Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Brynja Dan, oddviti Framsóknarmanna í Garðabæ: Einhvern veginn er maður alltaf að sigra sjálfan sig

Brynja Dan, oddviti Framsóknarmanna í Garðabæ: Einhvern veginn er maður alltaf að sigra sjálfan sig
Brynja Dan í fram­boði Ljós­mynd­ari: Aldís Páls. Mynd: Aldís Pálsdóttir

„Það væri algjör draumur að ná inn í bæj­ar­stjórn og það er auð­vitað bara mark­miðið til þess að geta haft áhrif á nærum­hverfið mitt. Svo ég mun hlaupa eins hratt og ég get þar til klukkan slær 22 á laug­ar­dags­kvöldið,“ segir Brynja Dan Gunn­ars­dóttir, odd­viti Fram­sókn­ar­manna í Garðabæ.
Það stytt­ist í kosn­ingar. Hvernig hafa síð­ustu dagar verið? „Þeir hafa verið alveg ofsa­lega
skemmti­legir; ég neita því ekki að það er komin þreyta í mann en loka­metr­arnir eru samt
skemmti­leg­astir. Ég er umkringd svo öfl­ugu liði að það er ekki annað hægt en að hafa gaman og njóta ferða­lags­ins.“

Fólk spyr líka hvað við getum gert betur fyrir eldra fólk.

Hvað brennur helst á fólki sem hún hittir á kosn­inga­fundum? Hvað er fólk helst ánægt með og hverju vill fólk helst breyta? „Það eru kannski þessir hver­dags­legu hlutir sem fólk spáir í eins og til dæmis hvernig sund­laug verður byggð í Urriða­holti en auð­vitað líka bara hvað við ætlum að gera fyrir barna­fjöl­skyldur; hvernig við ætlum að létta undir þessum oft mest krefj­andi árum. Einnig skipta sam­göngu­mál fólk miklu.

Fólk spyr líka hvað við getum gert betur fyrir eldra fólk og það þarf að efla og styrkja heima­þjón­ust­una svo fólk geti elst með reisn heima hjá sér svo lengi sem það kýs svo. Auðvitað eru svo hús­næð­is­málin líka ofar­lega á lista og við þurfum að byggja fjöl­breytt og geta tekið á móti öllum hópum. Svo finnst mér per­sónu­lega vanta smá svona stemmn­ingu, ég væri til í að sjá ein­hvern svona fjöl­skyldu­garð þar sem við getum komið saman og bara verið; mögu­lega með mat­ar­vagna á sumrin og lif­andi tón­list og svona komið saman og verið úti og notið sam­ver­unnar.“
Brynja segir að sam­vinna og lið­sandi komi fyrst upp í hug­ann þegar hún er spurð hvað hún sé búin að læra af að taka þátt í kosn­inga­bar­áttu sem og það að stökkva út í djúpu laug­ina og synda. „Maður þarf að setja sig inn í alls konar mál­efni og ein­hvern veg­inn er maður alltaf að sigra sjálfan sig.“

Hvað hefur verið erf­ið­ast í kosn­inga­bar­átt­unni og hvað er eft­ir­minni­leg­ast?
„Bara hvað þetta er dásam­legur hópur og reyndar skelltum við í eitt mjög skemmti­legt og
fyndið mynd­band; það er um að gera að hafa smá­gaman líka svona í lokin og flippa aðeins.“

Við erum ekki öll eins og með mis­mun­andi þarfir.

Brynja segir að það að hafa mögu­lega áhrif til góðs og að geta mögu­lega breytt sam­fé­lag­inu til hins betra sé það sem gefi sér við að gefa kost á sér og vilja vinna að áherslu­málum sínum. „Það er besta til­finn­ingin og svo gef­andi.“ Og hver eru áherslu­málin? „Við viljum barn­vænt sam­fé­lag, létta undir með barna­fjöl­skyldum og hlúa að börn­unum okkar sem eru fram­tíðin. Við viljum fara í stór­á­tak í lýð­heilsu og for­vörnum bæði fyrir unga sem aldna, við viljum byggja fjöl­breytt hús­næði og að það sé sama þjón­ustu­stig alls staðar í Garðabæ. Svo tölum við fyrir sam­vinnu og skyn­sömum lausnum. Ég vil að Garðabær sé sveigj­an­legur og geti tekið á móti öllum; við erum ekki öll eins og með mis­mun­andi þarfir.“
Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Hvers vegna ákvað Brynja að gefa kost á sér fyrir Framsókn? „Þetta
er miðju­flokkur og í honum fæ ég að vera nákvæm­lega eins og ég er. Allir hafa rými til að
vera þeir sjálfir og við erum eins mörg og við erum mis­jöfn.“

Þarft verk­efni
Brynja segir að það að verða móðir og að missa for­eldra sína ung sé það sem hafi mótað sig mest í líf­inu. „Þetta tvennt er eitt­hvað sem breytir manni að eilífu og þroskar mann á núll einni.“ Hún tal­aði einmitt meðal ann­ars um sorg­ina í helg­ar­við­tali Mannlífs í fyrra­vor. Það við­tal má lesa hér.

Þetta tók mig út úr skel­inni minni.

Þar segir meðal ann­ars: „Missir mótar mann alltaf en svo er bara að velja hvernig það mótar mann. Þetta gerði mig sjálf­stæð­ari, sterk­ari og ákveðn­ari en um leið, hrædda en auð­mjúka fyrir líf­inu. Þetta tók mig út úr skel­inni minni og ég neydd­ist til þess að taka pláss, hafa hátt og gera mitt besta til þess að nýta það til góðs. Sorgin er svo fal­legt fyr­ir­bæri eins skringi­lega og það hljómar. Þessar hráu til­finn­ingar neyða mann til að horfast í augu við sjálfan sig og velja hvernig maður ætlar að nýta hana sem kraft. Mér finnst vera svo mik­il­vægt að leyfa sér að finna allar til­finn­ing­arnar. Hver og einn syrgir á sinn hátt og engin leið er rétt­ari en önnur. Það er samt þannig að maður er oft svo­lítið að syrgja fram­tíð­ina svo það er ný sorg sem fylgir hverju skrefi. Mamma og pabbi voru ekki hér þegar ég eign­að­ist barn, þau sáu mig ekki útskrif­ast, þau verða ekki til staðar ef ég gifti mig einn dag­inn og hver mun þá leiða mig upp að alt­ar­inu? Svo eru þau ein­fald­lega að missa af barna­börn­unum sínum og því sem maður er stolt­astur af.“

Áfallið og sorgin hefur áhrif á Brynju sem stjórn­mála­mann og segir hún að svo sé sér­stak­lega þegar unnið er að mál­efnum barna. „Ég er einmitt að fara að leiða starfs­hóp um for­varnir og við­brögð við áföllum í lífi barna og ég er svo þakk­lát fyrir það tæki­færi. Þetta verk­efni er svo þarft og ég hlakka mikið til að kljást við þetta verk­efni með öllu því fag­fólki sem mun skipa hóp­inn með mér.“

Brynja hefur und­an­farin ár verið einn af eig­endum Extra­lopp­unnar þar sem notuð föt eru seld. Hvað gerir hún svo í frí­tím­anum? Hver eru áhuga­málin? „Þau eru aðal­lega bara
að hanga með vinum. Annars elska ég að smakka nýtt nammi ef það getur talist sem
áhuga­mál. Svo reyni ég að hreyfa mig eitt­hvað af og til þó það gangi brös­ug­lega núna í
kosn­inga­bar­átt­unni. Ég elska að ferð­ast, hitta góða vini og spila og svo auð­vitað er alltaf
gaman að ferð­ast og skapa minn­ingar. Svo er alltaf gaman að skella sér á skíði á vet­urna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina