Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

„Það eru fleiri leikendur í þessu viðbjóðslega máli en þær“

„Það eru fleiri leikendur í þessu viðbjóðslega máli en þær“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, birtir á Facebook  skjal sem hún segir varpa nýju ljósi á inn­brot á tölvu­póst­fangi hennar sem hún segir for­vera sinn hafa staðið að. Hún segir það inn­brot hafa verið framið í póli­tískum til­gangi og sýni vel að and­stæð­ingar hennar svíf­ist einskis. Hér fyrir neðan má lesa pistil hennar um málið og sjá téð skjal.

Hér má sjá mynd af skjali sem að mér var afhent 12. nóv­em­ber 2021 af Agnieszku Ewu Ziolkowska, þá for­manni Eflingar og Ólöfu Helgu Adolfs­dóttur, þá vara­for­manni Eflingar. Skjalið er útbúið af lög­manni þeirra tveggja og eins þið sjáið und­ir­ritað af Agnieszku og Ólöfu.

Í skjal­inu kemur m.a. þetta fram:

Ég á að veita Agnieszku Ewu allar upp­lýs­ingar og gögn sem telja má rétt og skylt að for­ysta félags­ins hafi, svo og þær upp­lýs­ingar og gögn sem að nýr for­maður Eflingar óskar eftir, svo fremi það sé mögu­legt og við hæfi.

Ég á að gera nýjum for­manni grein fyrir öllum þeim ráðum, nefndum og stjórnum sem að ég hef verið skipuð í fyrir hönd Eflingar.

Ég á að vera nýjum for­manni til ráð­gjafar, ef þurfa þykir, varð­andi mál sem eru í gangi í því skyni að þekk­ing innan skrif­stof­unnar og félags­ins hald­ist og upp­lýs­ingar glat­ist ekki.

Ég á að veita stjórn­endum og stjórn Eflingar umbeðna ráð­gjöf og upp­lýs­ingar er varða mál sem eru í gangi.

Einnig kemur þetta fram:

Ég á að skila lyklum og öðru sem eðli­legt er að skilað verði við mót­t­töku bréfs­ins. Ég fæ að eign­ast þá tölvu sem að ég hafði notað við störf mín að því skil­yrði upp­fylltu að ég afhendi fyrst tölv­una til tölvu­sér­fræð­ings Eflingar svo að unnt sé að aftengja tölv­una neti Eflingar. Öll raf­ræn starfstengd gögn ber að afhenda á USB lykli til Eflingar. Frumgögn papp­íra skal einnig afhenda.

Einnig kemur þetta fram:

Öllum aðgangi að Eflingu, þ.m.t aðgangi að Office365 og Eflingar net­fangi mínu verður lokað.

Ég með­tók þetta skjal og gerði allt sem að mér bar að gera sam­kvæmt því. Ég skil­aði USB lykli með gögnum sem ég hafði vistað á tölv­unni. Ég skil­aði frum­gögnum papp­íra sem að ég hafði. Ég gerði grein fyrir öllum þeim ráðum o.s.frv. sem að ég hafi setið í vegna for­mennsku í Eflingu. Og ég fór til tölvu­sér­fræð­ings Eflingar svo að hann gæti aftengt tölv­una af neti Eflingar, lokað öllum aðgangi sem að ég hafði sem for­maður félags­ins og laun­aður starfs­maður, og gæti lokað Eflingar-net­fangi því sem að ég hafði notað, [email protected]

Mér datt ekki til hugar að reyna að koma mér undan neinu af því sem að upp var talið. Og mér datt ekki til hugar að þær sem að und­ir­rit­uðu skjalið sem for­maður og vara­for­maður Eflingar myndu sjálfar virða það sem að þeim snéri að vettugi. En það gerðu þær að því sem næst öllu leiti, að því frá­töldu að mér voru sann­ar­lega greidd laun á upp­sagn­ar­fresti.

Stað­reyndin er sú að Agnieszka Ewa eða Ólöf Helga höfðu aldrei sam­band við mig til að afla upp­lýs­inga eða gagna um eitt eða neitt. Þær höfðu aldrei sam­band til að fá ráð­gjöf eða upp­lýs­ingar varð­andi mál sem voru í gangi á vett­vangi félags­ins.

Ekki í eitt ein­asta skipti.

Ástæðan fyrir því að þær létu brjót­ast inn í póst­hólfið [email protected] var ekki vegna þess að ég hafi ekki veitt upp­lýs­ingar eða að þær yrðu að hjálpa félags­manni í vand­ræðum eða finna lykil­upp­lýs­ingar um kjara­samn­inga eða önnur mik­il­væg plögg. Nei, ástæðan er eins aug­ljós og hugs­ast getur. Svo aug­ljós að engin mann­eskja komin til vits og ára getur litið fram hjá henni:

Agnieszka Ewa og Ólöf Helga brut­ust inn í póst­hólfið [email protected] til að stunda njósnir í póli­tískum til­gangi. En það er almennt talið gróft brot, ekki aðeins í skiln­ingi lag­anna, heldur ekki síður þegar kemur að þeim grund­vallar leik­reglum lýð­ræð­is­ins sem að okkur hefur verið kennt að virða og starfa eftir. Frá 12. jan­úar 2022 höfðu þær óheftan aðgang að öllum póstum sem að ég hafði mót­tekið og sent frá því 26. apríl 2018. Ekki var lokað fyrir aðgang­inn þegar að ég til­kynnti þann 28. jánúar síð­ast­lið­inn að ég gæfi kost á mér í kosn­ingum um for­ystu í Eflingu, en þar var Ólöf Helga einnig í fram­boði. Ekki var lokað fyrir aðgang­inn þegar að ég og félagar mínir á Bar­áttu­list­anum unnum svo lýðs­ræð­is­legar kosn­ingar í félag­inu 15. febr­úar. Þær létu ekki loka fyrir aðgang­inn fyrr en 5 dögum eftir að aðal­fundur félags­ins hafði verið hald­inn og ég var tekin við sem for­maður, eða þann 13. apríl.

Það eru fleiri leik­endur í þessu við­bjóðs­lega máli en þær og ábyrgð þeirra er mikil. En ábyrgð, og skömm, þess­ara tveggja kvenna er auð­vitað mest. Þær lögð­ust eins lágt og hægt er að hugsa sér. Þær beittu aðferðum í póli­tískum frama­leikjum sínum sem að engin mann­eskja með lág­marks sið­ferð­is­kennd myndi nokkru sinni nota. Þær grömsuðu og rót­uðu, lásu og prent­uðu, ekki í einn eða tvo daga, heldur í 4 mán­uði. Ekki af neinni ann­ari ástæðu en til að reyna að finna eitt­hvað sem að þær gætu notað gegn mér í póli­tískum til­gangi.

Engin umræða fór fram í stjórn félags­ins um þessar fyr­ir­ætl­anir Agnieszku og Ólafar Helgu, og stjórn var ekki upp­lýst þegar að póst­hólfið hafði verið tengt við Outlook-póst­hólf starf­andi for­manns. Hver­vegna? Jú, vegna þess að þetta mátti ekki frétt­ast. Þessu var haldið leyndu, af þeim tveimur og af þeim sem að lið­sinntu þeim í þessu ógeðs­lega njósna-verk­efni. Stjórn félags­ins var aldrei upp­lýst og ég var aldrei upp­lýst.

Agnieszka Ewa og Ólöf Helga hafa sýnt að þær svífast bók­staf­lega einskis. Þær hafa með fram­ferði sínu orðið sjálfum sér til ævar­andi skammar. Það hátt setta og máls­met­andi fólk innan og utan Alþýðu­sam­bands­ins sem styður fram­boð Ólafar Helgu hefur með þeim stuðn­ingi orðið sjálfu sér til ævar­andi skammar. Ég myndi segja að þau hefðu náð botn­inum, en því miður held ég að svo sé ekki. Í vissum kreðsum virð­ist botn­inn hvergi vera sýni­legur.

Enn á ný sjáum við að orð Styrmis Gunn­ars­sonar, mannsinns sem sjálfur njósn­aði um póli­tíska and­stæð­inga fyrir Morg­un­blaðið, Sjálf­stæð­is­flokk­inn og sendi­ráð Banda­ríkj­anna, eru hinn mikli sann­leikur um þjóð­fé­lagið okkar. Það er ömur­legt að þurfa að horfast í augu við það. Ég vona að við komust ein­hvern­tím­ann undan þess­ari bölvun. Við getum varla þolað lengur að svona sé fyrir okkur komið:

„Þetta er ógeðs­legt þjóð­fé­lag, þetta er allt ógeðs­legt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hug­sjónir, það er ekki neitt. Það er bara tæki­fær­is­mennska, valda­bar­átta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag