Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Elísabet II. heillaðist af Íslandi – Gaf sig á tal við unga sem aldna

Elísabet II. heillaðist af Íslandi – Gaf sig á tal við unga sem aldna
Glæsi­legir þjóð­ar­leið­togar

Elísabet II. Eng­lands­drottn­ing heim­sótti Ísland ásamt Fil­ippusi eig­in­manni sínum árið 1990. Heillaði drottn­ingin smá­vaxna land­ann upp úr skónum og þóttu þau hjónin mjög alþýð­leg. Vigdís Finn­boga­dóttir for­seti tók vel á móti hjón­unum en hér á landi skoð­uðu þau meðal ann­ars íslensku hand­ritin, mál­verk eftir íslenska mál­ara og hrossabú, svo eitt­hvað sé nefnt.

Daman fyrst.

Alþýðu­blaðið skrif­aði meðal ann­arra blaða um heim­sókn Elísa­betar og Fil­ippusar:

Drottn­ingin og her­tog­inn:

Alþýðleg stór­menni í Íslands­heim­sókn

Elísabet II. Eng­lands­drottn­ing og Filippus her­togi komu blaða­manni mjög alþý­lega fyrir sjónir er hann hitti þau í breska sendi­ráð­inu í lok­uðu hófi að aflok­inni heim­sókn þeirra í Árna­stofnun. Þar höfðu hátignin fengið að hand­fjatla hinar dýr­mætu eignir okkar Íslend­inga, hand­ritin, sem loks var sam­þykkt að skyldu til Íslands árið 1961. Í kjöl­far þess sagði drottn­ing eitt­hvað á þessa leið við blaða­mann, sem tjáði henni fyrst að hún skrif­aði fyrir blað: „hvernig ætli dag­blöðin muni lita út er þau ná aldri íslensku hand­rit­anna?“ Blaða­maður svar­aði þá að bragði að þau yrðu senni­lega gul. Þá brosti drottn­ing sínu tign­ar­lega brosi og svarði: „Já, lík­lega.“ Drottn­ing kvaðst mjög ánægð með mót­töku Íslend­ing­anna.

Glæsi­legir þjóð­ar­leið­togar

Í þessu boði gerði drottn­ing sér far um að tala við fjöl­miðla­fólkið og Filippus skemmti sér hið besta enda aug­ljós­lega húmoristi og léttir örugg­lega oft and­rúms­loftið í svona heim­sóknum.

Andstæður klæðnaður þjóðarleiðtoganna

Vigdís for­seti og Elísabet íklædd­ust and­stæðum nátt­úru­litum. Drottn­ingin var í hágrænni kápu og inn­undir sást glitta í hvítan kjól með grænum laufum, á höfð­inu bar hún barða­lít­inn hvítan hatt með svarti lín­ingu og grænu blómi í stíl við kápuna. Skórnir voru svartir og háglans­andi og veskið í stíl. Vigdís, hins vegar, var í skærgulri sum­ar­dragt með svartan prinsessu­hatt og í svörtum topp. Filippus drottn­ing­ar­maður var í svargráum jakka­fötum með rautt munstrað bindi. Vigdís fylgdi drottn­ingu og her­tog­anum eftir framan af degi. Eftir hádeg­is­verð­ar­boðið fóru þau í Lista­safn Íslands og skoð­uðu þar verk eftir íslenska mál­ara. Elísabet var undir leið­sögn Beru Nordal, for­stöðu­manns Lista­safns­ins, og virt­ist líka myndir okkar lista­manna vel. Sér­stak­lega virt­ist drottn­ing staldra við gömlu meist­ar­anna, enda hafði sá áhugi hennar komið

áður í ljós er haldin var sýn­ing á íslenskri list í London á dög­unum. Skoðun á verk­unum fór nokkuð fram yfir til­ætl­aðan tíma. Að heim­sókn­inni í Lista­safnið lok­inni gengu Elísabet og Vigdís í far­ar­broddi eftir Frí­kirkju­veg­inum þar sem fjöldi manns, ekki síst barna, hafði safn­ast saman með íslenska og breska fán­ann til að fagna drottn­ingu og her­tog­anum. Fólk var prúð­búið og börnin lífg­uðu upp á bæinn með lit­ríkum klæðn­aði sínum. Drottn­ingin gaf sig á tal við fjölda manns, jafnt unga sem aldna sem ýmist skildu eða ekki enska tungu. En allir gerðu sitt besta. Mikið var klappað fyrir drottn­ingu og her­tog­anum og greini­leg hátíð­ar­stemm­ing ríkti á þessum bjarta mánu­degi. Og eins og áður segir héldu drottn­ing og her­togi í Árna­stofnun til að skoða merki­leg íslensk hand­rit undir leið­sögn Jónasar Krisjáns­sonar for­stöðu­manns Árna­stofn­unnar.

Jónas fræðir Elísa­betu um hand­ritin

Fall­byssu­skot­hríð

Þegar drottn­ing kom að snekkju sinni var 21 fall­byssu­skoti hleypt af til heið­urs henni. í Britt­aníu hélt drottn­ing og her­tog­inn síð­deg­is­boð fyrir erlenda sendi­menn og í gær­kvöld hélt for­seti Íslands kvöld­verða­boð á Hótel Sögu. Í dag mun drottn­ing heim­sækja hrossa­búið að Dal, þar sem ekki er talið ólík­legt að hún skelli sér á bak, og síðan liggur leiðin til Nesja­valla. Um hádegi halda drottn­ing og her­tog­inn til Þing­valla þar sem þau skoða sig um og snæða hádeg­is­verð í boði for­set­is­ráð­herra í Þing­vallabæ. Að því loknu verður Þing­valla­kirkja skoðuð. Gróð­ur­setn­ing trjáa verður við Kára­staði. Klukkan 16.00 verður mót­taka borg­ar­stjóra­hjón­anna við Höfða og um kvöldið heldur drottn­ing kvöld­verð­ar­boð um borð í Britt­aníu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag