Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Séra Davíð Þór kallar ríkisstjórn Katrínar fasistastjórn: „Þau eru einfaldlega sek eins og syndin“

Davíð Þór Jónsson
Davíð Þór Jónsson

Séra Davíð Þór Jónsson, prestur í Laugar­neskirkju gagnrýnir Ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur harðlega í nýrri Facebook-færslu rétt í þessu. Þess ber að geta að presturinn og forsætisráðherran áttu í sjö ára ástar­sambandi á sínum tíma.

Eins og alþjóð veit stefnir ríkis­stjórnin á að senda um 300 flótta­menn úr landi á næstunni og hefur það fallið vægast sagt illa í kramið hjá Íslendingum. Davíð Þór kallar ríkis­stjórnina fasista­stjórn í færslu sinni um málið og sakar hana um lygar.

„Í fréttum er það helst að fasista­stjórn VG hefur ákveðið að míga á Barna­sáttmála SÞ, sem hún þó lýgur því að hún hafi “lögfest” á Íslandi, en þar kemur skýrt fram að hann gildi um öll börn (þ.e. einstaklinga yngri en 18 ára) í lögsögu hvers ríkis – óháð því með hvaða hætti þau komu þangað. Þar er kveðið á um að allar ákvarðanir sem varði heill og hamingju barna beri að taka með hagsmuni þeirra að leiðar­ljósi. Samt á að senda fjölda barna úr langþráðu öryggi og skjóli hér á Íslandi, þvert á það sem þeim er fyrir bestu, til að hafast við í fullkomnu reiðu­leysi á götum úti á Grikk­landi, jafnvel þótt Flóttamanna­hjálp SÞ hafi af mannúðar­ástæðum lagst eindregið gegn því að fólk sé flutt þangað.“

Þá talar Davíð um málsvörn stjórnarinnar sem hann segir „innihalds­laust froðu­snakk“.

„Til að bíta höfuðið af skömminni er máls­vörnin fólgin í innihalds­lausu froðu­snakki um “heild­stæða stefnu­mótun í málflokknum” og því að væna formann Rauða krossins um lygar þegar hún lýsir ástandinu þar. Þetta er í beinni mótstöðu við það hvernig VG liðar töluðu um þessi mál þegar þeir voru í stjórnar­andstöðu. Þinglið og ráðherrar VG eru ekki lengur bara meðsek um glæpi þessarar ríkis­stjórnar gegn mannúð og góðu siðferði, þau eru einfald­lega sek eins og syndin. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og vegtyllur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra