Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Drífa Snædal: „Ætli ég hafi ekki verið að undirrita dauðayfirlýsingu mína“

Drífa Snædal: „Ætli ég hafi ekki verið að undirrita dauðayfirlýsingu mína“
Drífa Snædal

„Það var svo sem ekk­ert ákveðið sem gerð­ist,“ segir Drífa Snædal í við­tali við Reyni Trausta­son en hún til­kynnti í dag afsögn sína sem for­seti ASÍ. „Ég er búin að vera að velta því fyrir mér síð­ustu mán­uði hvort ég væri til­búin til að gefa kost á mér aftur og ég svo sem hugs­aði það þegar ég bauð mig fram á sínum tíma; ég hugs­aði þetta til fjög­urra til sex ára svona með sjálfri mér án þess að gefa það út. Svo hugs­aði ég hvort ég ætti að bjóða mig fram aftur og það var alls ekk­ert víst að ég næði kjöri en ég hefði þurft að vera til­búin til að ná kjöri og vinna áfram í tvö ár ef ég biði mig fram aftur. Og ég var bara ekki til­búin til þess. Þetta er búið að vera erfitt og flókið og dregið úr mér svo­lítið kraft og mátt. Og þá hugs­aði ég og ég get lýst því yfir núna að ég ætli ekki að bjóða mig fram og þá er ég ein­hvern veg­inn umboðs­laus og hringlandi í tvo mán­uði fram að þingi. Og það var heldur ekki ein­hver staða sem mig lang­aði að vera í. Þannig að mér fannst hrein­leg­ast að segja af mér.“

Er þetta ekki sárs­auka­full ákvörðun?

„Ekki þegar búið er að taka hana. Það sem er sárs­auka­fullt í þessu er að mér finnst ég að ein­hverju leyti vera að bregð­ast stuðn­ings­mönnum mínum. Og það er sárt. Af því að það er mjög mikið af fólki sem ég átti í mjög góðu sam­starfi við og mér þykir vænt um og vin­átta hefur mynd­ast í þessum störfum.“

Ekki samherji Gylfa

Þetta eru stór tíð­indi. Það er ólga. Það er vænt­an­lega Sólveig Anna, Ragnar og Vil­hálmur á móti rest.

„Það er nú ekki alltaf kýr­skýrt og það sem var alltaf verið að reyna að fanga var ein­hver mál­efna­legur ágrein­ingur. Hann liggur ekki alveg ljóst fyrir. Ég hef lýst þessu sem valda­banda­lagi umfram annað og hafa verið að skýr­ast þær línur. Ég hef svo sem ekki skil­greint mig með ein­hverri blokk umfra aðra. Mitt við­horf var þannig þegar ég bauð mig fram fyrir fjórum árum síðan að ég sótt­ist ekki eftir stuðn­ingi frá neinum. Ég hef reynt að koma í veg fyrir að vera hluti af ein­hverjum blokkum ein­hvers staðar.“

Sólveig Anna eða Ragnar sagði að þú værir hluti af ein­hverjum valda­kjarna Gylfa, fyrr­ver­andi for­seta.

Ég held að fólk hafi alveg orðið vart við það að það kom nýr tónn með mér inn í for­ystu ASÍ.

„Mér finnst það alveg ótrú­lega lang­sótt. Ég held að fólk hafi alveg orðið vart við það að það kom nýr tónn með mér inn í for­ystu ASÍ. Ég var ekki sam­herji Gylfa á neinn hátt. Þannig að mér fannst þetta frekar lang­sótt skýr­ing.“

Þessi valda­blokk; þetta er ein­hver blokk, Vil­hjálmur, Ragnar og Sólveig. Hversu mikið afl hafa þau á þingi ASÍ?

„Það er ekk­ert alveg ljóst. Það eru margir full­trúar sem eru á þing­inu fyrir Eflingu og VR. Þeir eru ekk­ert endi­lega að greiða atkvæði sam­kvæmt ein­hverri harð­línu. Fólk er með sitt eigið atkvæði inni á þing­unum.“

Þú kannski metur það sem svo að það myndi ekk­ert lag­ast þó þú héldir áfram; það væri ennþá klofn­ingur?

„Ef ég biði mig fram þá yrði ég að vera til­búin til að halda áfram og sam­skiptin hafa verið þannig að ég ákvað að gera það ekki. Ég er nátt­úr­lega búin að vera að reyna ýmis­legt; fjölga fundum og fækka þeim, fá utan­að­kom­andi aðstoð og hitt og þetta,“ segir Drífa en með utað­kom­andi aðstoð á hún við sér­fræð­ing í sam­skiptum. Upp á að laga þau.

Þú talar svo­lítið um sam­skipti í yfir­lýs­ing­unni. Í hverju felst „ekki boð­leg sam­skipti“? Er þetta orðið svona ill­vígt og per­sónu­legt?

Þegar þú getur átt von á hrylli­legum tölvu­póstum eða ömur­legum átökum á ein­hverjum fundum trekk í trekk.

„Já, þetta er það. Ofboðs­lega per­sónu­legt. Ég held að fólk hafi séð það á yfir­lýs­ing­unni að það er komin ein­hver stemmn­ing. Fólk þorir ekki alveg að segja hug sinn af því að þá getur það orðið fyrir per­són­u­árásum. Það er ein­hver þannig stemmn­ing og þegar þú getur átt von á hrylli­legum tölvu­póstum eða ömur­legum átökum á ein­hverjum fundum trekk í trekk.“

Erum við að tala um skæt­ing?

„Skæting. Og á tíma­bili voru enda­lausar hót­anir um afsögn eða úrsögn ein­hverra stétt­ar­fé­laga úr ASÍ ef það væri ekki gert svona eða hinsegin. Þannig að þetta er búið að vera mjög óheil­brigt. Ég verð sjálf óheil­brigð við að taka þátt í þessu; maður er að taka þátt í ein­hverjum sam­skiptum sem maður er ekki sáttur við. Og á sama tíma að vera í stöðu sem for­seti þá áttu erfitt með að segja hlut­ina eins og þeir eru. Það að segja af þér gefur þér ákveðið frelsi til að tala. Það er ein­hver stemmn­ing þarna sem er alveg aga­leg og engum líður þar sér­lega vel held ég.“

Hvenær fór að bera á þessum klofn­ingi? Var ekki ágætt á milli þín, Sól­veigar og Ragnars í upp­hafi?

Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem verka­lýðs­for­ingjar segja af sér af því að það er ekki farið að kröfu þeirra um að skerða rétt­indi vinn­andi fólks.

„Jú, en ég veit ekki hvort ein­hverjir hafi átt erfitt með að sætta sig við það að ég væri í þessum stól yfir höfuð frá upp­hafi. En það var þannig þegar Covid skall á að þá héldum við marga fundi í samn­inga­nefnd ASÍ og ég setti á fundi nærri því á hverjum ein­asta degi út af þessu ástandi,“ segir Drífa og voru margar hug­myndir reif­aðar og nefnir hún þrýst­ing á að frysta launa­hækk­anir. „Síðan var það ein­dóma og mjög skyn­söm ákvörðun og nið­ur­staða samn­inga­nefndar ASÍ að standa vörð um samn­ing­ana, slá hvergi af. Þá kom í ljós að Vil­hjálmur og Ragnar höfðu verið í ein­hverjum öðrum sam­tölum hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins um að fresta hluta af líf­eyr­is­sjóðs­fram­lagi atvinnu­rek­enda til vinn­andi fólks. Og þeir voru ósáttir við nið­ur­stöðu þess­arar samn­inga­nefndar ASÍ og sögðu af sér í kjöl­farið. Vil­hjálmur var þá fyrsti vara­for­seti og Ragnar í mið­stjórn. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem verka­lýðs­for­ingjar segja af sér af því að það er ekki farið að kröfu þeirra um að skerða rétt­indi vinn­andi fólks. Þannig að það var mikið sjokk og ótrú­leg í raun­inni þessi ákvörðun þeirra.“

Misbauð svo svakalega

Svo kom upp þetta maka­lausa mál varð­andi brott­rekstur starfs­fólks á skrif­stofu Eflingar og Drífa tók mjög skýra afstöðu þar.

„Ætli ég hafi ekki verið að und­ir­rita dauða­yf­ir­lýs­ingu mína þar. Nei, ég ætla ekki að taka svona gróft til orða. Það er ekk­ert lítil ákvöðrun að tala gegn for­manni í einu stærsta aðild­ar­fé­lagi ASÍ og ákvörðun stjórnar Eflingar. Efling er stór­veldi innan ASÍ. En mér bara mis­bauð svo svaka­lega og mér fannst eins og það væri verið að skilja fólk eftir úti á ber­angri sem þyrfti stuðn­ing síns stétt­ar­fé­lags ef allt væri með felldu. Þess vegna ákvað ég að stíga svo­lítið hressi­lega til jarðar þar. Þá vissi ég að þetta yrði ekki til vin­sældar fallið víða.“

Þú hefur kannski vitað að þetta myndi kosta það að það væri heppi­legra að stíga frá þessu?

„Ég var svo sem ekki búin að setja það í sam­hengi við mína stöðu þá en bara það að sitja sem for­seti og tala gegn stjórn­ar­á­kvörðun Eflingar og eins og þegar ég svar­aði Ragnari þegar hann var búinn að skrifa svona 50 blaða­greinar um allt og ýmis­legt og svo­lítið ófók­userað um hvað þetta væri aga­legt hjá mér allt saman og ASÍ og ASÍ-báknið. Þá svar­aði ég honum og það er erfitt að sitja sem for­seti og vera að gagn­rýna for­ystu­menn í verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Og þegar Efling og ASÍ og nokkrir í við­bót leggja saman krafta sína þá eru þeir meira en helm­ingu­irnn inn­ann ASÍ.“

Síðan var bara aum­ingja­sak­pur margra í hreyf­ing­unni að for­dæma þetta ekki.

Aftur að brott­rekstri starfs­fólks Eflingar. Hvernig gat þetta gerst? „Ég skil það bara mjög illa. Ég veit að Sólveig Anna hefur gert ákveðið list­form úr því að búa til óvini og finna óvini. Það er nán­ast heill­andi að fylgj­ast með því á köflum. Síðan var bara aum­ingja­skapur margra í hreyf­ing­unni að for­dæma þetta ekki. Alger aum­ingja­skapur. Og ég fann það þegar við fórum inn á fund mið­stjórnar Alþýðu­sam­bands­ins og ég var svo sem alveg við­búin að leggja það fram við mið­stjórn ASÍ að við myndum for­dæma þetta sem mið­stjórn en ég fann það starx að ég myndi ekki hafa það í gegn. En ég fyrir mitt leyti ákvað að for­dæma þetta.“

Mikil orka í innri átök

Hver er víg­staða verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar? Er hún þannig að það sé hægt að fara í hörð átök? Eða er fólk alltaf of upp­tekið af innri átökum?

„Það fer ótrú­leg orka í innri átök sem ætti að fara annað. Nú veit ég ekki hvað ger­ist en ef fólk nær að stilla saman strengi og koma sæmi­lega sam­einað til við­ræðna þá getur það gengið vel. Ég sé ekki annað en að stjórn­völd þurfi að koma inn í þær við­ræður því að hús­næð­is­málin og efna­hags­málin eru nátt­úr­lega rosa­legur þáttur í kaup­mátt­ar­aukn­ingu og lífs­gæðum. Hvernig það tekst til er í höndum ann­arra en mín núna.“

Stundum hafa félögin farið hvert fyrir sig en svo hefur Alþýðu­sam­bandið stundum farið með umboð fyrir alla.

„Já, sér­stak­lega gagn­vart stjórn­völdum. Alþýðu­sam­bandið hefur í sjálfu sér aldrei farið með umboðið fyrir alla í því að gera stóra kjara­samn­inga. Það eru í raun­inni lands­sam­böndin hvert um sig sem gera það og í raun­inni er samn­ings­um­boð hjá hverju ein­asta stétt­ar­fé­lagi á land­inu. Svo sam­ein­ast þau. En okkar aðkoma hefur aðal­lega verið gagn­vart stjórn­völdum og stórum línum og þáttum sem hafa verið þeir sömu í ölllum kjara­samn­ingum: For­sendu­á­kvæði, trygg­ingar og eitt­hvað slíkt sem eru gegn­um­gang­andi grund­vall­ar­rétt­indi á vinnu­mark­aði. Ekki endi­lega krónu­tölu­á­kvæðin. Þannig að það hefur verið á borði ASÍ að taka stóru ákvarð­an­irnar.

Það eru ekki allir búnir að birta kröfu­gerðir; það eru ekki allir búnir að segja við ætlum að fara fram með þessa kröfu í kom­andi kjara­samn­ingum og það er ekki byrjað að setj­ast niður og tala saman. Þannig að mér finnst vera ótíma­bært að vera að hóta verk­föllum áður en það er byrjað. Og það verður þá að koma í ljós hvernig það verður.“

Hins vegar var orðin pínu stemmn­ing í þess­ari blokka­myndun að ég væri vanda­málið.

Er kom­inn friður í verka­lýðs­hreyf­ing­una fyrst Drífa er farin eða heldur þetta áfram að grass­era?

„Ég veit það ekki. Hins vegar var orðin pínu stemmn­ing í þess­ari blokka­myndun að ég væri vanda­málið. Ég er alla­vega búin að fjar­lægja það. Þannig að þá kemur í ljós hvað verður. Ég á marga stuðn­ings­menn innan hreyf­ing­ar­innar. Það eru margir sem tala við mig; fólk sem kannski treystir sér ekki alltaf til þess að tala opin­ber­lega og er frekar í því að reyna að sætta og miðla málum.“

Kristján Þórður tekur við af Drífu. Er hann í ein­hverri blokk?

„Nei. Ég held að Kristján Þórður reyni að sigla á milli skers og báru. Ég veit ekki alveg hvernig hann ætlar að halda á þessu. Og ég var ekk­ert að gera honum sér­stak­lega mik­inn greiða með því að hringja í hann í morgun og segja honum hvað dag­ur­inn bæri í skauti sér.“

Var honum brugðið?

„Já, ég held það.“

Sjá má við­tal Reynis við Drífu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag