Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kventónskáld í fararbroddi á tónleikum í Hörpu um helgina

Kventónskáld í fararbroddi á tónleikum í Hörpu um helgina

Tón­list­ar­há­tíðin Seigla fer fram í Hörpu dag­ana 5.-7. ágúst næst­kom­andi.

Kammer- og söng­tón­list verða í far­ar­broddi dag­skrár hátíð­ar­innar þetta árið. Alls munu sextán flytj­endur koma fram á fimm tón­leikum í Eld­borg­ar­sal Hörpu en auk þeirra verða fluttir tvennir tón­leikar í Hörpu­horni en hinir síð­ar­nefndu verða opnir almenn­ingi án end­ur­gjalds.

Dagskrá hátíð­ar­innar má sjá hér á síðu Seiglu festi­vals og á vef­síðu Hörpu.

Snið tón­leik­anna verður með óhefð­bundnum hætti að því leyti að Salnum verður snúið við. Áhorf­endur sitja á pöllum á sviði Eld­borgar og hafa þannig sal­inn sjálfan í bak­grunni.

Af stórum hluta verða leikin verk eftir tón­skáld sem eru konur, til að mynda Amy Beach, Clara Schumann og Lili Boulanger

Upp­hafs­maður hátíð­ar­innar er Erna Vala Arn­ar­dóttir, 26 ára píanó­leik­ari hefur komið fram víða í Evrópu og Banda­ríkj­unum síð­ustu ár. Hún hefur unnið til fjölda verð­launa en þar má helst nefna heið­urs­orð­una Hvítu Rósina frá for­seta Finn­lands, Sauli Niinistö, og fyrstu verð­laun í efsta flokki EPTA píanó­keppn­innar á Íslandi.

Þá var hún ein verð­launa­hafa Ungra ein­leik­ara árið 2014. Erna Vala hefur leikið ein­leik með bæði Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands og Sin­fón­íu­hljóm­sveit Áhuga­manna. Síðustu miss­eri hefur hún tekið virkan þátt í tónlist­arlífi á Íslandi, á síð­asta ári hefur hún meðal ann­ars leikið ein­leik­stónleika við Tíbrá, Menning á mið­vikudögum og Beethoven 251 tónleik­araðir Salarins í Kópavogi, verið gesta­lista­maður Við Djúpið, og leikið ein­leiks­tón­leika í Stykk­is­hólmi og Akureyri.

Hún hefur komið fram sem gesta­lista­maður ýmissa hátíða erlendis, til dæmis Arctic Ini­ti­ative í Washington D.C., Albignac Piano Festival í Frakk­landi og Trinity Laban sam­tíma­lista­há­tíðar í London. Erna Vala stofn­aði menn­ing­ar­fé­lagið Íslenska Schumannfélagið sum­arið 2020 og starfar sem for­maður þess. Erna Vala er stofn­andi og list­rænn stjórn­andi tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Seiglu sem haldin er árlega í byrjun ágúst í Hörpu.

Erna Vala lauk meistara­gráðu í píanó­leik við Síbelí­usaraka­dem­í­una í Helsinki hjá Hömsu Juris vorið 2019. Hún hóf dokt­ors­nám sama ár við USC Thornton School of Music í Kali­forníu sem Ful­bright styrk­þegi undir hand­leiðslu Berna­dene Blaha. Áður lauk hún bakkalár­gráðu og diplóma í píanó­leik við Lista­há­skóla Íslands hjá Peter Máté.

Erna Vala nýtur lista­manna­launa um þessar mundir og næsta vor mun hún útskrif­ast með meistara­gráðu í hljóð­færa­kennslu frá Lista­há­skóla Íslands.

Í spil­ar­anum hér að neðan má svo sjá brot úr verk­inu „Hall­elu­jah Junction“ sem flutt verður á hátíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur