Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ótrúlega skýr mynd af fyrstu íbúum Seyðisfjarðar: „Við sjáum aldrei slíkt frá þessum tíma“

Ótrúlega skýr mynd af fyrstu íbúum Seyðisfjarðar: „Við sjáum aldrei slíkt frá þessum tíma“

Ótrúlega heil­legar húsa­rústir hafa komið í ljós í upp­greftri í bæj­ar­hóli land­náms­bæj­ar­ins Fjarðar í Seyð­is­firði. Þýðir það að í upp­greftrinum sem er nú lokið þetta sum­arið, er að finna heim­ildir um síð­ari hluta land­náms og upp­haf mið­alda á Íslandi.

„Við töldum bæj­ar­hól­inn vera nokkuð þekkta stærð en hann varð tölu­vert stærri og umfangs­meiri en við héldum, ekki 30 metra langur heldur 90 metrar,“ segir Ragn­heiður Trausta­dóttir, doktor í forn­leifa­fræði, sem stýrir upp­greftrinum. Rætt var við hana í þætt­inum Að austan á N4 í gær­kvöldi en Aust­ur­frétt sagði frá mál­inu.

Ákveðið var að ráð­ast í upp­gröft­inn í fyrra vegna þess að hluti svæð­is­ins fer undir nýja snjó­flóða­varn­ar­mann­virki við norð­an­verða byggð­ina. Kuml fund­ust þar í haust.

Þetta sum­arið hafa fund­ist mann­virki frá tíma­bil­inu 950-1150 en það er vík­inga­ald­ar­skáli, úti­hús, tún­garður og fleira. Skriða lá yfir hluta upp­graft­ar­svæð­is­ins en hún féll um alda­mótin 1100 en hún á sinn þátt í varð­veislu svæð­is­ins.

„Við erum með metra háa torf­veggi í skál­anum og við­bygg­ingum. Við sjáum aldrei slíkt frá þessum tíma. Skriðan hefur varð­veitt þessa veggi. Það að bygg­ing­arnar séu þetta heil­legar gera okkur auð­veld­ara að skilja þær. Við höfum líka fundið ótrú­lega marga gripi; hvers­dags­gripi, skart­gripi og gripi sem búnir voru til á staðnum.

Með þessu öllu og í sam­hengi við kumlin frá í fyrra, fáum við ótrú­lega áhuga­verða heild­ar­mynd af fyrstu íbúum Seyð­is­fjarðar. Við getum myndað okkur skoðun á sögu þeirra sem fyrst sett­ust hér að og sagt sögu þeirra.“

Áformað var að klára upp­gröft­inn í sumar en nú er ljóst að haldið verður áfram þriðja árið. Nýta á vetr­ar­mán­uð­ina til að tryggja varð­veislu og rann­saka það sem hefur fund­ist í sumar.

„Allar minjar segja ein­hverja sögu. Á Aust­ur­landi hefur verið lítið grafið, sér­stak­lega frá þessum tíma. Þessi upp­gröftur mun gefa okkur fyllri mynd af sögu 10. og 11. aldar á Íslandi. Hér er líka upp­haf Seyð­is­fjarðar og þar með saga Seyð­firð­inga. Veturinn og næsta sumar verða því mjög spenn­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil