Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Óþol Íslendinga á nektardansstöðum: „Við stúlkurnar erum engar klámstjörnur“

Óþol Íslendinga á nektardansstöðum: „Við stúlkurnar erum engar klámstjörnur“
Myndin er sam­sett

 „Ég fer úr öllu. Fyrir mér, er sá felu­gangur, að skilja eina eða fleiri flík eftir, óeðli­legur, því að nektin er það sem fólk borgar sig inn fyrir og nekt­ina fær það. Mér fynd­ist óþægi­legt að standa eftir á nær­bux­unum og þess vegna fer ég úr öllum fötum við sýn­ingar okkar. Þrátt fyrir það, geng ég ekki upp og glenni mig fyrir gestum okkar. Slíkt er klám, sem ég býð ekki upp á, og það fólk sem óskar þess að líta kyn­færi augum, nú, það getur ein­fald­lega rölt sér út í næstu bóka­búð og keypt sér klám­rit. Við stúlk­urnar erum engar klám­stjörnur. Mitt dag­lega líf á ekk­ert skylt við það sem ég geri á kvöldin og þess vegna er líf dans­ar­ans á vissan hátt ein­mana­legt, því í þessu starfi lærir maður að tor­tryggja náung­ann og á end­anum finnst manni allir karl­menn vilja það eitt og sama,“ sagði Caroline, 25 ára gömul sænsk nekt­ar­dans­mær á Café Bóhem, í sam­tali við Helg­ar­póst­inn 11. maí 1995.

Miklar og háværar óánægju­raddir ólm­uðu á tíunda ára­tug­inum vegna fjölda starf­ræktra nekt­ar­dans­staða. Í kjöl­far afhjúp­unar og frétta Helg­ar­póst­ins, í mars 1995, um starf­semi nekt­ar­dans­staða á Íslandi birt­ist um miðjan maí mánuð 1995 ítar­leg grein í Helg­ar­póst­inum þar sem rætt var við nokkra dans­ara sem störf­uðu á Café Bohem. Stað­ur­inn var stað­settur á þeim tíma í Klapp­ar­stígnum í miðbæ Reykja­víkur. 

„Þær mót­mæl­araddir er hafa ómað hvað öfl­ug­ast hér­lendis, koma frá fólki sem enga hug­mynd hefur um raun­veru­legt eðli starfa okkar og þjá­ist af kreddum,“[…] og kvaðst eilítið undr­andi yfir þeim mót­mæla­röddum og blaða­skrifum er hafa fylgt á eftir starfi þeirra á Klapp­ar­stígnum, en Caroline hefur unnið tölu­vert við þjálfun stúlkn­anna sem þar vinna. 

Sjá nánar https://gamla.mannlif.is/frettir/atjan-ara-nektardansmaer-leyfdu-theim-ad-thukla-sig-ad-vild-baedi-um-brjostin-og-milli-fotanna/

Í við­tali Helg­ar­póst­ins tjáir Caroline sig um upp­lifun sína á þeim menn­ing­ar­mun að starfa sem nekt­ar­dans­mær, í landi þar sem ekki voru for­dæmi fyrir slíkum sýn­ingum. Caroline hafði á þessum tíma rúm­lega fimm ára reynslu og hafði unnið víða um Evrópu. 

„Þessi hroki hefur komið mér í opna skjöldu, því í raun og veru stundum við eró­tískar kab­ar­ett­sýn­ingar, þrátt fyrir að dans­stúlk­urnar hafi hver sína tækni og vissu­lega hafi maður séð klám­fengna takta af og til í starfi, það við­ur­kenni ég fús­lega. En slíkt á ekki við um okkur. Sjálf hef ég starfað við grein­ina í fjöl­mörgum Evr­ópu­löndum í yfir fimm ár, og aldrei orðið fyrir slíkri óvirð­ingu sem stúlk­urnar máttu þola í byrjun starfa okkar hér í Reykja­vík fyrr á þessu ári. Ég tel Ísland afskap­lega aft­ar­lega á mer­inni í þessum efnum, og jafn­vel mörgum árum á eftir öðrum Evr­ópu­löndum hvað frjáls­ræði varðar.“ 

Gest­irnir ekki bara graðir kallar

Sterkar hug­myndir voru um sýn­ing­arnar, áhorf­enda­hóp­inn og til­gang­inn en þær hug­myndir ein­skor­uð­ust þær helst af gröðum köllum, sem illa gengi að næla sér ból­fé­laga og stund­uðu því nekt­ar­dans­stað­ina. Caroline fannst vert að leið­rétta þessar hug­myndir og sagði: „Um þriðj­ungur gesta okkar hvert kvöld eru konur. Oftlega hefur maður mætt óblíðu augna­ráði frá stúlkum og konum sem hafa komið niður eftir, og sumar þeirra virð­ast jafn­vel ótt­ast að við ætlum að stinga kærast­anum undan þeim. Oftlega sest ég niður hjá þeim að lok­inni sýn­ingu minni og útskýri eðli máls­ins fyrir þeim og leið­rétti þann mis­skiln­ing ef ein­hver er. Við stúlk­urnar erum í okkar vinnu, sem er að dansa, og reyni ég að útskýra það fyrir þeim.“

Fordómunum mætt með mennsku

Eins og flestum er kunn­ugt er bein teng­ing milli for­dóma og þekk­ing­ar­leysis. Caroline greindi í við­tal­inu frá atviki sem opn­aði ekki ein­ungs augu umræddrar konu heldur margra les­enda.

„Ég hef oft átt skemmti­legt spjall við þær konur er koma til okkar, og þegar spilin hafa verið lögð á borðið létt­ist á þeim brúnin. Reyndar svo mikið, að við höfum endað með nokkrar konur uppi á sviði, þar sem þær slíta hrein­lega utan af sér spjar­irnar. En fyrir nokkrum dögum kom á stað­inn til okkar maður, sem hafði talað móður sína, sem var snyrti­leg og vel klædd kona um sex­tugt, á að koma til okkar og njóta þess sem við bjóðum upp á. Konan sú átti erfitt með sig fyrsta hálf­tím­ann, en þegar ég hafði sest niður með henni og átt sam­tal við hana um raun­veru­legt eðli starfa okkar, var sem hún öðl­að­ist annan skiln­ing og slak­aði á. Hún fór þó stuttu seinna út aftur, en sonur hennar varð eftir.“

Tala bara við gesti gegn gjaldi

Caroline tjáði sig um kjörin og starfið. Hún lýsti starf­inu sem menn­ingar- og félags­legu er ætti ekk­ert skylt við vændi. Hún útskýrði jafn­framt að helm­ingur launa hennar væru skatt­frjálsar greiðslur sem kæmu beint úr vasa kúnn­ans, svo­kallað þjórfé. 

„Hér eru engin bak­sviðspartý þar sem menn fá inn­göngu gegn greiðslu og svo sann­ar­lega kaupa þeir sér ekki blíðu okkar sem störfum á staðnum. Við spjöllum oft­lega við menn­ina, því hluti okkar vinnu flokk­ast undir sós­íaler­ingu. Þó gerum við það aðeins gegn þjórfé. Við getum ekki haft tengsl við menn sem eiga engan pen­ing og vilja ólmir spjalla við okkur um tíma, við bar­borðið. Um fimm­tíu pró­senta launa okkar er þjórfé, og höfum við alveg nóg upp úr krafs­inu fyrir vikið. En að við seljum okkur, það er hel­ber mis­skiln­ingur. Hins vegar snýr svo við að hafi mað­ur­inn ekki fjár­magn á sér til að greiða okkur fyrir spjallið, snúum við okkur annað. Við getum ekki verið að eyða tíma okkar í fólk sem ekki getur reitt fram þjórfé, vegna þess að við gætum verið að þéna pen­inga ann­ars staðar.“

Líkt og fram kom í tengdum Bak­sýn­is­spegli Mannlífs var lög­bann sett á nekt­ar­dans­staði á Íslandi 2010. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag