tíma­bil­inu hafi hún upp­lifað sömu hluti og margar konur lenda í sem eru í neyslu. „Maður upp­lifði ofbeldi. Maður upp­lifði nauðgun.“ Hún segir að sér hafi nokkrum sinnum verið nauðgað og að hún líti á það ofbeldi sem hluta af for­tíð­inni. Hún hvorki kærði menn­ina sem nauðg­uðu sér né lét skoða sig hjá lækni í kjöl­farið. „Ég kenndi sjálfri mér um þetta. Það nennti engin kona að fá þessar spurn­inga: Hvað varstu búin að drekka mikið? Hvernig varstu klædd? Hvað varstu að gera? Gafstu honum undir fót­inn?“

Maður upp­lifði ofbeldi. Maður upp­lifði nauðgun.

Hún seg­ist vera búin að fyr­ir­gefa mönn­unum sem nauðg­uðu sér en að annað sé að geta fyr­ir­gefið verkn­að­inn. Hún segir að hug­ræn atferl­is­með­ferð hjá sál­fræð­ingi löngu síðar hafi hjálpað sér til að vinna úr áfall­inu.

Botninum var svo náð í neysl­unni og hún fór í enn eina með­ferð­ina þegar hún var 23 ára og hefur verið edrú síðan.

Kók, kaffi og sígarettur

„Ég var alveg eðli­leg fram að kyn­þroska en þegar ég varð kyn­þroska þá fór eig­in­lega allt í rúst. Ég stækk­aði um 14 sentí­metra á örfáum mán­uðum og þyngd­ist um 10 kíló. Allt kerfið rugl­að­ist og það kom ekki í ljós fyrr en ég var um þrí­tugt að ég er með ein­hvers konar horm­óna­brenglun sem olli þessu. Þetta var eins og jójó; stundum grennt­ist ég og stundum rauk ég upp í þyngd. Ég gat lést um 15 kíló á einum mán­uði og ég gat líka þyngst um 10-15 kíló á stuttum tíma án þess að breyta um matar­æði.“

Guðrún fitn­aði óhóf­lega á ung­lings­ár­unum og þró­aði í kjöl­farið með sér átröskun. Hún seg­ist aldrei hafa verið í ofáti; ekki einu sinni þegar hún var feit­ust en þá var hún um 120 kíló. „Ég svelti mig stundum og kastaði upp eftir að ég borð­aði. Ég fór að hata lík­ama minn. Ég fór að hata mat­inn sem ég setti ofan í hann af því að ég var ekki eins og hinar stelp­urnar; ég var feit­ari en þær. Það fólst í því ákveðin fróun að kasta upp þar sem ég hafði þá stjórn­ina. Blekk­ingin var mikil og ég taldi mér trú um að mér liði betur. Ég upp­lifði þó mik­inn kvíða á þessu tíma­bili en þar sem ég er mikil Pollý­anna að eðl­is­fari þá reyndi ég alltaf að sjá ein­hverja jákvæða punta við þetta allt saman.“

Hún flutti að heiman 17 ára og þá segir hún að ástandið hafi orðið verra. „Það var eig­in­lega eng­inn matur til heima já mér. Ég keypti ekki í mat­inn og fór að lifa á kóki, kaffi og sígar­ettum og fitn­aði í kjöl­farið. Ég fór svo að vikta mig áður en ég leyfði mér að borða og líka eftir að hafa borðað og svo kastaði ég upp til að full­vissa mig um að ég hefði alveg náð að tæma mig. Þessi tíma­bil stóðu yfir í hléum en ég fór svo að takast á við þetta þegar ég var 24 ára.“

Sjálfs­myndin var slæm á þessum árum. „Það var ekki fyrr en ég fór í bata af átrösk­un­inni sem sjálfs­myndin fór að verða betri og ég fór að standa meira með sjálfri mér og vera sátt við þá mann­eskju sem ég er.“

Guðrún greind­ist svo með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­inn rauða úlfa þegar hún var 32 ára en þá var hún næstum því komin í kjör­þyngd og var farin að borða rétt og lifa heil­brigðu líf­erni. Hún fór þá að þyngj­ast aftur vegna sjúk­dóms­ins.

Ég gat lést um 15 kíló á einum mán­uði og ég gat líka þyngst um 10-15 kíló á stuttum tíma án þess að breyta um matar­æði.

Það var orðið erfitt að hreyfa sig, gigtin, sem hún er með, versn­aði og hún var komin með kæfisvefn auk þess sem hún þurtti að fá stærri lyfja­skammta við sjúk­dómnum þar sem lík­am­inn nýtti ekki upp­haf­lega skammt­inn nægi­lega. „Svo fannst mér ég vera orðin léleg móðir af því að ég var ekki nógu orku­mikil til þess að fara og gera ýmis­legt með stelp­unum mínum og ég skamm­að­ist mín líka fyrir að láta aðra sjá að þær ættu svona feita mömmu. Það eru varla til myndir af mér síð­ustu árin áður en ég fór í aðgerð­ina; ég var alveg hætt að leyfa mynda­tökur.“

Aðgerðin sem um ræðir er maga­ermis­að­gerð sem Guðrún fór í fyrir þremur árum síðan? Hún tók lán fyrir aðgerð­inni, sem kost­aði 1,2 millj­ónir króna, og segir hún að hún hafi komið út í plús þar sem hún kaupi nú öðru­vísi inn en áður og er líka hætt að reykja. Hún seg­ist fara eftir öllum leið­bein­ingum og að allt hafi gengið vel eftir aðgerð­ina. Hún er 163 cm og 52 kíló; segir að hún megi ekki vera létt­ari. „Það er búið að minnka lyfja­skammt­ana og ég hef aldrei mælst eins vel í vítamínum og stein­efnum. Líkamleg heilsa er bara miklu betri.“ Það sama er að segja um and­lega líðan. „Sjálfs­traustið er alveg komið. Ég stend meira með sjálfri mér í dag. Ég er ákveðn­ari. Það að vera létt­ari hjálpar til með and­legu líð­an­ina.“

Guðrún segir að það hafi komið sér á óvart að hún fær meiri hjálp en áður en hún grennt­ist og að það sé talað öðru­vísi við sig en áður. „Ég upp­lifði samt aldrei að það væri talað niður til mín en það er komið öðru­vísi fram við mig. Maður fær annað við­horf frá sam­fé­lag­inu.“

Jú, Guðrún seg­ist vera Pollý­anna í sér; að hún sjái almennt jákvæðu hlið­arnar á mál­unum. Hún er óvinnu­fær vegna rauðu úlf­anna. Hún kláraði á sínum tíma skrif­stofu­braut MK og langar til að vinna við bók­hald. „Mig langar til að upp­lifa að maður sé að gera eitt­hvað sem skiptir máli fyrir sam­fé­lagið; að maður sé að leggja sitt af mörkum.“

Guðrún segir að það hafi komið sér á óvart að hún fær meiri hjálp en áður en hún grennt­ist og að það sé talað öðru­vísi við sig en áður.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ