Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Guðrún Eva segir þjáningu hafa tilgang: „Sorgin gleymir engum“

Guðrún Eva segir þjáningu hafa tilgang: „Sorgin gleymir engum“
Guðrún Eva Mínervu­dóttir.

Guðrún Eva Mínervu­dóttir rit­höf­undur birtir á Facebook-síðu sinni hug­vekju sem hún flutti á aðventu­kvöldi í Hvera­gerð­is­kirkju. Hug­vekjan virð­ist snerta ein­hverja taug hjá lands­mönnum því hún hefur vakið mikil við­brögð á sam­fé­lags­miðlum. Hug­vekj­una má lesa í heild sinni hér fyrir neðan en þar ræðir Guðrún Eva um það hvernig þján­ing og mót­læti sé ekki með öllu nei­kvætt. Með því að ganga í gegnum áföll þá auk­ist meðal ann­ars sam­kennd fólks með öðrum.

Hugvekja á aðventu­kvöldi í Hvera­gerð­is­kirkju:

Eitt er það sem ég hef varið mest­allri ævinni í að reyna að til­einka mér. Og það er: Að treysta líf­inu. Jafn fífl­djarft og það kannski hljómar. Og mót­sagna­kennt. Lífið er jú algert ólík­inda­tól, full­kom­lega óút­reikn­an­legt. Hér er ekk­ert öruggt annað en breyt­ingar (stundum óvel­komnar), hrörnun og dauði.

Ef það væri létt og sjálf­sagt að treysta líf­inu tæki því kannski ekki að tala um það. Ég þarf ekki að útlista allar þær hörm­ungar sem geta dunið á einni mann­eskju. Allt sem hægt er að fara á mis við. Við erum óvarin fyrir sorgum heims­ins og fáum öll okkar skerf. Von­brigði eru sjálf­gef­inn hluti af líf­inu. Sárs­auk­inn óum­flýj­an­legt hlut­skipti okkar. Stundum finnst mér jafn­vel að helsta og eina öryggið sé fólgið í til­hugs­un­inni um dauð­ann; að hann muni á end­anum bjarga okkur öllum úr þessum, að mörgu leyti fagra, en um leið stór­hættu­lega, tára­dal. En ég veit ekki hvort það má tala með þessum hætti þótt um sjálf­sagða hluti sé að ræða og nú skal ég reyna að koma mér að efn­inu: Nefni­lega því sem ekki er sjálf­sagt. Og það er: Að líf­inu er treystandi fyrir því sem máli skiptir. Við getum alveg treyst því að reynslan færi okkur, á hverju ein­asta and­ar­taki, tæki­færi til að vaxa og vitkast.

Mér finnst góður ávani þegar eitt­hvað ónota­legt eða óæski­legt ger­ist að spyrja þeirrar klass­ísku spurn­ingar: „What´s in it for me?“ Hvað græði ég á þessu? Í merk­ing­unni: Hvaða and­lega lær­dóm er lífið að færa mér? Þetta hljómar kannski eig­in­gjarnt, en þannig er það bara ef við lítum á innri vöxt sem einka­mál hvers og eins.

En útvíkkun hug­ans og stækkun hjart­ans er ekki okkar einka­mál heldur eitt­hvað sem hefur áhrif langt út fyrir sig. Ef við munum að við erum verk­færi til góðs í heim­inum þá má segja að okkur beri bein­línis að brýna okkur og efl­ast. Og ef þján­ingin þjónar okkur með því til dæmis að tálga af okkur hégómann og dýpka sam­kennd­ina þjónar hún heim­inum líka.

Nú vil ég ekki meina að við vöxum ein­göngu í gegnum þján­ingu, alls ekki. En sumur skiln­ingur virð­ist ekki í boði nema gegn gjaldi sem greið­ist með mót­læti, mis­tökum eða missi. Er ég þá að upp­hefja þján­ing­una? Nei. Bara að segja að hún sé ekki til einskis. Að hún þjóni sínum til­gangi. Að þótt þján­ing valdi stundum meiri þján­ingu (sært fólk eigi það til að særa fólk og skað­leg mynstur húkki sér far með kyn­slóð­unum og allt það) sé sumt sem við getum ekki skilið til fulls nema hafa gengið í gegnum erf­iða hluti.

Okkur er sagt að sýna góð­vild og umburð­ar­lyndi því við vitum ekki hvað næsti maður hefur þurft að ganga í gegnum. En eig­in­lega getum við einmitt gert ráð fyrir að flestar mann­eskjur sem við mætum eigi sína mis-hrika­legu áfalla­sögu. Sorgin gleymir engum.

Tækist ein­hverjum að sleppa ódýrt frá þessu öllu, svona reynslu­lega séð, myndi mögu­lega vanta eitt­hvað. Andlega rým­is­greind. Með­vit­und um ber­skjöldun og hverf­ul­leika. Skilning á að fólk geti verið bogið, snúið, bælt og laskað af áföllum en stærra og dýpra fyrir vikið.

Of mikið sak­leysi er ekki hlut­skipti sem ég óska mér til handa. Þó svo að reynslan geti verið dýru verði keypt. Sakleysi er ofmetin teg­und mann­gæsku. Ég vil vita. Ég vil skilja. Ég er fegin því að geta horft í augu ann­arra og sagt: ég veit, ég skil, ég líka.

En svo er hitt að miðað við hvað lífið er háska­legt er merki­lega mikil vel­sæld í gangi. Fólk er að mestu leyti gott hvert við annað. Við hjálp­umst að. Við látum í okkur heyra frammi fyrir órétt­læti. Þegar eitt­hvert okkar er kné­sett af erf­ið­leikum streymir fólk fram til stuðn­ings. Ég veit að sumir hafa aðra sögu að segja, en langoft­ast er þetta svona.

Það er líka merki­lega margt sem bara virkar. Og sér­lega margt sem gæti farið úrskeiðis en gerir það ekki. Við getum verið sam­mála um að flestar hvers­dag­legar áhyggjur okkar séu óþarfar. Hlut­irnir sleppa vana­lega fyrir horn, mál eiga það til að redd­ast, það greið­ist úr flækjum, vesen og drama líða hjá.

Það fyndn­asta við lífið finnst mér kannski að við virð­umst ekki hafa hug­mynd um hvað okkur er fyrir bestu. Eða kannski er það bara ég. Í það minnsta verð ég vör við að margt af því sem ég ótt­að­ist og harm­aði reynd­ist þegar upp var staðið mín mesta gæfa. Og sumar óskir sem feng­ust upp­fylltar urðu mér fjötur um fót.

Ef ég gæti bara alltaf munað þetta, væri líf mitt ólíkt nota­legra. Ég er nefni­lega alls ekki „með þetta“. Þó svo að heita eigi að ég „viti“ allt þetta sem ég var að enda við að útlista er ég stundum illa haldin af kvíða, meira og minna alltaf í við­bragðs­stöðu og hef hell­ing af óþörfum áhyggjum. Það sem gerir þetta allt bæri­legt er and­leg nær­ing, inn­byrt með öllum skiln­ing­ar­vitum, tengslin við vini — þessa heims og ann­ars — og síð­ast en ekki síst innra sam­talið sem er að mestu leyti upp­byggi­legt og hug­hreystandi.

Við­bragðs­staðan er alveg örugg­lega afleið­ing af áföllum en bjarti tónn­inn í innra sam­tal­inu er líka til kom­inn af reynslu. Þessu sem ég veit vegna þess að ég hef upp­lifað það. Vegna þess þrátt fyrir áföllin og við­bragðs­stöð­una hefur reynslan kennt mér að treysta líf­inu. Svo mót­sagna­kennt. Ég veit. Ekkert við því að gera. Njótum aðvent­unnar, kæru vinir. Kveikjum ljós í myrkr­inu. Eða kveikjum í myrkr­inu, bara. Nei, smá grín. Berum virð­ingu fyrir hásk­anum og elskum myrkrið því það er bara týnt og ein­mana. Lýsum upp til­ver­una með því að halda áfram að hjálpa hvert öðru, styðja, hvetja og hlúa að. Það er til­gangur lífs­ins. Og við stöndum okkur alveg ágæt­lega. Því eitt er alveg öruggt mál í mínum huga: Að allir eru alltaf að gera sitt besta. Ef við gætum gert betur þá myndum við gera það! Megi gleðin og sam­kenndin umvefja okkur. Núna og alltaf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag