Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Flóran Garden Bistro: „Þetta er einfaldlega töfrandi staður“

Flóran Garden Bistro: „Þetta er einfaldlega töfrandi staður“
Marentza Poulsen

Veit­inga­stað­ur­inn Flóran Garden Bistro í Grasa­garði Reykja­víkur var opn­aður fyrir 25 árum.

„Þetta var hug­mynd sem kom frá garð­yrkju­stjóra Reykja­vík­ur­borgar, Jóhanni Pálssyni, en honum fannst vanta kaffi­hús í Grasa­garð­inn eins og oft má finna í sam­bæri­legum görðum erlendis og var leitað til mín,“ segir Marentza Poulsen. „Mér fannst þetta spenn­andi og fannst þetta vera eitt­hvað sem ég gæti gert svona sem hlið­ar­starf, af því að ég var á þessum tíma að vinna tölu­vert fyrir Gest­gjafann. En áður en þessu fyrsta sumri lauk hafði ég þurft að ráða til mín starfs­mann og var nokkuð ljóst að fólk kunni vel að meta þessa starf­semi. Flóran hafði mikil og góð áhrif á mann­lífið í garð­inum og í dag er þetta afar vin­sælt kaffi­hús.“ Flóran er opin út maí­mánuð frá kl. 10-18 en frá 1. júní og fram á haust verður opið til kl 21.

„Við erum fyrst og fremst undir skand­in­av­ískum áhrifum þar sem ég er fædd og upp­alin í Færeyjum og lærði mitt fag í Danmörku. Þá erum við einnig með heil­mikla mat­jurta­ræktun og leggjum áherslu á ein­faldan og hreinan mat þar sem gott hrá­efni er lyk­il­at­riði.

Við höfum í gegnum tíð­ina ræktað tölu­vert af okkar eigin græn­meti, krydd­jurtum og æti­blómum. Þetta er auð­vitað svo­lítið mis­jafnt milli ára, fer eftir tíð­ar­fari og öðrum aðstæðum, en mér hefur þótt þetta mik­il­vægur þáttur í starf­inu og verið mér mjög lær­dóms­ríkt. Í Grasa­garð­inum starfar fært fag­fólk sem hefur stutt mig vel og ég hef getað leitað til og lært mikið af. Það er ég afar þakk­lát fyrir.“

Marentza segir að það hafi verið mark­mið hennar að skapa vin í borg­inni, róandi og gef­andi umhverfi sem heldur vel utan um fólkið og lætur því líða vel. „Þá er mik­il­vægt að mat­ur­inn og umhverfið spili vel saman svo úr verði stemm­ing sem fólk upp­lifir á jákvæðan og gef­andi hátt. Þetta virð­ist hafa virkað því stað­ur­inn hefur vaxið jafnt og þétt þessi 25 ár sem eru liðin frá því að ég opn­aði Flóruna fyrst. Fólk kemur aftur og aftur og það er ein­stak­lega gef­andi að finna það á hverju vori, að fólk hefur verið að bíða eftir því að við opnum. Það er mjög ánægju­legt.“

Garð­skál­inn, þar sem Flóran er stað­sett, er fyrst og fremst plöntu­safn og segir Marentza að það séu mikil for­rétt­indi að fá að reka veit­inga­stað í þess háttar umhverfi. „Ég er fyrst og fremst að þjón­usta Grasa­garð­inn; gróð­ur­inn og vel­ferð hans eru í fyr­ir­rúmi, en á sama tíma hefur gróð­ur­inn ein­stök áhrif á fólkið sem nýtur þess að ganga um garð­inn og koma við í Flórunni. Þetta er mik­ill sælu­reitur. Mér finnst ein­stök til­finn­ing að mæta á morgn­ana í kyrrð­inni, staldra við og hlusta á fugla­söng­inn. Það er engu líkt. Í góðu veðri kjósa margir að sitja úti, en úti­svæði Flór­unnar er mjög gott og fal­legt, en það er mikið skjól og veð­ur­sæld í garð­inum.  Ég hlakka til á hverju vori að opna Flóruna þrátt fyrir að ég sé oft orðin ansi lúin á haustin eftir mikla törn. Fjöl­breyti­leik­inn í gróðr­inum, ilm­ur­inn í loft­inu í bland við góða mat­ar­upp­lifun: Þetta er ein­fald­lega töfr­andi staður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag