Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Brynja Dan um kynþáttaníð á Íslandi: „Negrarnir inn að aftan!“

Áhrifavaldurinn Brynja Dan Gunnars­dóttir skipar annað sæti á lista Framsóknar­flokksins í Reykjavík norður í Alþingis­kosningum nú í haust, en Brynja er með BS-gráðu í rekstrar­verkfræði og rekur eigið fyrirtæki samhliða því að sitja í stjórn Barna­heilla. Nýverið tók þessi þrótt­mikla unga kona svo sæti í stjórn Íslenskrar ættleiðingar en sjálf var Brynja ættleidd frá Sri-Lanka skömmu eftir fæðingu.

Í einlægu og áhrifa­miklu helgar­viðtali við Mannlíf ræðir Brynja meðal annars kynþátta­fordóma á Íslandi og segir þannig hafa verið sérstakt að alast upp hér á landi sem ættleidd dóttir og stúlka með dekkri húð en flestir jafn­aldrar hennar. Hún segist fagna fjöl­breyti­leikanum og taka því fagnandi þegar fólk spyrji hvaðan hún er og vilji fræðast og læra. Henni þyki það alls ekki móðgandi.

Fólk hefur spurt mig hvort það megi koma við til dæmis hárið á mér og húð­ina og ég skil það svo vel. Ég hef alveg viljað snerta til dæmis afró­hár því það er eitt­hvað sem ég er ekki með og mér finnst það vera fal­legt; mann langar að snerta til að finna eitt­hvað sem er manni fram­andi og læra.

Þó hefur þessi vilja­sterka unga athafna­kona fengið sinn skerf af fordómum og neikvæðu áreiti hér á landi vegna litar­háttar síns og er einlæg í frásögn sinni en hún varð meðal annars fyrir þeirri hörmulegu reynslu að íþrótta­kennari nokkur réðist gegn henni með orðum í skóla­ferðalagi og krafðist þess að Brynja og samnemandi hennar tækju bæði 100 armbeygjur vegna litar­háttar.

Hann tók okkur tvö dökku fyrir og lét okkur gera 100 arm­beygjur. Ég gat það ekki þá og ekki nú en bekkj­ar­fé­lagar mínir voru fljótir að rísa upp á aft­ur­fæt­urna okkur til varnar og þessi kenn­ari var lát­inn fara eftir þetta atvik.

Þá minnist Brynja þess að vera vísað úr röð á skemmtistað en dyra­vörðurinn kallaði níðyrði yfir mann­fjöldann og átti þar við Brynju sem lét sér fátt um finnast.

Mér var einu sinni sagt að fara inn bak­dyra­megin á skemmti­stað; „Negrarnir inn að aftan!“ var kallað yfir röð­ina. Ég svo sem tók það ekki til mín þó við­kom­andi hafi vissu­lega verið að tala við mig en ég er ekki svört og mér fannst það lýsa fáfræði hans meira en eitt­hvað annað.

Helgar­viðtal MANNLÍFS við Brynju má lesa HÉR

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur