Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Bubbi Morthens til bjargar: „Á sínum tíma bjargaði Kvennaathvarfið lífi mínu“

Bubbi Morthens til bjargar: „Á sínum tíma bjargaði Kvennaathvarfið lífi mínu“
Myndin er sam­sett

Í ár eru fjöru­tíu ár eru liðin frá stofn­fundi Samtaka um kvenna­at­hvarf  sem var hald­inn 2. júní 1982. Kvenna­at­hvarfið hóf starf­semi sína 7. des­em­ber 1982. Á þeim 40 árum sem Kvenna­at­hvarfið hefur verið starf­rækt hefur gengið á ýmsu rekstr­ar­lega séð. Fjár­hags­legur barn­ingur ein­kenndi fyrstu ár sam­tak­anna, sem þrátt fyrir allt lögðu og enn leggja kapp við að aðstoða konur á Íslandi að losna úr viðjum heim­il­is­of­beldis.

„Hvernig fram­haldið verður veit ég ekki. Ég er orku­lítil eftir þessi átök og ekki góð á taugum. Svona nokkuð tekur mjög á mann og ég óska engri konu þess að ganga í gegnum það sem ég hef þurft að gera. Og ég á ekki mörg ráð handa konum sem kunna að lenda í þessu, — og þó. Eitt ráð á ég. Kvenna­at­hvarfið. Ég hvet allar konur sem lenda í blind­götu heima hjá sér á einn eða annan hátt og verða fyrir kúgun á heim­ili sínu, að leita hik­laust til Kvenna­at­hvarfs­ins. Þar er engri konu úthýst sem á aðstoð þarf að halda. Þar er einnig gott að vera og þar eru konur sem skilja vanda­málið og hollt er að tala við. Það er ekk­ert vafa­mál að á sínum tíma bjarg­aði Kvenna­at­hvarfið lífi mínu.“ 

Fram­an­greindur texti eru loka­orð frá­sagnar konu sem varð fyrir þrá­fald­legum lík­ams­meið­ingum af hendi geð­sjúks eig­in­manns hennar og birt­ust þriðju­dag­inn, 3. febr­úar 1987 í Þjóð­vilj­anum.

„Aðsóknin að Kvenna­at­hvarf­inu í Reykja­vík, sem opnað var í des­em­ber 1982 bendir til þess að mikið sé um ofbeldi á heim­ilum hér á landi. Meiri­hluti kvenn­anna sem koma í athvarfið er eldri en 36 ára. Við vitum ekki hvort ofbeldi hefur vaxið eða minnkað, vegna þess að upp­lýs­ingar vantar frá fyrri árum,“ eft­ir­far­andi kom fram í árs­riti Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands, 19. Júní frá 1984. Þar nefndi Hildigunnur Ólafs­dóttir, afbrota­fræð­ingur meðal ann­ars að Kvenna­at­hvarfið væri mik­il­vægur þáttur við­spyrnu kvenna sem orðið hafa fyrir ofbeldi þá segir Hildigunnur jafn­framt: „Mjög mik­il­vægt er að konur sem hafa orðið fyrir nauðgun geti leitað til ann­arra kvenna og fengið stuðn­ing. Konur verða að læra að slá til baka og búast til varnar. Kvenna­at­hvarfið er liður í því.“

Húsnæðisvandinn

Hús­næð­is­vandi elti sam­tökin en föstu­dag­inn 8. apríl 1983 eða um það bil fimm mán­uðum frá stofnun Kvenna­at­hvarfs­ins, birt­ist eft­ir­far­andi í Helg­ar­póst­inum:

Kvenna­at­hvarfið er nú nokkuð í sviðs­ljós­inu vegna þess að það er að missa núver­andi hús­næði sitt og hefur hafið söfnun til kaupa á eigin húsi. Konurnar sem stýra athvarf­inu segja að reynsla síð­ustu mán­aða hafi sýnt að mikil þörf sé á slíku hús­næði, og ekki skal það dregið í efa. Hins vegar heyrum við að ekki komi allar konur lúbarðar af mönnum sínum til Kvenna­at­hvarfs­ins. Þangað leiti ekki síður hús­næð­is­lausar konur sem til dæmis eru að skilja við menn sína, eða koma utan af landi til Reykja­víkur. Heyrum við að Kvenna­at­hvarfið sé í hinum mestu vand­ræðum vegna ásóknar þess­ara kvenna, sem ekki þykir stætt á að vísa burt…

Sjálfstæðisflokkurinn tregir við styrkveitingu

Árið 1986 var sér­stak­lega erfitt fjár­hags­lega hjá athvarf­inu. Í Þjóð­vilj­anum  8. maí 1986 er fjallað um hvernig Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þrá­að­ist við að greiða út styrk til Kvenna­at­hvarfs­ins: „Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa enn ekki feng­ist til að greiða Samtökum um kvenna­at­hvarf 625 þús­und króna styrk sem sam­þykktur var við afgreiðslu fjár­hags­á­ætl­unar borg­ar­innar fyrir þetta ár. Á fundi borg­ar­ráðs í vik­unni var til­lögu Sig­ur­jóns Pét­us­sonar um að styrk­ur­inn yrði greiddur enn frestað og verður hún ekki afgreidd fyrr en í næstu viku.“

Var einnig rætt við Ólöfu Briem sem starf­aði í athvarf­inu. Hún tók fram að á degi hverjum væri þar 15 – 20 börn og konur og þörfin brýn.

„Sem fyrr segir hefur til­lögu Sig­ur­jóns Pét­urs­sonar í borg­ar­ráði verið frestað tví­vegis og verður ekki afgreidd fyrr en í næstu viku. Þá verða liðnir fjórir mán­uðir frá því borg­ar­stjórn sam­þykkti að veita þennan styrk.“

Af fjár­hags­erf­ið­leikum sam­tak­anna fór ekki var­hluta í fjöl­miðlum en í dálknum Frétta­póst­inum í Helg­ar­póst­inum frá 24. júlí 1986 var stiklað á stóru og tveimur mán­uðum eftir ofan­greinda frétt bólaði ekk­ert á styrk­veit­ingu frá borg­ar­ráði:

„Kvenna­at­hvarfið á hausnum 

Kvenna­at­hvarfið á við mikla fjár­hags­erf­ið­leika að stríða, en til­lögu minni­hlut­ans í borg­ar­stjórn um taf­ar­lausa greiðslu á seinni helm­ingi þeirra 625 þús­und króna sem athvarfið fékk úthlutað á fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar, var vísað frá á borg­ar­ráðs­fundi á þriðju­dag. Fjár­hags­staða Kvenna­at­hvarfs­ins er svo bág að ekki hefur reynst unnt að borga starfs­mönnum til­skilin laun og ekki reynst unnt að hefja lag­fær­ingar á ann­ars hálf­ónýtu húsi athvarfs­ins. En þótt opin­berir fjár­veit­inga­menn séu tregir á athvarfið sér hauk í horni sem er Bubbi Morthens en hann mun gang­ast fyrir tón­leikum til styrktar athvarf­inu. Kvenn­athvarfið fékk um 2 millj­ónir á fjár­lögum rikis­ins til ráð­stöf­unar en gróf­lega áætlað vantar eina milljón upp á svo unnt reyn­ist að starf­rækja athvarfið fram að ára­mótum.“

Bubbi Morthens til bjargar 

Í Tímanum, mið­viku­dag­inn 23. júlí 1986 birt­ist frétt undir fyr­ir­sögn­inni „BUBBI TIL BJARGAR KVENNAATHVARFINU“. 

„Bubbi Morthens hefur ákveðið að halda styrkt­ar­tón­leika fyrir Kvenna­at­hvarfið í skemmti­staðnum Roxzy á föstu­dags­kvöld klukkan 22. Kvenna­at­hvarfið stendur frammi fyrir gjald­þroti, fáist ekki auknar fjár­veit­ingar til við­gerða og við­halds á hús­næð­inu. Nú hefur Bubbi hlaupið undir bagga með athvarf­inu og vonir standa til að hann og aðrir tón­list­ar­menn geti bjargað Kvenna­at­hvarf­inu undan hamr­inum.“

Rætt var við umboðs­mann Bubba, Viðar Arnarson sem sagði: „Hug­myndin kvikn­aði þegar ég og Bubbi vorum að horfa á sjón­varps­fréttir á sunnu­dag og sáum frétt um vanda athvarfs­ins. Bubbi kveikti á þessu eins og skot og við ætlum að gera það besta úr þessu, með til­liti til þess hversu stuttan tíma við höfum til und­ir­bún­ings.“  

„Edda Scheving hjá Kvenna­at­hvarf­inu sagði í sam­tali við Tímann í gær að þær væru afskap­lega þakk­látar. „Þegar ég frétti af þessu í gær fór ég beint heim til mín og spil­aði „Konu“ með Bubba Morthens, lok­aði aug­unum og brosti. Ég trúi þessu bara varla ennþá,“ sagði Edda. Hún taldi að þetta væri senni­lega besta aug­lýs­ing sem Kvenna­at­hvarfið hefur fengið til þessa og hún sagð­ist vona að þetta „yrði til þess að opna á stjórn­völdum augun“.

Mynd/skjá­skot frá tíma­rit.is/DV Bubbi og Viðar umborðs­maður hans fengu blóm eftir fyrstu Kvenna­at­hvarfs­tón­leik­ana

Í DV, 13. októ­ber 1986 var við­tal við Viðar Arnarson umboð­mann Bubba aðspurður hvort hann hafi ein­hverja hug­mynd um hversu miklu fé þeir geti safnað: Það er erfitt að segja til um það, en við von­umst eftir að geta safnað 600.000 kr. og þá er fjár­hags­vandi athvarfs­ins úr sög­unni. Í dag hafa þær fjár­magn til dag­legs rekstur en það vantar pen­ing í við­gerðir og við­hald. Þessir pen­ingar koma því til með að tryggja rekstur athvarfs­ins og verða ekki aðeins gálga­frestur.“ 

Hjá sama miðli 12 dögum síðar eða 25. októ­ber 1986 segir Viðar: „Í dag vantar tæp­lega fimm hund­ruð þús­und upp á að það tak­ist. Það skiptir engu hvaðan pen­ing­arnir koma. Þeir sem kom­ast ekki á tón­leik­ana geta eins sent Kvenna­at­hvarf­inu pen­inga í gegnum gíró“

Draumur um hentugra húsnæði

Nú í nóv­em­ber 2022 stendur Kvenn­athvarfið fyrir söfnun vegna nýs hús­næðis og segir á heima­síðu þess:

„Okkur dreymir um að geta boðið öllum kon­unum okkar og börnum þeirra upp á heim­ili á einum stað þar sem hugað er að þeirra þörfum og hags­munum. Því höfum við ákveðið að ráð­ast í bygg­ingu nýs athvarfs sem er sér­stak­lega hannað með það í huga að sinna á einum stað þeirri fjöl­breyttu þjón­ustu sem við veitum. Með nýju hús­næði getum við einnig stór­bætt aðgengi okkar sem því miður er ekki gott í núver­andi hús­næði.

Fengist hefur fjár­magn frá rík­inu til að koma verk­efn­inu af stað, en við þurfum á stuðn­ingi allra lands­manna að halda til að nýtt athvarf geti orðið að veru­leika. Í byrjun nóv­em­ber verður lands­söfnun í bygg­ing­ar­sjóð fyrir nýju athvarfi á Stöð 2, en fram að þeim tíma verða fjöl­margar aðgerðir í gangi til að afla fjár til bygg­ingar á nýju athvarfi.

Söfnunin er tví­þætt, ann­ars vegar verður óskað eftir styrk­lof­orðum frá ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum og hins vegar verður haldið list­muna­upp­boð, þar sem fólki gefst tæki­færi á að gefa og kaupa list­muni, þar sem ágóð­inn rennur óskiptur til söfn­un­ar­innar.

Það er ein­læg ósk okkar að lands­menn legg­ist á árarnar með okkur og aðstoði okkur við að reisa nýtt, vel búið Kvenna­at­hvarf þar sem allar konur sem þurfa á okkur að halda og þeirra börn, verða boðnar hjart­an­lega vel­komnar.“

Hér er hægt að kynna sér styrkt­ar­leiðir Kvenna­at­hvarfs­ins

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag