Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Birgir Hólm í fremstu víglínu: „Þeir voru alltaf tilbúnir að láta kaupa fyrir sig litasjónvarp“

Birgir Hólm í fremstu víglínu: „Þeir voru alltaf tilbúnir að láta kaupa fyrir sig litasjónvarp“

„Það stendur upp úr fraktin hjá mér og eins vinnan á skrif­stofu Sjó­manna­fé­lags­ins; ég var þar í 20 ár,“ segir Birgir Hólm Björg­vins­son í hlað­varpi Sjóarans þegar hann er spurður hvað standi upp úr á löngum ferli en Birgir var á sínum tíma stjórn­ar­maður og full­trúi í samn­inga­nefnd hjá Sjó­manna­fé­lagi Reykja­víkur auk þess að hafa verið sjó­maður.

Það voru hörð átök.

„Það hafð­ist ekk­ert öðru­vísi. Það voru bara hreinar línur.“

Það þýddi ekk­ert mjálm.

„Nei, það þýddi ekk­ert mjálm.“

Birgir er spurður hvað sé minn­is­stæð­ast úr bar­átt­unni.

„Það eru eig­in­lega slags­málin,“ segir hann og segir eina sögu af slags­málum sem tengd­ust útgerð­ar­mann­inum Guðmundi Krist­jáns­syni sem hafði yfir­tekið Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga. „Hann var að fækka á tog­ar­anum hjá sér og tal­aði hvorki við kóng né prest. Við vorum hirtir af lög­regl­unni.“

Komuð þið að sunnan til að berj­ast?

„Ég og Jónas Garð­ars­son komum héðan. Svo var hann á Akureyri hann Konni og Sævar hjá Sjó­manna­sam­band­inu kom líka.“

Þær voru að sprauta á okkur vatni, kerl­ing­arnar í frysti­hús­inu.

Og þetta voru bara slags­mál.

„Þær voru að sprauta á okkur vatni, kerl­ing­arnar í frysti­hús­inu.“

Hvað voruð þið að gera þá?

„Við vorum búnir að setj­ast á karið; þeir ætl­uðu að fara að hífa það upp í togar­ann og við sett­umst á það svo þeir gátu ekki híft. Svo end­aði þetta með að lög­reglan kom og hirti okkur.“

Voruð þið settir inn?

„Já, já, það var bara tíma­bundið. Nokkra klukku­tíma. Tvo þrjá tíma.“

Í fanga­klefa?

„Já.“

Hvernig leið þér með það?

„Mér leið ekk­ert illa.“

Hvernig fór málið á end­anum?

„Það leyst­ist. Þeir héldu áfram sömu mönn­un­inni.“

Þannig að þetta end­aði vel.

„Já.“

Birgir segir aðra sögu.

„Þegar Guð­mundur hjá Nesskip ætl­aði að reyna að byrja að manna skipið sitt með Pól­verjum þá mættum við í Hafn­ar­fjörð­inn þegar hann kom og spott­anum var hent í sjó­inn; hann sagði allri áhöfn­inni upp eða öllum háset­unum og spott­anum var hent aftur í sjó­inn þegar kast­línan kom frá bryggju. Svo sat ég með Guðmundi í Nesskip alla nótt­ina í jepp­anum og tal­aði við hann. Það var gott að tala við Guðmund. Hann hafði nefni­lega vit á þessu. Hann vissi alveg hvað hann var að gera. Þetta var eng­inn háskóla­maður eða fræð­ingur. Hann hafði mjög mikið vit á frakt­skipum og annað í kringum það. Og það fór svo­leiðis að það voru Íslend­ingar áfram um borð. Það hefði ekki skeð nema með þessu. Með látum.“

Ég þótti ekk­ert voða­lega kúltíver­aður.

Birgir er spurður hvort hann hafi ein­hvern tím­ann orðið fyrir hnjaski í bar­átt­unni.

„Nei.“

Og aldrei ráð­ist á þig?

„Nei. Smotterí bara.“

Birgir er spurður hvort hann hafi verið svona ósvíf­inn.

„Ég þótti ekk­ert voða­lega kúltíver­aður.“

Verkalýðsbaráttan hálfléleg

Birgir er spurður hvort þessi bar­átta hafi skipt sköpum.

„Mér finnst það. Mér finnst hún svo aum­ingja­leg í dag að ég á ekki orð yfir því. Núna til dæmis eru frakt­sjó­menn­irnir komnir á mjög góð laun. Það hefði aldrei náðst nema af því að við gátum stoppað skip af. Það næst ekk­ert með því að mjálma svona á móti ein­hverjum hag­fræð­ingum og lög­fræð­ingum. Það er alveg úti­lokað. Það er alltaf reynt að teygja lopann og bara tala saman.“

Það er bara harkan sem gildir; samn­ingar fiski­manna eru nú ekk­ert á góðum stað.

„Nei, nei, það er nú eitt. Ég held ég hafi nú skýr­ing­una á því af hverju það er; þeir eru bara á svo djöf­ull góðum launum þessir á tog­ur­unum. Þetta eru góð laun sem þessir strákar hafa og þeir eru ekki til­búnir að fara í slag.“

Þeir vilja ekki slást?

„Nei, ég held að það sé svo. Annars get ég ekki full­yrt það. Þetta eru menn sem eru kannski með 18-20 millj­ónir á ári fyrir hálft árið.“

Þeim líður bara vel.

„Þeim líður bara svo vel og þetta eru orðin fín og flott skip.“

Ég er ekki kommi en mér líst lang­best á Sólveigu hjá Eflingu.

Svo eru verri skip. Þeir vilja kannski berj­ast.

„Já, það er eins og það sé. Mér finnst eins og hún sé orðin hálf­lé­leg þessi varka­lýðs­bar­átta. Ég er ekki kommi en mér líst lang­best á Sólveigu hjá Eflingu. Þeir eru skít­hræddir við hana.“

Þú ert ánægður með hana.

„Já.“

Einn á móti mörgum

Birgir er spurður hvort hann hafi farið sáttur frá Sjó­manna­fé­lag­inu á sínum tíma.

„Nei.“

Varstu hrak­inn út?

„Ég vil helst ekk­ert ræða það.“

Hann var mjög áber­andi í bar­átt­unni og grjót­harður. Var þarna í for­ystu­sveit.

„Já, ég var þarna lengi og það tók mig 10 ár að koma okkur út úr Alþýðu­sam­band­inu.“

Hann er spurður hvers vegna hann hafi ekki viljað vera þar.

„Þetta er bara skrif­finnska. Ég fór einu sinni á ASÍ-þing og fór þá upp í ræðupúlt; ég er ekki mikið fyrir að gera svo­leiðis og kann ekki mikið fyrir mér í því. En þegar Ásmundur Stef­áns­son hag­fræð­ingur tók við ÁSÍ þá byrj­aði þessu öllu að hraka.“

Hann var hag­fræð­ingur og vann sig upp í það að verða for­seti.

„Já, og þegar hag­fræð­ingur situr hérna megin og hag­fræð­ingur hinum megin við borðið frá atvinnu­rek­endum og lærðu í sama bekk. Þá eru þeir með sömu fræði.“

Þá kemur sami graut­ur­inn.

„Já, þá kemur sami graut­ur­inn. Þá fannst mér allt byrja að fara niður á við.“

Þetta er skrýtið. Maður hefði haldið að for­seti ASÍ yrði að koma úr gras­rót­inni.

„Já, maður hefði haldið það.“

Birgir seg­ist vera frekar vinstri­s­inn­aður.

„Núna kýs ég mann­inn, ekki flokk, ef mér líst vel á ein­hvern.“

Ég var með opinn kjaft­inn alltaf þegar ég gat.

Hann fór í póli­tík á tíma­bili.

„Já, Sverrir Her­manns­son hringdi í mig af því að ég var á móti kvót­anum þegar það kom á. Sverrir hringdi í mig; ég veit ekk­ert af hverju. Ég var með opinn kjaft­inn alltaf þegar ég gat. Hann spurði hvort ég vildi koma með honum í þetta.“ Og Birgir seg­ist ein­hvern tím­ann hafa verið í þriðja sæti í Reykja­vík. „Svo komu tveir menn inn í flokk­inn og þá labb­aði ég bara út.“

Hann segir að skoð­anir þeirra hafi verið svo fjarri sínum.

Og Birgir hætti í póli­tík.

„Ég hef aldrei haft neinn áhuga á að vera í póli­tík svo­leiðis. Ég er bara með mínar póli­tísku skoð­anir. Ég stend oft í stappi í þeim. Einn á móti mörgum.“

Þá var smyglað

Birgir Hólm Björg­vins­son seg­ist hafa verið polli þegar hann fór á sjó­inn.

„Ég hef lík­lega verið 13 til 14 ára þegar ég byrj­aði á Esjunni gömlu,“ segir hann en Esjan var strand­ferða­skip.

„Ég var þá settur í vél; frændi minn var vél­stjóri og það vant­aði ein­hvern og ég var ráð­inn þar um borð. Það voru bara afleys­ingar og ég fór nokkra túra. Þá var ég kall­aður „Pusi svarti“ af því að ég var svo skítugur. Þeir tróðu mér alls staðar á bak við.“

Þú varst not­aður í að þrífa þar sem var erfitt að kom­ast að.

„Já.“

Létta­drengur á Esjunni. Svo háseti og síðar báts­maður.

Birgir vann hjá Eimskip í um 25 ár og var í milli­landa­sigl­ingum.

Smyglaðir þú?

„Það var ekk­ert annað að gera.“

Menn sögðu að þetta hefði verið helm­ing­ur­inn af laun­unum.

„Það var meira en það. Menn gátu ekk­ert lesið þessi tolla­lög. Það var svo smátt letur.“

Það var bara smott­erí. Það var bara heim­il­is­brúk.

En þú hefur alltaf sloppið í gegn.

„Nei, nei.“

Varstu tek­inn?

„Já, það var voða lítið. Það var bara smott­erí. Það var bara heim­il­is­brúk,“ segir Birgir og bætir svo við að hann og skips­fé­lagar hans hafi lent í sjón­varps­smygl­inu á Detti­fossi þegar lita­sjón­vörpin komu.

„Þá ætl­uðu allir að taka eitt tæki. Við vorum 22 í áhöfn. Við ætl­uðum að taka 11 tæki fyrri túr­inn og svo aftur 11 næsta túr. Bara í fyrsta túrnum kjaft­aði ein­hver frá. Það er alltaf svo­leiðis. Ég var ekki með og þá fengu þeir að fljúga sem áttu tækin. Þeir voru reknir. Einn, fyrsti stýri­maður, sat í gæslu­varð­haldi í þrjár vikur út af einu sjón­varps­tæki. Hann rétti þeim miða upp á hvað þeir skuld­uðu honum fyrir að halda honum inni. Hann var hörku nagli.“

Hvað voru þeir að kreista fram?

„Hverjir áttu hin tækin.“

Hann sagði ekk­ert frá því?

„Nei.“

Hvaða afleið­ingar hafði þetta fyrir menn?

„Það voru flest allir ráðnir aftur.“

Stýri­mað­ur­inn fór þó ekki aftur um borð.

„Það var oft mikið fjör í kringum þetta. Það væri alveg í heila bók.

Ég vissi alveg hvar þeir ættu að leita.

Ég get sagt þér fyndn­asta dæmið sem ég lenti í. Það var eftir að ég kom í land en þá fór ég allaf tvo túra á ári. Ég fór einu sinni með Goða­fossi og þar var hel­víti góð hola.“ Góður geymslu­staður. „Detti­foss og Goðafoss sigldu sama rúnt­inn. Svo létu þeir okkur vita á Detti­fossi að það væri búið að finna þessa holu og þá vorum við á leið­inni heim. Þá datt einum snill­ingnum um borð í hug að skrifa á stórt spjald og setja það í hol­una. Svo komu toll­ar­arnir um borð. Ég var þá um borð og þótt­ist vera að leita um allt; ég vissi alveg hvar þeir ættu að leita. Svo fundu þeir hol­una og litu á spjaldið og þar stóð „fyr­ir­gefið, við erum nýfluttir“. Þeir urðu alveg æfir.“

Það var hægt að gauka að toll­ur­unum einni og einni flösku og þá fóru menn hægt og hljótt um.

„Það var ýmis­legt keypt fyrir þá. Þeir voru alltaf til­búnir að láta kaupa fyrir sig lita­sjón­varp og svona.“

Svo komu rass­í­urnar inn á milli.

„Já.“

Birgir kunni vel við sig í milli­landa­sigl­ing­unum.

„Það var mjög gott að vinna hjá Eimskip. Ég slas­að­ist nokkrum sinnum og það var allt gert fyrir mann sem þeir þurftu ekk­ert að gera.“

Tveir krabbar og tvö hjartaáföll

Birgir er á eft­ir­launum og hefur glímt við veik­indi.

„Ég er búinn að fara í gegnum tölu­verð veik­indi. Tvo krabba og tvö hjarta­á­föll. Ég er orð­inn þræl­vanur.“

Þú lítur hel­víti vel út.

„Ég hef alltaf gert það. Ég segi það við stelp­urnar.“

Þú berð ekki yfir­bragð sjúk­lings. Ertu búinn að sigra þetta allt saman?

„Nei, þetta blundar ein­hvers staðar eitt af þessu. Eða tvö.“

En það er samt hægt að halda þessu niðri.

„Já, ég pæli ekk­ert í þessu.“

Þú ert ekk­ert hræddur?

„Allir sem fá þetta, krabba­mein, sjokker­ast. Það er eng­inn það mikil hetja þó hann seg­ist vera það að hann sjokker­ist ekki.

Hreyf­ingin bara bjargar, segja lækn­arnir.

Ég er svo hepp­inn að ég var það hraustur fyrir eins og þegar þurfti að skipta um fjórar æðar í hjart­anu. Það var nú allt í lagi með það. Ég hafði mig út úr því en svo fékk ég krabba­mein í bakið og þá þurfti að dæla í mig þessum hel­vítis óþverra á Land­spít­al­anum. Og fólkið var ælandi sem var í næstu stólum við hlið­ina á mér en ég gat étið Prins Pólo og drukkið kók. Ég fann ekki fyrir því. Hreyf­ingin bara bjargar, segja lækn­arnir.“

Birgir seg­ist alltaf vera á ferð­inni.

„Ég er tölu­vert í golfi og svo á ég sum­ar­bú­stað fyrir austan og maður er alltaf eitt­hvað þar og svo labba ég mikið. Það heldur manni í líf­inu. Það er bara svo­leiðis.“

Ertu hræddur við dauð­ann?

„Nei, ég hef ekki mikið pælt í þvi. Hann kemur. Ég veit að hann kemur.“

Það sleppur eng­inn.

„Nei, nei, ég er ekki hræddur en mig langar ekki í hann.“

Podcastið með við­tal­inu við Birgi er að finan hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina