Herbert Guðmundsson er mættur enn og aftur á sjónarsviðið með glænýtt lag. Í þetta sinn er um að ræða dúndrandi danstakta.

Herbert í öllu sínu veldi.
Herbert okkar Guðmundsson eða Hebbi eins og hann er oft kallaður, var rétt í þessu að gefa út smáskífuna „Ólgandi augu þín“ en um er að ræða danssmell. Lagið og textann samdi hann í samstarfi við Hlyn Jakobsson, Friðrik Sturluson og Halldór Á. Björnsson, pródusent. Þeir Hlynur og Halldór leika á hljóðfæri í laginu en það gerir einnig Pétur Valgarð Pétursson.
Hægt er að hlusta á þetta stórgóða lag hér að neðan.
[if lt IE 9]>
[endif]































Athugasemdir