Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Íslenskar stúlkur samþykktu að gerast burðardýr – 20 ára fangelsi í Bandaríkjunum

Íslenskar stúlkur samþykktu að gerast burðardýr – 20 ára fangelsi í Bandaríkjunum

Á Íslandi eru fimm fang­elsi sem vistað geta alls 136 fanga og er þar með talið fangar í afplánun sem og í gæslu­varð­haldi. Inn­an­rík­is­ráð­herra fer með yfir­stjórn fang­els­is­mála, en Fang­els­is­mála­stofnun sér um fulln­ustu refs­inga ásamt því að hafa umsjón með rekstri fang­elsa. Refsing og afplán­un­ar­tími fer eftir broti og lögum þess lands sem brotið átti sér stað og getur refs­ingin vissu­lega verið mjög ólík á milli landa fyrir sömu eða svipuð brot.

Árið 2013 sátu nær tveir af hverjum þremur Íslend­ingum í fang­elsi erlendis í Danmörku. Á þeim tíma voru 26 Íslend­inga að finna bak við lás og slá í átta ríkjum, 24 karl­menn og tvær konur og voru fang­arnir tíu fleiri en þeir voru árið 2011.

Íslenskar stúlkur teknar í Prag fyrir kókaínsmygl

Tvær átján ára íslenskar stúlkur voru hand­teknar í Prag, höf­uð­borg Tékk­lands, í nóv­em­ber 2012. Þær voru með átta kíló af kóka­íni í far­angri sínum. Þær höfðu flogið til Prag frá Sao Paulo í Brasilíu, þar sem þær sam­þykktu að ger­ast burð­ar­dýr. Fíkni­efnin voru afar hag­an­lega falin í far­ang­urstösku stúlkn­anna. Upp­haf­lega stóð til að þær gleyptu fíkni­efnin og smygl­uðu þeim á milli landa inn­vortis.

Þær milli­lentu í München í Þýska­landi og í Prag voru þær hand­teknar með mikið magn af kóka­íni í fórum sínum. Þær voru svo síðar úrskurð­aðar í sjö mán­aða gæslu­varð­hald.

   Afar hörð viðurlög í Tékklandi

Viðurlög við fíkni­efna­smygli eru afar hörð í Tékk­landi og voru þær dæmdar í sjö og sjö og hálfs árs fang­elsi. Áfrýj­un­ar­dóm­stóll mild­aði refs­ing­una niður í fjögur og hálft ár. Fram að því höfðu stúlk­urnar setið inni í sitt­hvoru fang­els­inu í Prag, en eftir að dóm­arnir voru mild­aðir voru þær báðar fluttar í Swětla-fang­elsið, sem er í um 200 kíló­metra fjar­lægð frá höf­uð­borg­inni. Áður voru þær hvor í sínu fang­els­inu.

„Dómarinn tók til­lit til þess hversu ungar þær eru og að þær hefðu ekki gert sér grein fyrir því hvað þær voru að gera. Þessi dóm­ari var mun til­lits­sam­ari en fyrri dóm­ari,“ sagði Þórir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi aðal­ræð­is­maður Íslands í Tékk­landi.

„Nú fara þær í að sækja um flutn­ing til Íslands og þurfa þær að gera það sjálfar. Málið er allt í far­vegi en þetta tekur alltaf vissan tíma,“ sagði Þórir í sam­tali við Vísi, en þær þurftu að afplána tvo þriðju hluta dóms­ins áður en þær gátu sótt um náðun.

  Framsalsbeiðni stúlknanna

Í apríl 2014 byrj­aði svo vinnan að fá þær fram­seldar til Íslands. Á Íslandi er í gildi Evr­ópu­samn­ingur um fram­sal fanga og stóð alltaf til að fá stúlk­urnar fram­seldar til Íslands til að afplána það sem eftir var af dómnum.

Að sögn Þóris Gunn­ars­sonar, fyrr­ver­andi ræð­is­manns Íslands í Tékk­landi, var unnið að því að gera verk­samn­ing við lög­fræð­ing stúlkn­anna um fanga­flutn­ing­ana. Samkvæmt heim­ildum Vísis á þessum tíma, strand­aði við­ræð­urnar á pen­inga­þætti. Stúlk­urnar þurftu að greiða fram háan lög­fræði­kostnað svo form­legt ferli gat haf­ist.

Þórir segir Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hafa verið vel upp­lýst um stöðu mála og und­ir­búið undir að fá fram­sals­beiðni stúlkn­anna inn á sitt borð. Beiðnin var afgreidd í sam­vinnu við lög­reglu og fang­els­is­mála­stofnun.

Formleg fram­sals­beiðni stúlkn­anna var send inn­an­rík­is­ráðu­neyti Tékk­lands í júní byrjun árið 2014 og hófst fram­sals­ferlið viku síðar. Það stóð allan tím­ann til að stúlk­urnar yrðu fram­seldar til Íslands til að afplána það sem eftir var af dómnum.

„Þær eru komnar í annað fang­elsi, um 160 km frá Prag og byrj­aðar að vinna í súkkulaði­verk­smiðju. Ég tal­aði við lög­mann þeirra í dag og þær hafa það ljóm­andi fínt og eru ánægðar,“ sagði Þórir um stöðu stúlkn­anna á þeim tíma.

Í des­em­ber 2014 voru stúlk­urnar komnar aftur til Íslands og voru í fyrstu vistaðar í kvenna­fang­els­inu í Kópavogi. Stúlk­urnar tvær voru aðeins lít­ill hluti þeirra Íslend­inga sem sátu í fang­elsum á erlendri grundu á þessum tíma.

Íslendingar handteknir hinum megin á hnettinum

Árið 2013 voru þó nokkuð margir Íslend­ingar vistaðir í rétt­ar­kefum víðs­vegar um heim­inn

Þrír Íslend­ingar voru vistaðir í Suður-Ameríku. Þá greindi RÚV frá því að íslenskur karl­maður á þrí­tugs­aldri hefði verið hand­tek­inn á flug­vell­inum í Buenos Aires í Argent­ínu með fjögur kíló af kóka­íni árið 2013. Bætist hann í hóp Íslend­inga sem voru hand­teknir í Suður-Ameríku fyrir fíkni­efna­smygl. Tveir voru hand­teknir í Brasilíu, annar þeirra var hand­tek­inn í Rio de Janeiro, en sá var dæmdur til 22 ára fang­els­is­vistar fyrir til­raun til að smygla 46 þús­und e-töflum úr landi. Þá var annar Íslend­ingur í far­banni í Brasilíu á sama tíma.

Tveir Íslend­ingar á þrí­tugs­aldri voru hand­teknir í Ástralíu, en þeir voru teknir með þrjú kíló af kóka­íni og var refs­ingin 10 ára fang­elsi við slíku broti.

Einn var í fang­elsi á Spáni og annar í Noregi, grun­aður um morð.

20 ára fangelsi í Bandaríkjunum

Árið 2013 hafði Geir verið sá Íslend­ingur sem lengst hefur setið í fang­elsi í Banda­ríkj­unum, en á þeim tíma hafði hann afplánað sextán ár af tutt­ugu ára dómi sem hann hlaut fyrir lík­ams­árás og rán í Virginíu undir lok síð­ustu aldar. Fram kom í umfjöllun Kast­ljóss um mál hans á þeim tíma að lík­lega hefði Geir ein­ungis fengið tveggja eða þriggja ára fang­els­is­dóm hefði árásin átt sér stað í New York. Fórn­ar­lambið var orðum prýddur her­for­ingi í Banda­ríkja­her. Banda­rískur félagi Geirs sem réðst með honum á mann­inn fékk fimmtán ára dóm.

Íslendingar framseldir frá Íslandi

Fjórir Íslend­ingar voru úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald, þetta sama ár, árið 2013, vegna rann­sóknar umfangs­mik­ils e-töflu- og kóka­íns­smygls. Þrír þeirra höfðu verið fram­seldir frá Íslandi vegna máls­ins en slíkt fram­sal á Íslend­ingum til útlanda vegna lög­brota hafa verið mjög fátíð.

Einn af þessum Íslend­ingum var árið 2013 dæmdur til tólf ára fang­els­is­vistar í Danmörku. Hann var höf­uð­paur­inn í til­raunum til að smygla um 70 kílóum af amfetamíni til Dan­merkur, frá Spáni. Alls voru ell­efu ákærðir í því máli, þar af sex Íslend­ingar. Tveir af þeim voru dæmdir til tíu ára fang­els­is­vistar vegna máls­ins. Annar þeirra hafði sama ár verið dæmdur í átta ára fang­elsi fyrir smygl á fimm kílóum af amfetamíni. Þrír Íslend­ingar til við­bótar voru dæmdir vegna máls­ins, einn af þeim fékk tíu ára fang­els­is­dóm og tveir af þeim fengu hvor um sig sex ára dóm. Sjötti Íslend­ing­ur­inn var úrskurð­aður í geð­rann­sókn áður en refs­ing var ákveðin.

Sama ár voru tveir Íslend­ingar hand­teknir með fimm og hálft kíló af amfetamíni í Kaup­manna­höfn. Þeir náð­ust með ævin­týra­legum hætti. Lög­reglu­maður á frí­vakt rak augun í gulan hatt á höfði manns í umferð­inni og mundi eftir að hafa séð hatt­inn í  eft­ir­lits­mynda­vél.

Afþakka afskipti íslenskra yfirvalda

Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, vegna fyr­ir­spurna um stöðu Íslend­inga í erlendum fang­elsum kom fram að þeir sem voru í haldi vegna fíkni­efna­brota, væru 23, en þrír vegna ofbeld­is­brota. Þó er ekki víst að um tæm­andi upp­taln­ingu hafi verið að ræða. Þetta voru þeir fangar sem íslenskum stjórn­völdum hafði verið til­kynnt um. Ein­hverjir kunna að hafa kom­ist í kast við lögin erlendis án þess að óska eftir aðstoð íslenskra stjórn­valda.

Í frétt á RÚV kom fram að þetta væri mikil fjölgun frá því sem var fyrir tveimur árum áður. En í des­em­ber 2011 var vitað um 16 íslenska fanga í erlendum fang­elsum.

Ekki er þó úti­lokað að fleiri Íslend­ingar hafi verið á bak við lás og slá erlendis þar sem dæmi eru um að þeir sem hljóta dóma erlendis vilji ekki að haft sé sam­band heim og afþakki afskipti íslenskra yfir­valda. Auk þeirra geta verið ein­stak­lingar í erlendum fang­elsum með tvö­falt rík­is­fang og hafa hlotið dóma án þess að það sé til­kynnt hingað til lands.

Heim­ildir:

Inn­lendar fréttir. 17. októ­ber 2013. 26 Íslend­ingar í fang­elsi erlendis: Lang­flestir vegna fíkni­efna­brota. Vísir.

Innlent. 17. októ­ber. 2013. Íslend­ingum fjölgar í erlendum fang­elsum. RÚV.

Innlent. 17. októ­ber. 2013. 26 Íslend­ingar í fang­elsi erlendis. Morg­un­blaðið.

Meg­in­lög­gjöf á þessu sviði eru lög um fulln­ustu refs­inga nr. 49/2005. Er þar fjallað um stjórn og skipu­lag fang­els­is­mála, atriði sem varða fanga­vist­ina og um rétt­indi fanga og sam­fé­lags­þjón­ustu. En einnig snerta almenn hegn­ing­ar­lög nr. 19/1940, Evr­ópu­samn­ingur um fram­sal saka­manna og Samn­ingur um flutn­ing dæmdra manna mál­efni fanga.

Sunna Karen Sig­ur­þórs­dóttir. 25. febr­úar 2014. Dómur stúlkn­anna í Prag styttur. Vísir.

Þór­hildur Þor­kels­dóttir. 12. apríl 2014. Unnið að því að fá stelp­urnar heim. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag