Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Húsfélag fundar um meintan kattarskít: „Það er verið að greina hvaða köttur á hvaða skít“

Húsfélag fundar um meintan kattarskít: „Það er verið að greina hvaða köttur á hvaða skít“
Köttur: Mynd úr mynda­banka

Upp er komið mál sem skekið hefur íbúa­hóp í Grafa­vogi. Dul­ar­fullur kúkur fannst á úti­svæði sam­eignar í blokk einni og er nú eig­and­ans leitað log­andi ljósum. Skiptar skoð­anir eru um hverskyns kúkur sé á ferð­inni.

Heitar umræður sköp­uð­ust á íbúa­grúppu á Facebook nýverið eftir að með­limur hús­fé­lags brýndi fyrir fólki að taka upp kúk gælu­dýra sinna í garð­inum við blokk­ina sem íbú­arnir búa í. Smá saman hitn­aði umræðan og voru skiptar skoð­anir um það hvort hundar eða kettir væri að skilja eftir sig skít hér og þar. Barst svo talið að kúkum á svölum sem ku vera vanda­mál í blokk­inni.

Deilan

„Það er svo mikið af lausum köttum á svöl­unum sem maður sér á hverjum degi, veit ekki hversu oft ég þarf að setja sama kött­inn út þegar ég er að lofta í gegn íbúð­ina með svalir og úti­hurð opna. Katta­skítur er nefni­lega á stærð við skít úr smá­hundi,“ skrif­aði nokkuð pirr­aður karl­maður í hópnum.

Konan sem mað­ur­inn var að tala við svar­aði að bragði: „Það er mjög óvenju­legt að kettir velji stein­steypt stæði frekar en gras/sand osfrv. Annars hef ég aldrei séð jafn stóran katt­ar­skit ef þetta er það.“

Karl­mað­ur­inn svar­aði og var bara nokkuð léttur á því: „Þú tekur myndir næst og setur 100 krónur fyrir hliðin á til sam­an­burðar en nei því miður skíta kettir útum allt, barna­vagna, geymslur þegar gluggar eru opnir og í stiga.“

Þessu tekur annar karl­maður í hópnum óstinnt upp: „Kettir kúka vana­lega ekki í barna­vagna, né geymslur, frekar í blóm eða álíka hef aldrei nokk­urn­tíman átt kött sem gerir þannig lagað og hef alltaf átt ketti.“

Enn einn karl­maður tjáði sig og var nokkuð harð­orður: „Lausa­ganga katta ætti að sjálf­sögðu að vera bönnuð. Lausa­ganga fòlks sem pikkar ekki upp skít­inn hjá hund­unum sínum líka.“

Þá kemur kona ein með athuga­semd þar sem hún furðar sig á þessu öllu saman: „Furðu­legt að kaupa sér hús­næði þar sem lagt er áhersla á að dýr séu leyfð og kvarta svo á íbúa­síð­unni yfir lausa­göngu katta.“

Svar barst fljót­lega frá manni í hópnum: „Ekkert sem sagði þegar ég keypti íbúð­ina að nágrann­arnir tæku ekki upp skít­inn eftir gælu­dýrin sín. Hef ekk­ert á móti gælu­dýrum. En að nágrann­arnir geti ekki hugsað um þau eða pikkað upp skít­inn eftir þau er annað.“

Konan svar­aði: „Algjör­lega sam­mála að þér þar, enda er ég ekki að tala fyrir því að skilja eftir hunda­skít. Þið nefnið báðir lausa­göngu katta sem hefur lengi verið lög­leg. Mér per­sónu­lega finnst und­ar­legt að flytja þangað sem mikið af fólki býr og þar sem eru aðeins tvær reglur, önnur þeirra ver­andi sú að gælu­dýra­hald er undir öllum kring­um­stæðum leyft og kvarta síðan yfir kött­unum sem gera engum neitt annað en að vera lausir. Gæludýr=kettir, kettir mega vera lausir en ef þið hafið gaman að því að kvarta yfir því á facebook þá get ég lítið stoppað ykkur.“

Katt­ar­kona lagði einnig orð í belg: „Ég hef bara séð enda­laust af hunda­skít þegar ég er að labba með kis­una mína. Hún þver­tekur fyrir það að kúka og pissa úti og heldur venju­lega í sér þar til við komum inn. Flestar kisur hrifnastat af því að geta mokað vel yfir kúk­inn sinn, svo ef það er á miðju ósönd­uðu/-mold­uðu svæði er lík­legra að það sé eftir hund.“

Ljósmyndin

Síðan birti kona nokkur ljós­mynd.

„Þetta blasti við mér þegar ég fór út í morgun. Ég tók þessa mynd til að bæta við þessa umræðu.

Hinn meinti katt­ar­kúkur

Þetta er í þriðja skiptið á mjög stuttum tíma sem það er skítur nákvæm­lega á þessum stað og höfum við þurft að hirða hann upp. Ég hef ekk­ert á móti kisum og finnst þær mjög sætar. Samt svo­lítið leið­in­legt að þurfa hirða upp skít frá dýri sem maður á ekki þar sem það er eng­inn sem labbar þarna alveg út á enda nema við og fólkið við hlið­ina (eng­inn bruna­stigi út á enda). Og enn verra ef þetta er eftir hund og hunda­eig­andi ákveður að skilja þetta eftir,“ skrif­aði konan en kúk­inn fann hún á steyptu úti­svæði sam­eign­ar­innar.

Ein konan svar­aði að bragði: „Mjööög skrítin hegðun hjá kisu. Ef þetta er alltaf á sama stað þá er þetta lík­leg­ast sama kisan… og kisan er lík­lega ekki að kom­ast lengra/alla leið út í garð. Þið sem eigið kisur og eigið heima á efri hæð­unum ættuð kannski að hugsa að halda á þeim út í garð á morgn­anna eftir nótt­ina svo þær kom­ist örugg­lega alla leið.“

Mannlíf ræddi við íbúa blokk­ar­innar um stóra kattakúka­málið, sem seg­ist hafa heyrt af því að hús­fé­lag blokk­ar­innar hafi fundað sér­stak­lega um kúká­standið á svæð­inu. Þykir íbú­anum þær 14.000 kr sem hann borgar á mán­uði í hús­fé­lagið, ekki nýt­ast sem skyldi ef fundað sé um gælu­dýrakúka á meðan þarfari mál sitji á hak­anum. „Það er ekki verið að byggja hleðslu­stöðvar, veg­ur­inn er ekki lag­aður, það er verið að greina hvaða köttur á hvaða skít.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð