Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Hraktist frá Höfn eftir kynferðislega áreitni – „Fór þangað um miðja nótt til að sækja dótið sitt“

Höfn í Hornafirði
Höfn í Horna­firði Mynd: hornafjordur.is

Kona, sem önnu kona braut á kynferðis­lega, hefur ekki stigið fæti á Höfn síðan brotið átti sér stað. Systir bæjar­stjórans er gerandinn í málinu.

Mikil óværð er á Horna­firði vegna máls sem snýr að kynferðislegri áreitni konu á hendur annarri konu. Á fimmu­daginn féll dómur í málinu, sem upp kom vorið 2019. Gerandinn hefur fengið að starfa óáreittur hjá bænum frá því að atvikið átti sér stað en þolandinn hrökklaðist frá. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Mannlífs er gerandinn systir Matthildar Ásmundar­dóttur, bæjar­stjóra sveita­félagsins Horna­fjarðar og var framkvæmdar­stjóri hjá sveitar­félaginu þegar brotið átti sér stað. Samkvæmt heimildum Mannlífs var ráðning systur bæjar­stjórans nokkuð umdeild á Höfn en viðmælendur Mannlífs kannast ekki við að staðan hafi verið auglýst. Var hún ráðin af sveitar­félaginu þegar Matthildur var orðinn bæjar­stjóri en síðan þá hefur einka­fyrirtæki tekið yfir rekstur stofnunarinnar. Hún vinnur þar enn.

Konan var sakfelld fyrir kynferðis­lega áreitni gegn annarri konu en atvikið átti sér stað í rúmi á hótel­herbergi við Rauðarár­stíg er kvenna­hópur frá Horna­firði fór í vinnuferð til Reykja­víkur. Báðar konurnar voru starfs­menn sveitar­félagsins. Var konan dæmd í tveggja mánaða skilorðs­bundið fangelsi vegna brotsins, sem skilgreint er sem kynferðisleg áreitni, og til greiðslu 450.000 króna í skaða­bætur auk máls­kostnaðar.

Í samtali við Mannlíf segir manneskja sem ekki vill láta nafn síns getið en tengist málinu, að málið hafa verið afar erfitt fyrir þolandann. „Þegar þetta mál kemur upp, þá er bara allt mjög subbulegt í kringum það skilurðu, brot er bara brot og það er svo allt annar hand­leggur, búið að dæma í því. En það er þessi vinnsla í þessu máli, hún veldur því að brota­þolinn hefur ekki stigið fæti sínum á Höfn eftir þetta nema að hún fór þangað um miðja nótt til að taka saman dótið sitt. Þetta var bara ömurleg staða að vera í.“

Matthildur Ásmundar­dóttir neitaði að tjá sig að svo stöddu er Mannlíf falaðist eftir viðbrögðum.

Dv fjallaði fyrst um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Desember nálgast óðum
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Vildi hitta nýja kærastann og beitti fyrrverandi ofbeldi

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“