Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Nærmynd af Gylfa Þór Sigurðssyni: „Ég er trúaður“

Nærmynd af Gylfa Þór Sigurðssyni: „Ég er trúaður“
Alex­andra Helga og Gylfi reyndu í sex ár að eign­ast barn. Melrós Mía er frum­burður stjörnu­hjón­anna. Mynd / Instagram

Hafn­firð­ing­ur­inn Gylfi Þór Sig­urðs­son er einn af fremstu knatt­spyrnu­mönnum Íslands og sann­kölluð þjóð­hetja fyrir árangur sinn.

Síðustu ár hafa þó verið honum erfið. Hann var sak­aður um að hafa mis­notað stúlku undir lög­aldri og var í raun settur á ís; missti samn­ing sinn hjá Everton.

Sjálfur hélt Gylfi alltaf fram sak­leysi sín, og nú er hann loks­ins laus allra mála eftir hörm­ungar síð­ustu ára.

Gylfi Þór Sig­urðs­son

Mannlíf fer hér yfir glæsi­legan feril Gylfa.

For­eldrar hans eru þau Sigurður Aðal­steins­son og Margrét Guð­munds­dóttir. Hann á einn bróður, Ólaf Má og eina systur, Fjólu Rún.

Fjóla Rún er systir Gylfa.

Gylfi þótti strax sem smá­patti afar efni­legur knatt­spyrnu­maður. Hann hóf fer­il­inn hjá FH, og er reyndar upp­al­inn FH-ingur.

Árið 2003 gekk Gylfi í raðir Breiða­bliks, en sagt hefur verið að faðir hans hafi viljað það fyrst og fremst vegna þess að í þá daga var aðstaðan hjá Breiða­blik mun betri en í Kaplakrika.

Þegar Gylfi var sextán ár samdi hann við lið Reading og á árunum 2005 til 2008 lék hann með U-21 árs liði félags­ins.

Árið 2008 og til árs­ins 2010 lék Gylfi með Reading í ensku meist­ara­deild­inni; var lán­aður í skamman tíma til Crewe Alex­andra og Shrewsbury Town í neðri deildum.

Árið 2010 fékk Gylfi stóra tæki­færið er hann var keyptur til þýska úrvals­deild­ar­liðs­ins Hof­fen­heim og lék með félag­inu í tvö ár og kom sér á kortið sem meira en bara efni­legur knatt­spyrnu­maður.

Eftir það lék hann með Swansea City, Totten­ham Hotspur, Swansea aftur og er Gylfi marka­hæsti leik­maður Swansea í úrvals­deild­inni frá upp­hafi; skor­aði 34 mörk.

Árið 2017 var Gylfi seldur frá Swansea City til Everton fyrir 45 millj­ónir punda, og er hann enn þann dag í dag dýr­asti leik­maður Everton frá upp­hafi.

Gylfi er þekktur fyrir auka­spyrnur sínar; hefur skorað úr flestum auka­spyrnum í ensku úrvals­deild­inni frá því hann hóf að spila þar.

Hann hóf leik með A-lands­liði karla árið 2010 og sá fer­ill er lík­lega sá glæsi­leg­asti í sögu íslenska karla­lands­liðs­ins; hefur leitt Ísland á tvö stór­mót, EM 2016 og HM 2018.

Gylfi var val­inn Íþrótta­maður árs­ins árin 2013 og 2016. Hann er marka­hæsti Íslend­ingur í ensku úrvals­deild­inni með tæp 70 mörk og einnig með flestar stoðsend­ingar, 50 tals­ins.

Líf Gylfa hefur þó ekki alltaf verið dans á rósum. Faðir Gylfa, Sigurður, hefur margoft rekið fyr­ir­tæki sín í þrot og eru gjald­þrotin um tutt­ugu tals­ins, flest ef ekki öll tengd fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi.

Sigurður Aðal­steins­son.

Gylfi hefur sagt frá því í við­tölum að faðir hans sé skap­mik­ill og hafi hvatt hann og nán­ast rekið hann áfram í að æfa á degi hverjum frá því að hann var gutti. Svona til gam­ans má geta þess að faðir Gylfa gengur undir gælu­nafn­inu Siggi Frekja, í Hafn­ar­firði, þar sem allir þekkja alla aðeins betur en ann­ars staðar á land­inu; alveg óhætt að segja að Sigurður sé mjög umdeildur.

Það hafa því ekki alltaf verið jólin hjá Gylfa og fjöl­skyldu.

Sárindi hafa verið í fjöl­skyldu hans vegna mis­heppn­aðra fjár­hags­gjörn­inga föður hans.

Líklegt er talið að vegna þess­ara fjár­hags­örð­ug­leika fjöl­skyld­unnar, vegna allra gjald­þrot­anna, hafi Gylfi alltaf verið með fæt­urnar á jörð­inni, þrátt fyrir að hafa efn­ast gríð­ar­lega á knatt­spyrnu­ferli sínum; hann þykir afar klókur og skyn­samur þegar kemur að fjár­fest­ingum og þrátt fyrir að hann hafi ungur fjár­fest fyrir föður sinn í sjáv­ar­út­vegi hefur hann aldrei látið einn né neinn vaða yfir sig þegar að pen­ingum kemur.

Gylfi vann aldrei hefð­bundna sum­ar­vinnu sem ung­lingur, heldur lét faðir hans hann æfa allt sem við­kemur knatt­spyrnu á hverjum degi á meðan vin­irnir voru að reita arfa í ung­linga­vinn­unni í Hafn­ar­firði.

Gylfi æfði sem barn, ung­lingur og ungur maður á hverjum degi, klukku­tímum saman. Þetta skil­aði sér í því að hann varð sann­kall­aður snill­ingur á sviði knatt­spyrnu.

Gylfi lauk grunn­skóla­námi en stund­aði ekki fram­halds­nám. Hann hefur sagt frá því að honum langi að mennta sig eftir að ferl­inum lýkur, en einnig að hann sjái ekki fyrir sér að flytja alfarið til Íslands þegar hann leggur skóna á hill­una.

Gylfi stefnir á að ljúka knatt­spyrnu­ferl­inum í Banda­ríkj­unum – spila þar í eitt eða tvö ár, og hugn­ast honum vel að setj­ast að í Banda­ríkj­unum til fram­búðar.

Einu íslensku félögin sem Gylfi hefur æft með og leikið fyrir eru FH og Breiða­blik, en hann hefur aldrei spilað deild­ar­leik í meist­ara­flokki hér á landi. Hann hefur sagt frá því að þótt hann eigi góðar minn­ingar frá þeim tíma sem hann lék með Breiða­blik sé hjarta hans ávallt svart­hvítt.

Alex­andra Helga Ívars­dóttir.

Gylfi er kvæntur Alexöndru Helgu Ívars­dóttur, sem kjörin var Ungfrú Ísland árið 2008. Gylfi er stakur reglu­maður og hefur aldrei drukkið áfengi eða neitt ann­arra eit­ur­lyfja.

Gylfi er ekki mikið fyrir athygli, alla­vega ef miðað er við margar skærar, mynd­ar­legar og mold­ríkar knatt­spyrnu­stjörnur; er lít­ill áhuga­maður um við­töl.

Gylfi er nokkuð trú­aður og fer með bænir og í við­tali við DV árið 2018 lýsti hann þessu:

„Ég er alveg trú­aður. Ég er ekki alveg á sama stalli og Emil Hall­freðs­son. Ég er trú­aður, ég fer ekki með bænir fyrir leiki en geri það á kvöldin.“

Óhætt er með öllu að full­yrða að Gylfi er einn besti knatt­spyrnu­maður Íslands fyrr og síðar; hann hefur alla tíð verið rólegur, yfir­veg­aður og kurt­eis í fram­komu og hrein­lega fyr­ir­mynd í alla staði. Ímynd hans hefur verið fáguð og „elegant“ og lítið verið um slúður eða orðróm um að hann teng­ist ein­hverju vafasömu.

Það kom því eins og blaut tuska framan í íslensku þjóð­ina að Gylfi hefði verið hand­tek­inn nýlega grun­aður um barn­a­níð. Þetta eru ein­hverjar óvænt­ustu og verstu fréttir sem lands­menn hafa fengið í langan tíma.

Gull­dreng­ur­inn Gylfi féll af stalli sem kon­ungur íslenskra knatt­spyrnu­manna, en nú er máli hans loks­ins lokið.

Hér má sjá helstu við­ur­kenn­ingar Gylfa á ferli hans:

Leik­maður mán­að­ar­ins, enska úrvals­deildin, mars 2012.

Leik­maður mán­að­ar­ins, enska meist­ara­deildin, mars 2010.

Leik­maður tíma­bils­ins, Reading FC: 2009–10.

Leik­maður tíma­bils­ins, Hof­fen­heim: 2010–11.

Knatt­spyrnu­maður árs­ins, Ísland: 2010, 2012, 2013, 2014, 2015, 2016, 2017.

Íþrótta­maður árs­ins: 2013 og 2016.

Leik­maður tíma­bils­ins, Swansea City: 2015–16 og 2016–17.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag