Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Alfreð Steinar skipstjóri fann Rósagarðinn: „Okkur var rænt og við fluttir nauðugir til Litháen“

Alfreð Steinar skipstjóri fann Rósagarðinn: „Okkur var rænt og við fluttir nauðugir til Litháen“
Alfreð Steinar Rafnsson

„Þegar ég lít til baka get ég ekki neitað því að hafa átt að mörgu leyti ævin­týra­legt líf. Fjöl­breytt,“ segir Alfreð Steinar Rafnsson í hlað­varp­inu Sjó­ar­anum.

Alfreð var tog­ara­skip­stjóri árum saman. „Sem betur fer kom aldrei neitt alvar­legt fyrir um borð hjá mér í minni skip­stjórn­ar­tíð. Ég kom með alla kalla í land og það urðu aldrei nein alvar­leg slys sem betur fer.“

Hann seg­ist hafa orðið skip­stjóri í fyrsta skipti eig­in­lega fyrir til­viljun. „Ég var búinn að vera stýri­maður á Hvalbak frá Stöðv­ar­firði og Breið­dals­vík og var með í því að sækja hann til Japan á sínum tíma. Fyrsti stýri­maður sem átti að leysa af treysti sér ekki til að fara með vegna heilsu­leysis þegar skipið átti að fara í fyrsta túr­inn svo­leiðis að það lenti á mér. En svo æxl­að­ist þetta bara þannig og ég fór þarna nokkra túra en svo var ég þarna ekki nema í eitt ár.“

Þetta var 1974 og Alfreð um þrí­tugt.

Rósagarðurinn

Alfreð vissi af Rósa­garð­inum sem eru víð­áttu­mikil fiski­mið langt úti í hafi á milli Íslands og Færeyja. „Íslend­ing­arnir voru búnir að vita af honum í langan tíma og að þarna væru karfa­mið sem Þjóð­verjarnir stund­uðu mikið en aftur á móti fylgdi það sög­unni að þarna væri óhemju­mikið af flökum frá því á stríðs­ár­unum. Strax eftir að ég fór að sigla með Snæfugl­inum fór ég að bera í víurnar við menn þarna úti að fá keypt kort af Rósa­garð­inum. Það gekk nú ekki vel. Menn báru ekk­ert voða­lega hlýjan hug til Íslend­inga, þessir þýsku tog­ara­skip­stjórar,“ segir Alfreð en þetta var eftir að Íslend­ingar lok­uðu land­helg­inni.

Ég hef stundum sagt það í gamni að þetta sé eina kend­er­íið sem ég hef farið á sem marg­borg­aði sig.

„Það var dálítið skemmti­legt. Vinur minn sem vann hjá Peter Hein, umboðs­fyr­ir­tæk­inu í Cuxhaven, var búinn að vera að for­vitn­ast um hvar væri mögu­leiki og að end­ingu þegar ég var að fara þarna í slipp ákváðum við að fara út að borða saman og hann bauð einum þýskum skip­stjóra með sem hann vissi að væri í ein­hverjum fjár­hagskröggum. Ég hef stundum sagt það í gamni að þetta sé eina kend­er­íið sem ég hef farið á sem marg­borg­aði sig vegna þess að þegar fór að líða á kvöld­verð­inn og við vorum allir komnir í mjög gott skap þá fór ég að bera í víurnar við karl­inn,“ segir Alfreð en hann hafði kort af Rósa­garð­inum í huga. „Ég sagð­ist vera til­bú­inn að borga vel fyrir það. Það vildi svo til að frá því ég var búinn að vera að vinna hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum þá átti ég ennþá ték­hefti frá banka í New York þar sem launin mín höfðu alltaf verið sett inn og ég bauð honum að borga þessa upp­hæð og hann fengi tékk­inn og ég kortin. Og það gekk.“

Og Alfreð komst yfir kort.

Hann segir að það hafi fiskast vel í Rósa­garð­inum í þó nokkur ár. „Til að byrja með var mjög gott fiskerí og þetta var afbragðs karfi.“

Hann segir líka að það hafi aldrei legið fyrir að halda þessu leyndu.

„Það er gaman að segja frá því að ég vildi fá þennan kostnað greiddan frá sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu vegna þess að ég keypti þetta; ég var ekki einu sinni með leyfi frá minni útgerð. Ég borg­aði þetta fyrst úr mínum eigin vasa.“

Það fengu allir þessar upp­lýs­ingar strax.

Hvað borg­aðir þú mikið?

„Eigum við ekki að láta það liggja á milli hluta. Það var tals­verð upp­hæð. Þá var það maður í sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu sem var aðstoð­ar­maður ráð­herra og hann barð­ist á móti því að við fengjum þetta greitt af því að hann hélt því fram að við hefðum staðið svo vel að þessu sjálfir án þess að láta aðra vita en það var alls ekki rétt. Það fengu allir þessar upp­lýs­ingar strax.“

Það má segja að þarna hafi verið gull­náma.

„Hún var það. Ég hef stundum verið að pæla í því að það væri gaman að fá það tekið upp hjá Fiski­stofu hvað fisk­uð­ust mörg tonn þarna fyrstu fimm árin eftir að þetta opn­aði. Það var tölu­vert mikið.“

Alfreð segir að eitt árið hafi þeir farið mest sex sölu­túra til Þýska­lands. „Svo voru þarna aðrir tog­arar sem stund­uðu þarna mikið meira til dæmis Ögrinn og Vigrinn. Þeir fisk­uðu mikið þarna. En svo bara þurrk­að­ist þetta upp. Ég held að það hafi sára­lítið feng­ist í Rósa­garð­inum und­an­farin ár.“

Hótun

Svo hófst annar kafli.

„Þegar ég hætti á Snæfugl­inum þá lenti ég í útgerð austur í Litháen“

Fórstu að gera út?

„Já, ég og nokkrir kunn­ingjar mínir tókum á leigu stórt verk­smiðju­skip og gerðum það út í Rósa­garð­inum sem end­aði í svaka­legu ævin­týri. Okkur var rænt þegar við vorum við Írland og fluttir nauð­ugir austur til Litháen. Þetta var fyr­ir­tæki sem eign­að­ist skipið. Það var banki í Litháen sem tók skipið meðal ann­ars eigna­námi út af gjald­þroti. Þeir vildu fá eitt­hvað meira heldur en samn­ing­arnir okkar stóðu um,“ segir Alfreð en þeir voru með samn­inga við útgerð­ina sem fór í þrot.

„Við höfðum verið á Reykja­nes­hryggnum og gert það bara gott og svo vorum við í Írlandi að frysta mar­kíl fyrir Íra yfir vetr­ar­mán­uð­ina. Ég var á leið­inni frá Castle Rown til Cork að sækja trollið okkar og vara­hluti og við ætl­uðum að fara beint út á hrygg. Þá var ég kall­aður upp í brú og sá sem var flagg­skip­stjóri sagði að hann hefði fengið boð um að sigla skip­inu til Klaipėda, hafn­ar­borgar í Litháen, og að við værum ekki lengur við stjórn,“ segir Alfreð en hvað varðar flagg­skip­stjóra þá á hann við að það þurfti líka að vera skip­stóri um borð frá Litháen þó Alfreð væri yfir­stjórn­andi á skip­inu.

„Það var alveg sama hvernig við reyndum að koma vit­inu fyrir hann. Mér tókst að hringja heim og láta vita hvað væri að ske en þeir komust fljótt að því og klipptu á loft­netið þannig að ég gat ekk­ert látið vita af mér aftur.“

If you don’t keep your mouth shut, I have the power to eliminate you.

Alfreð segir að flagg­skip­stjór­inn hafi verið ansi magn­aður karl. „Ég sagði að það væri verið að ræna skip­inu en við vorum með 80 manns í áhöfn og þetta voru menn sem voru búnir að vinna hjá mér í meira en ár og mér mjög hlið­hollir og þá sagði hann ein­hvern veg­inn á þessa leið: „If you don’t keep your mouth shut, I have the power to eliminate you.“

Það var bara hótun,

„Já, það var það.“

Ísköld.

„Já, hann gekk með skamm­byssu alla leið­ina.“

Alfreð segir að umræddur flagg­skip­stjóri hafi verið nýkom­inn um borð. „Þeir voru búnir að skipta um nokkra kalla þannig að það var búið að plana þetta löngu áður en hann kom um borð. Maðurinn sem var búinn að vera hjá okkur um borð var nýfar­inn heim og þessi var nýkom­inn um borð þannig að þetta flokk­að­ist undir organized crime.“

Alfreð segir að Lit­há­arnir, eða þessi banki, hafi séð ofsjónum yfir vel­gengni þeirra. „Það var nátt­úr­lega spill­ing þar eins og víðar og sann­leik­ur­inn er sá að þeir voru búnir að úthluta öllum veið­ar­færum og öllu til ein­hvers góð­kunn­ingja.“

Við hefðum getað farið lengra og farið út í skaða­bóta­mál en það hefði kostað óhemju pen­ing í rétt­ar­höldum.

Fram undan voru mála­ferli sem stóðu yfir í tvö ár. „Þau kost­uðu ansi mik­inn pen­ing þangað til þessi banki gafst upp. Við hefðum getað farið lengra og farið út í skaða­bóta­mál en það hefði kostað óhemju pen­ing í rétt­ar­höldum svo okkur var ráð­lagt að ganga til samn­inga. Þeir borg­uðu veið­ar­færin og vara­hlut­ina sem voru um borð, þeir borg­uðu olí­una sem var nýbúið að kaupa og þeir borg­uðu 500 tonn af mar­kíl sem ég var búinn að frysta í lest­ina. Þannig að þetta bjarg­að­ist þannig að við gátum sjálfir gert upp okkar skuldir hérna heima. “

Alfreð segir að ein­hverjum árum seinnna hafi Samherji keypt þetta skip, flutt það til Póllands og gert það upp og selt síðan til Afríku.

Mútur og flóttamenn

Alfreð réð sig til Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar og fór að kenna við sjó­manna­skóla í Namibíu og bjó hann þar í nokkur ár og vann svo í eitt ár á vegum Norð­manna. Talið berst að mútum og segir Alfreð að mútur og mútur sé ekki það sama.

Pesóinn hvarf með undra­verðum hætti.

„Ég er búinn að vinna í svo mörgum mis­mun­andi löndum og mis­mun­andi kúltúr og ég get ekki dæmt menn fyrir að taka mútur. Ég hneyksla marga þegar ég segi að þegar ég átti heima í Manila á Fil­ipps­eyjum þá mút­aði ég lög­regl­unni einu sinni í viku. Við skrif­stof­una okkar voru geysi­mikil gatna­mót og þar var lög­reglu­maður sem stjórn­aði traffík­inni. Hann slökkti alltaf á götu­vit­unum þegar mest var að gera. Það var búið að segja manni að maður yrði stopp­aður annað slagið og ætti að vera með fimm pesóa­seðil sem var smá­pen­ingur en mik­ill fyrir þá. Svo kom það fyrir einu sinni í viku að maður var stopp­aður á þessum gatna­mótum og beð­inn um öku­skír­teini. Maður fékk það aftur en pesóinn hvarf með undra­verðum hætti. Lög­reglu­mað­ur­inn sagð­ist ætla að sleppa manni í þetta skipti og ég ætti ekki að gera þetta aftur og svo end­ur­tók þetta sig í næstu viku.“

Og þú gerðir aldrei neitt af þér?

„Nei, en hefði 100 pesóa­seð­ill verið í öku­skír­tein­inu þá hefið hann stoppað mig á hverjum degi.“

Alfreð vann þarna sem sam­ræm­ing­ar­stjóri hjá sjáv­ar­út­vegs­deild­inni. „Við vorum með rann­sókn­ar­skip á leigu og það var að fara úr einni lög­sögu yfir í aðra og ég þurfti að sjá um að allir papp­írar væru til­búnir í hverju landi. Þetta voru fiski­rann­sóknir í Suður-Kínahafi og náðu niður til Indónesíu.“

Alfreð segir að áhöfnin hafi verið tölu­vert við björg­un­ar­störf út af stríð­inu í Kambodíu. „Það var ekki allt voða­lega bjart og huggu­legt sem maður sá“ Hann seg­ist ekki mega segja frá; er bund­inn trún­aði. „Ég get sagt að við máttum aldrei taka menn um borð til okkar sem við fundum í bátum sem voru á reki vél­ar­vana því ef við tækjum þá um borð þá flokk­uð­ust þeir sem flótta­menn. Af því að þetta var tælenskt skip þá báru Tælend­ingar meiri ábyrgð á þeim heldur en ef þeir hefðu verið venju­legir flótta­menn sem hefðu komið sjálfir í land þannig að við drógum þá nálægt landi svo þeir gætu sjálfir komið sér í land.

Norðmenn þurftu að taka við þessum flótta­mönnum af því að þeir tóku þá um borð.

Við vorum með á leigu rann­sókn­ar­skip sem heitir Fridtjof Nansen. Þeir voru að koma úr lög­sög­unni á Fil­ipps­eyjum á leið til Singapúr til að skipta um áhöfn. Þá komu þeir að skipi sem var að sökkva; þetta voru flótta­menn frá Kambodíu. Og þeir nátt­úr­lega kipptu þeim um borð. Svo var haldið áfram og stefnt á Singapúr. Þegar það komst upp hvað þeir voru með þá var skipið ein­angrað í höfn­inni í Singapúr. Það mátti eng­inn fara í land. Af því að ég var sam­hæf­ing­ar­stjóri þá þurfti ég að fara þarna niður eftir. Málið var ekki leyst fyrr en allir þessir menn, flótta­menn, ásamt skips­höfn­inni sem átti að skipta um voru sendir út á flug­völl og var flogið til Noregs. Norðmenn þurftu að taka við þessum flótta­mönnum af því að þeir tóku þá um borð.“

Jú, Alfreð varð vitni að ýmsu sem hann má ekki segja frá og segir hann að þegar hann var fluttur heim og fór í gegnum dag­blöð frá þessum árum þá kann­að­ist hann ekki við fréttir sem sagðar höfðu verið frá þessu svæði. „Þær voru svo ólíkar raun­veru­leik­anum.“

Latur í eðli sínu

Alfreð flutti heim til Íslands og keypti ferj­una Lag­ar­fljótsorm­inn. „Það gekk ágæt­lega fyrsta árið en svo komu tvö slæm sumur; fáir ferða­menn þannig að þetta gekk ekki upp. Þá gerð­ist ég bara skrif­stofu­blók og fór að vinna hjá Vinnu­mála­stofnun sem vinnu­miðl­ari og var þar þangað til ég komst á aldur. Eftir það hef ég verið að hlaupa í afleys­ingar hingað og þangað. Ég var í hvala­skoðun og var meira segja yfir­stýri­maður í Breiða­firð­inum á Baldri.“

Hann er spurður hvort hann gæti hugsað sér að fara aftur á sjó­inn. „Ég varð fyrir smá­heilsu­vanda­máli í vetur en það er aldrei að vita þegar maður hress­ist aftur. Púlsinn fór upp úr öllu valdi úti í Búdapest þegar þetta skeði. Ég lenti þar á spít­ala. En þetta stendur allt til bóta.“

Alfreð er spurður hvar honum hafi fund­ist skemmti­leg­ast að lifa. „Það er voða­lega erfitt að gera upp á milli. Ég hef bara haft svo gaman af líf­inu og ég hef reynt að njóta þess í botn hvar sem ég er staddur. Kannski of mikið stundum.“

Þú lætur ekk­ert buga þig eins og þegar skipið var tekið af ykkur eða þegar Lag­ar­fljótsorm­ur­inn hrökk í kút?

„Það er ekki til neins.“

Þetta er bara svona.

„Já, lífið heldur áfram.“

Hann seg­ist núna vera mest­megnis heima. „Ég er að dunda mér smá­vegis við þýð­ingar þegar ég nenni. Annars tek ég því rólega. Ég er latur í eðli mínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur