Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landsréttur staðfesti skilorðsbundinn dóm yfir konu sem áreitti aðra konu: „Ofbeldið tapaði í dag!“

Landsréttur staðfesti skilorðsbundinn dóm yfir konu sem áreitti aðra konu: „Ofbeldið tapaði í dag!“
Höfn í Horna­firði Mynd: hornafjordur.is

Í dag stað­festi Lands­réttur tveggja mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm yfir konu á sex­tugs­aldri fyrir kyn­ferðsi­lega áreitni gangvart annarri konu á hót­el­her­bergi í Reykja­vík fyrir þremur árum. Konurnar voru sam­starfs­fé­lagar úr sveit­ar­fé­lag­inu Horna­firði en brota­þol­inn hrökkl­að­ist frá Höfn í kjöl­far máls­ins.

Leitaði á hana um hánótt

Fram kemur í frétt Rúv um málið að sú dæmda hafi sagt fyrir Lands­rétti að málið hefði fengið mjög á sig og að hún væri útskúfuð úr sam­fé­lag­inu á Horna­firði.

Mannlíf fjall­aði tals­vert um málið en það kom upp í apríl 2019.

Sjá meira hér: Hraktist frá Höfn eftir kyn­ferð­is­lega áreitni – „Fór þangað um miðja nótt til að sækja dótið sitt“

Í dóm­inum kemur fram að konan hefði verið ásamt sex öðrum konum, stödd á hót­eli í Reykja­vík í apríl 2019. Fóru þær saman út að borða í mið­borg­inni en áfengi var haft um hönd. Eftir að þær luku matnum fór hluti hóps­ins á fleiri veit­inga­staði. Snéri hóp­ur­inn svo aftur á hót­elið um mið­nætti en safn­að­ist saman í einu hót­el­her­bergj­anna. Þar sinn­að­ist brota­þol­anum og ger­and­inn í mál­inu sem varð til þess að hóp­ur­inn ákvað að nú væri kom­inn tími til að fara að sofa, hver í sínum vist­ar­verum.

Ger­and­inn í mál­inu fór í fram­hald­inu inn í her­bergi til brota­þol­ans þar sem þær ræddu saman og lögð­ust svo til svefns í tveimur sam­liggj­andi rúmum. Sagðist brota­þol­inn hafa vaknað við það seinna um nótt­ina að konan var að áreita hana kyn­ferð­is­lega með káfi og orðum.

Neitaði konan alfarið fyrir dómi að þetta hefði gerst. Sagði hún í við­bót­ar­skýrslu fyrir Lands­rétti að mál þetta hafi haft afar mikil áhrif á hana og að hún væri nú útskúfuð úr sam­fé­lag­inu á Horna­firði.

Telur Lands­réttur að konan hefði átt að átta sig á því að hátt­ar­lagi hennar fælist kyn­ferð­is­leg áreitni. Þá segir í dómnum að ekki sé heldur hægt að líta fram hjá því að ummæli hennar hafi verið sögð í tengslum við ósam­þykkta og óvel­komna snert­ingu af kyn­ferð­is­legum toga. Stað­festi Lands­réttur því fyrri dóm um tveggja mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm en lækk­aði miska­bæt­urnar úr 450.000 í 350.000 krónur.

Fagnar fullnaðarsigri

Brota­þol­inn í mál­inu, skrif­aði Facebook-færslu í dag um nið­ur­stöðu Lands­réttar þar sem hún fagnar það sem hún kallar fulln­að­ar­sigri. Segir hún að eng­inn eigi að láta ganga yfir sig og verða mis­boðið. Hún gaf Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að birta færsl­una í heild sinni:

„Lífið er ekki eftir fyr­ir­fram gefnu hand­riti og kemur sífellt á óvart. Fyrir 3 árum og 8 mán­uðum varð ég fyrir grófri kyn­ferð­is­legri áreitni af hálfu sam­starfs­konu í vinnu­ferð og kærði ég það. Fyrir rúmu ári var umrædd kona sak­felld í hér­aðs­dómi fyrir brotið. Í dag féll svo dómur í mál­inu fyrir Lands­rétti þar sem nið­ur­staða hér­aðs­dóms var stað­fest, og betur til. Þetta er búinn að vera erf­iður tími og margir sem komu að mál­inu, t.a.m. fyrrum vinnu­veit­andi minn úti á landi, brugð­ust að öllu leiti þegar ég þurfti á stuðn­ingi að halda. Þessi dómur er því áfell­is­dómur fyrir fleiri en dæmdu. En sem betur fer á ég sterkt bak­land og raða í kringum mig fólki sem er betur inn­réttað og hafa stutt mig og staðið við bakið á mér í gegnum þetta.

Í dag fagna ég fulln­að­ar­sigri með sumu af þessu góða fólki.Það á eng­inn að láta yfir sig ganga og verða mis­boðið. Þó þetta hafi tekið langan tíma þá var það þess virði.Ofbeldið tap­aði í dag!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina