Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Lekandi tröllríður Íslandi – Aldrei fleiri tilfelli

Lekandi tröllríður Íslandi – Aldrei fleiri tilfelli
Smokk­ur­inn er besta vörnin gegn kyn­sjúk­dómum, fyrir utan skír­lífi.

Aldrei hafa fleiri verið greindir á Íslandi með kyn­sjúk­dóm­inn lek­anda en greindust hér í fyrra. Samtals greindust 159 með þann leiða fjanda en til­fellum hefur farið fjölg­andi síð­ustu ár þó til­fell­unum hafi fækkað í Covid-19 heims­far­aldr­inum.

Frá þessu er greint í Far­sótta­f­réttum emb­ættis land­læknis. Vísir sagði frá þessu á vef sínum.

Sjötíu pró­sent til­fell­anna sem greindust í fyrra voru hjá körlum og 30 pró­sent hjá konum. Hefur kynja­hlut­falið sveifl­ast á milli ára. Síðustu fimm ár hefur ald­urs­hóp­ur­inn 25-34 ára verið sá algeng­asti í grein­ingum, fyrir utan árið 2020 er flestir voru á aldr­inum 15 til 24 ára.

„Fjölgun til­fella lek­anda á árinu 2022 hefur einnig sést í öðrum löndum Evrópu. Í Noregi varð aukn­ing til­fella hjá gagn­kyn­hneigðu yngra fólki. Sér­stakar áhyggjur eru þar í landi af aukn­ingu lek­anda­smita hjá ungum konum þar sem lek­andi getur valdið svæsnum sýk­ingum og ófrjó­semi hjá konum. Ekki hafa komið fram ákveðnar skýr­ingar á þess­ari aukn­ingu en ein af hugs­an­legum skýr­ingum sem sótt­varn­ar­stofnun Noregs (Fol­kehelseinstituttet) hefur sett fram á þess­ari fjölgun lek­anda­smita er opnun sam­fé­lags­ins á ný eftir COVID-19 heims­far­ald­ur­inn,“ segir í Far­sótta­f­réttum.

Einnig segir að vax­andi áhyggjur séu af sýkla­lyfja­ó­næmum lek­anda­bakt­er­íum.

Lekandi er kyn­sjúk­dómur sem orsakast af bakt­er­í­unni Neiss­eria gonor­roheae. Bakt­er­ían getur sest að í kyn­færum, þvag­rás, enda­þarmi eða hálsi. Hægt er að smit­ast af lek­anda við sam­farir, enda­þarms­mök og munn­mök.

Þeir sem smit­ast af lek­anda verða yfir­leitt varir við breyt­ingu á lit og lykt á útferð úr leggöngum eða þvag­rás. Einnig veldur lek­andi iðu­lega miklum sárs­auka við þvag­lát eða verk í grind­ar­holi, hjá bæði konum og körlum. Sumir sem fá lek­anda eru ein­kenna­lausir en geta engu að síður smitað aðra. Einkenni lek­anda og klamydíu eru svipuð en þó heldur meiri hjá þeim sem fá lek­anda. Einkenni sjúk­dóms­ins koma oft­ast fram á fyrstu viku eftir smit en það getur þó gerst síðar.

Til þess að lækna lek­anda eru notuð sýkla­lyf. Áður en þau eru gefin þarf að taka sýni til rækt­unar og finna rétta sýkla­lyfið. Lek­anda­bakt­er­ían getur verið af ýmsum stofnum og margir þeirra eru ónæmir gegn sumum sýkla­lyfjum.

Rétt er að taka fram að lek­andi er alvar­legur sjúk­dómur. Hann getur valdið ófrjó­semi bæði hjá konum og körlum. Eins getur hann valdið sýk­ingu og bólgu í liðum, augn­sýk­ingum og í verstu til­vikum sýk­ingu í eggja­leið­urum og kvið­ar­holi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag