Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Páll segir vinstrimenn vilja fylla landið af útlendingum – „Fyrirlíta íslenska alþýðu“

Páll segir vinstrimenn vilja fylla landið af útlendingum – „Fyrirlíta íslenska alþýðu“
Páll Vil­hjálms­son kenn­ari og blogg­ari.

Páll Vil­hjálms­son, blaða­maður og kenn­ari, segir í nýrri blogg­færslu sinni að útlend­ingar sam­eini íslenska vinstri­menn. „Vinstri­menn nenna ekki að bíða eftir næstu móðu­harð­indum til að kom­ast yfir lands­stjórn­ina. Þrauta­ráðið er að fylla landið útlend­ingum. Skipta um þjóð í land­inu,“ skrifar Páll og segir þjóð­ina afþakka for­ræði vinstri­manna. Mannlíf fjall­aði í gær um gagn­rýni séra Davíðs Þórs á Facebook-síðu sinni en kall­aði hann rík­is­stjórn­ina fas­ista­stjórn. Páll segir prest­inn tóna boð­skap­inn með færslu sinni. „Vinstriprest­ur­inn Davíð Þór, spaug­ari á yngri árum og rit­stjóri klám­rits, tónar boð­skap­inn: þeir sem efast um ágæti yfir­tölu útlend­inga á Fróni fari beina leið til hel­vítis,“ skrifar Páll en færsl­una endar hann á orð­inu: Amen.
Blogg­færslu Páls má lesa í heild hér að neðan.

„Útlend­ingar sam­eina íslenska vinstri­menn. Vinstri­menn fyr­ir­líta íslenska alþýðu, menn­ingu hennar og lífs­við­horf. Mottóið er ,,allt er betra en íslenskt.“

Andúðin liggur í erfða­meng­inu. Þjóðin afþakkar for­ræði vinstri­manna og hefur allaf gert. Flokkar þeirra skipta um nafn og kenni­tölu, ýmist fjölgar þeim eða fækkar, en alltaf segir almenn­ingur nei, takk.

Aðeins einu sinni í Íslands­sög­unni fá vinstri­menn meiri­hluta, þegar þjóðin var hug­stola eftir svo­kallað hrun. Á valda­tíð Jóhönnu­stjórn­ar­innar lék allt á reiði­skjálfi. Stjórn­ar­skráin var í upp­námi, full­veld­inu var nærri fargað í þágu útlend­inga í Brussel og fjár­mála­kerfið var afhent útlend­ingum á silf­ur­fati.

Vinstri­menn nenna ekki að bíða eftir næstu móðu­harð­indum til að kom­ast yfir lands­stjórn­ina. Þrauta­ráðið er að fylla landið útlend­ingum. Skipta um þjóð í land­inu.

Vinstriprest­ur­inn Davíð Þór, spaug­ari á yngri árum og rit­stjóri klám­rits, tónar boð­skap­inn: þeir sem efast um ágæti yfir­tölu útlend­inga á Fróni fari beina leið til hel­vítis.

Kjöft­ugum rat­ast þar óvilj­andi satt orð í munn. Vinstri­mönnum er hel­víti hug­stæð­ara en himna­ríki. Gúlagið fremur en grænir hagar.

Amen.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina