Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Natasha S. fann fyrir skömm að vera Rússi: „Ég grét eftir hvert einasta símtal“

Natasha S. fann fyrir skömm að vera Rússi: „Ég grét eftir hvert einasta símtal“
Natasha S.

„Mér finnst þetta vera yfir­þyrm­andi; að fá verð­laun á þessum tíma er líka yfir­þyrm­andi og að vera fyrsti rit­höf­undur af erlendum upp­runa sem fær íslensk bók­mennta­verð­laun,“ segir Natasha S. sem nýlega fékk bók­mennta­verð­laun Tómasar Guð­munds­sonar fyrir hand­ritið Máltaka á stríðs­tímum. Þetta er ljóða­bók og eru ljóðin um mann­eskju sem fylgist úr fjar­lægð með stríðs­rekstri Rússa í Úkraínu. Natasha er rúss­nesk.

„Það gleður mig í raun­inni að það séu ennþá jákvæðar fréttir og að ég sé partur af því. Það var sjokk þegar ég frétti að ég fengi þessi verð­laun. Ég er glöð en samt er svo­lítið skrýtið að fá þau miðað við það sem er að ger­ast.“

RÚSSNESKA FYRIR FJÖLSKYLDUR

föð­ur­land snýr frá

móð­ur­mál þagnar

bræðra­stríð hefst

syst­ur­borg springur

Ég fékk áfall þegar Rússar réð­ust inn í Úkraínu.

Nathasha byrj­aði að skrifa ljóð um ástandið um tveimur vikum eftir inn­rás Rússa í Úkraínu í febr­úar.

„Ég fékk áfall þegar Rússar réð­ust inn í Úkraínu. Veru­leik­inn breytt­ist. Mér var síðan boðið að lesa upp ljóð í mars á við­burði á vegum Reykja­víkur bók­mennta­borgar og PEN á Íslandi en á alþjóða­degi ljóðs­ins stóðu Bók­mennta­borgin og Pen að ljóða­upp­lestri skálda sem lásu fyrir Úkraínu.“

Um var að ræða ljóð eftir úkra­ínsk skáld þýdd á íslensku og önnur að eigin vali. Skáldin gáfu laun sín til hjálp­ar­starfs í Úkraínu í sam­starfi við PEN. Boltinn var byrj­aður að rúlla og var Natasha ráð­lagt að skrifa ljóða­bók.

„Ég not­aði bók­menntir, orð og tungu­mál til að vinna mig úr áfalli og einn af þráðunum í bók­inni er sjálfs­hjálp.“

Natasha er með háskóla­próf í blaða­mennsku frá Rúss­landi og er með BA-próf í íslensku sem annað mál og sænsku sem auka­grein frá Háskóla Íslands.

Hún hefur þýtt íslenskar bækur á rúss­nesku auk þess að hafa rit­stýrt safn­riti, Póli­fónía af erlendum upp­runa, sem í eru ljóð skálda af erlendum upp­runa.

„Ég er að vinna núna í annarri bók en ég og Ewa Marcinek rit­stýrum henni og vinnum við þetta með Reykja­vík bók­mennta­borg en þetta verður rit­gerð­ar­safn höf­unda af erlendum upp­runa á Íslandi.“

Ofbeldi og óréttlæti

Natasha fædd­ist og ólst upp í Moskvu. Í mið­borg­inni. Hún hafði snemma mik­inn áhuga á tungu­málum og lærði svo blaða­mennsku í fimm ár í háskóla þar í borg.

„BA-nám tekur fimm ár í Rúss­landi.“

Hún útskrif­að­ist árið 2010.

Þá sér maður að hlut­irnir geta verið öðru­vísi og að sam­fé­lagið getur virkað á annan hátt.

„Ég bjó í sam­fé­lagi þar sem hlut­irnir virka ekki og þar sem oft þarf að borga; kerfið virkar bara þannig. Það snýst ekki bara til dæmis um að kom­ast í góða skóla eða góða háskóla heldur líka til að fá góða lækn­is­þjón­ustu. Svo getur fólk verið hand­tekið fyrir hvað sem er. Það er mikið ofbeldi og órétt­læti. Þetta var eðli­legt í mínum huga en þegar maður flytur annað og fjar­lægist þessar aðstæður þá sér maður að hlut­irnir geta verið öðru­vísi og að sam­fé­lagið getur virkað á annan hátt. Það er dálítið erfitt að lesa reglu­lega fréttir um ofbeldi og órétt­læti. Svo mega Rússar ekki fara til hvaða lands sem er. Við þurfum alltaf að fá vega­bréfs­á­rit­arnir og við þurfum að sýna fram á að við séum með nægar tekjur og séum í vinnu og að við munum koma til baka.“

Natasha tók stundum þátt í mót­mælum vegna falskra kosn­inga­úr­slita.

Síðustu mán­uði hefur hún séð um félags­starf fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk hjá Rauða krossi Íslands.

Natasha hlust­aði oft á lög með íslensku hljóm­sveit­inni Sigur Rós og þannig kynnt­ist hún í raun­inni Íslandi og skráði hún sig í íslensku­nám í tungu­mála­skóla í Moskvu sam­hliða háskóla­nám­inu í blaða­mennsku.

Hún kom fyrst til Íslands sum­arið 2009 til að fara á íslensku­nám­skeið. Hún kláraði síðan háskóla­námið í Rúss­landi 2010 og vann eftir það hjá kanadíska sendi­ráð­inu og flutti síðan til Íslands 2012.

Á árurnum 2014-2018 bjó hún í Svíþjóð þar sem hún vann við umönnun. Natasha flutti aftur til Íslands eftir Sví­þjóð­ar­dvöl­ina og hefur búið hér síðan. Hún hefur meðal ann­ars unnið á frí­stunda­heim­ili fyrir fötluð börn og í bóka­búð. Síðustu mán­uði hefur hún séð um félags­starf fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk hjá Rauða krossi Íslands.

Óttinn erfiðastur

Svo skall stríðið á í febr­úar. Rússar réð­ust inn í Úkraínu.

Hún fann fyrir skömm.

„Ég fann fyrir ofboðs­lega mik­illi skömm. Ég man að þetta var mjög skrýt­inn dagur. Ég hafði sam­band við vini mína í Rúss­landi og allir skömm­uð­ust sín ofboðs­lega mikið. Það er erfitt að útskýra þessa til­finn­ingu. Maður til­heyrir ein­hverri svona mik­illi illsku sem maður getur ekki losnað við og þetta mun alltaf fylgja manni en með tím­anum verður þessi til­finn­ing minni. Ég var í fyrstu svo­lítið mátt­laus.“

Stríðið varð stór þáttur í lífi Natasha en fyrir utan að skrifa ljóð um stríðið fór hún að vinna sem sjálf­boða­liði til að aðstoða úkra­ínskt flótta­fólk á Íslandi og umgekkst mest rúss­neska og úkra­ínska vini sína á Íslandi.

„Það sner­ist allt um stríðið en það var gott að upp­götva hversu mikil hjálp er í því að hjálpa öðrum og vera saman. Okkur leið illa og við áttum það sam­eig­in­legt og það var þess vegna gott að vera saman í þessu og hjálpa hvert öðru.“

Þau heyra aðra hlið á mál­inu í rúss­neskum fjöl­miðlum.

Natasha talar um fjöl­skyldu sína í Rúss­landi sem hún segir að hafi ekki sömu skoðun og hún á inn­rásinni.

„Það er þess vegna erfitt að eiga í sam­skiptum við þau; þau heyra aðra hlið á mál­inu í rúss­neskum fjöl­miðlum. Við öskr­uðum mikið á hvert annað þegar við töl­uðum saman og ég grét næstum því eftir hvert ein­asta sím­tal. Svo tók ég þá ákvörðun að ég ætl­aði ekki að leyfa stríð­inu og Pútín að eyði­leggja fjöl­skyldu mína; það er líka partur af bar­átt­unni að leyfa ekki hatri og ótta að vinna. Það sem við getum gert er að vera góð, hlý og elska hvert annað,“ segir Natasha og ákvað fjöl­skyldan að hætta að tala um stríðið.

Natasha segir að ótt­inn sé erf­ið­astur. Hún fór til Rúss­lands fyrir nokkrum vikum og var þar þegar herkvaðn­ing var til­kynnt.

„Þetta var ofboðs­lega erf­iður dagur því ég upp­lifði eins og stríðið væri að byrja aftur. Ég vissi ekki hvort ég kæm­ist úr landi. Ég upp­lifði mik­inn ótta þennan dag en sem betur fer er ég komin til baka. Til­finn­inga­legur ótti er erf­iður; hann er lam­andi og manni finnst maður ekki geta gert neitt.“

Natasha segir frá rúss­neskum vini sínum sem flúði til Kirgistan eftir herkvaðn­ing­una.

„Hann skildi fjöl­skyldu sína eftir og fyr­ir­tæki og hann er í Kirgistan þar sem er hvorki hiti né inter­net. Það er svo skrýtið að þetta sé veru­leik­inn.“

Samloka en ekki pólitík

Natasha sagð­ist finna fyrir skömm og hún afneitar þjóð­erni sínu á vissan hátt.

Ég vildi bara fá sam­loku en ekki ræða um póli­tík.

„Ég var í Svíþjóð fyrir nokkrum vikum og gisti hjá vin­konu minni sem fædd­ist í Eist­landi en ólst upp í Rúss­landi. Við vorum að spjalla um þetta allt og hún sagð­ist vera farin að segja fólki að hún sé frá Eist­landi. Hún vill ekki fara að tala um stríðið í hvert ein­asta skipti sem hún kynn­ist fólki. Ég keypti sam­loku þegar ég var í Svíþjóð og var þá spurð hvaðan ég væri. Ég sagð­ist vera frá Íslandi. Ég gerði þetta ósjálfrátt; ég vildi bara fá sam­loku en ekki ræða um póli­tík. Það er orðið nei­kvætt að segj­ast vera frá Rúss­landi.“

Talið ber­ast að nafn­inu hennar. Natasha S. Hún notar ekki eft­ir­nafnið sitt sem rit­höf­undur.

„Mig langar ekki til að lenda í vand­ræðum af því að það á ekki að tala opin­ber­lega í Rúss­landi um það sem ljóðin eru um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag