Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Áfram grafið í stærsta landnámsskála sem fundist hefur: „Fjöldi perlna er alveg ógnvænlegur“

Áfram grafið í stærsta landnámsskála sem fundist hefur: „Fjöldi perlna er alveg ógnvænlegur“
Horft til vest­urs af miðju upp­graftr­ar­svæð­inu. Skál­arnir stóru eru í gryfj­unni lengra í burtu. Mann­virkin nær eru af óþekktri gerð. Mynd: Aðsend

Hinir ýmsu gripir hafa fund­ist við upp­gröft á Stöð á Stöðv­ar­firði í tveimur mis­gömlum land­náms­skálum. Eldri skál­inn er langstærsti land­náms­skáli sem fund­ist hefur á Íslandi en hann er tæp­lega 44 metrar á lengd.

Það var fyrir nokkrum árum sem Dr. Bjarni F. Ein­ars­son forn­leifa­fræð­ingur kom auga á þústir í tún­inu sunnan og vestan við kirkju­g­ar­inn í Stöð. Taldi hann þar vera merki um land­náms­skála. Reyndist það rétt hjá Bjarna en hann hefur stjórnað upp­greftri þar á hverju sumri síðan.

Dr. Bjarni F. Ein­ars­son

Upp­graft­ar­tím­inn hefur verið ansi knappur frá upp­hafi en þó sér­stak­lega í ár en aðeins verður grafið í 3. vikur í sumar. Lengt upp­graft­ar­tím­ans fer meðal ann­ars eftir styrk­veit­ingum frá Minja­stofnun Íslands.

Von á dönskum fræðimönnum

Heima­menn á Stöðv­ar­firði hafa verið dug­legir að aðstoða Bjarna og hóp hans á allan þann máta sem hægt er enda er um að ræða fyrstu land­náms­skála sem fund­ist hafa á Aust­ur­landi og Stöð­firð­ingar hæst ánægðir með fund­inn.

Á þess­ari yfir­lits­mynd af rann­sókn­ar­svæð­inu í Stöð sést umfang þess vel. Skál­arnir eru í stóru gryfj­unni (annar undir hinum) en í upp­gröfnu svæð­unum fyrir miðju og lengst til hægri, eru mann­virki sem ekki er enn vitað hvaða hlut­verki gegndu.

Aðspurður um það hvernig hefur gengið að grafa í sumar svarar Bjarni því til að þau séu aðeins nýbyrjuð, „Við erum auð­vitað ekki búin að grafa í marga daga, við erum að hreinsa þarna fram og reyna að átta okkur á því hvað þetta kunni að vera á svæðum austar af skál­unum. Ég veit ekk­ert um það ennþá, ein­hverjar vinnslu­svæði eða Activity zones eins og þetta heitir á góðri íslensku. Við erum að und­ir­búa eldri skál­ann fyrir komu danskra fræði­manna sem ætla að taka haug af sýnum til DNA grein­ingar. Jarð­vegs­sýnum. Og þá er allt DNA greint, pöddur, bakt­er­íur, fána og flóra.“

Lang ríkasti skáli Íslands

En hafa skál­arnir verið ald­urs­greindir?

„Já, já. Ennþá held ég því fram að yngri skál­inn sé hefð­bund­inn land­náms­skáli höfð­ingja og hann liggur ofan á þeim eldri, svona eins og skál á skál ofan á eldri skál­ann sem er þá eldri. Sá skáli er frá ára­bil­unum 800-870 og lík­leg­ast í neðra róf­inu.“

En hverjir eru merki­leg­ustu grip­irnir sem fund­ist hafa í Stöð að mati Bjarna?

„Mér finnst merki­leg­ustu grip­irnir þeir sem fólk hefur engan áhuga á en það eru jaspis, verk­færin og stein­skífur en skál­inn í Stöð er lang rík­asti skál­inn á Íslandi, sem fund­ist hefur. Fjöldi perlna er alveg ógn­væn­legur, við erum að detta í svona 190 perlur sam­tals. Svo höfum við fundið silfur og brýni og smá gull meira að segja. Og svo arab­ísk mynt, tveir róm­verskir pen­ingar, sauða­klippur, tveir skutlar, exi og ég er örugg­lega að gleyma ein­hverju,“ sagði Bjarni hress með árang­ur­inn.

Hér fyrir neðan má sjá lítið brot af því sem fund­ist hefur í Stöð.

(Gamla) brýnið.
Skutull (eða skötull eins og við Aust­firð­ingar segja).
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil