Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Óhuggulegar lýsingar í dómi Steinu: „Hættu, hún er að kafna“

Óhuggulegar lýsingar í dómi Steinu: „Hættu, hún er að kafna“
Mynd / Skjáskot af RÚV.

Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn Steina Árna­dóttir var sýknuð í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í gær. Hún var ákærð fyrir mann­dráp í opin­beru starfi en neit­aði sök. Í nýbirtum dómi Hér­aðs­dóms má lesa óhuggu­legar lýs­ingar á atburðum á geð­deild Lands­spít­al­ans þegar sjúk­lingur lést þar sum­arið 2021.

Steina var eini hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn á vakt þennan dag­inn. Hún hafði unnið langar vaktir dag­ana fyrir and­látið. Runólfur Pálsson, for­stjóri Land­spít­al­ans stað­festi að mann­ekla og ófull­nægj­andi aðstæður hafi verið á deild­inni.

„Fram kemur að sjá hefði mátt leifar af vökva á hálsi brota­þola, líkt og hann­hefði komið upp úr henni.  Rúmföt  voru sam­an­dregin  í  hrúgu  á  rúm­inu  og  voru  farin  af  dýn­unni höf­uð­lags­megin. Brota­þoli hafi­legið nakin á gólf­inu en bux­urnar við fæt­urna. Í glugga­kistu hafi verið mat­ar­bakki. Í skýrsl­unni má sjá ljós­myndir frá vett­vangi,m.a. mat­ar­bakka en á honum sést plast­flaska með nær­ing­ar­drykk, tvö glös, annað vel fullt af vatni en hitt með litlu magni af ljós-eða bleik­leitum vökva,“ segir í dómi.

Steina var sökuð um að hafa þröngvað ofan í sjúk­ling­inn tveimur flöskum af nær­ing­ar­drykk á meðan hún skip­aði sam­starfs­konum sínum að halda höndum sjúk­lings föstum. Hún neit­aði sök og sagð­ist hafa gefið sjúk­lingnum nokkra sopa af drykknum eftir að matur stóð fastur í önd­un­ar­vegi hans. Hún ótt­að­ist að matur stæði enn fastur í vél­inda sjúk­lings.

Nær­ing­ar­drykkur sem gjarnan er not­aður á sjúkra­húsum lands­ins.

Eitt vitna máls­ins var á vakt með Steinu þegar atvik áttu sér stað en hafði aðra sögu að segja. „Ákærða hefði sagt K að halda höndum brota­þola og hellt drykk upp í hana og sagt henni að kyngja. Hefði það verið mjög erfitt fyrir brota­þola. Hefði hún  hellt  miklu  magni  af  vökva  í  einu.  Þegar  ákærða hefði hellt  seinni drykknum hefði K sagt:„Hættu,hún er að kafna“. Vitnið kvaðst þá ekki hafa séð neitt líf í augum brota­þola. Hún hefði ekki þolað við, hlaupið út og falið sig. Hún hefði ekki komið aftur í her­bergið. Spurð  um  sam­skipti  ákærðu  við sjúk­linga þann  tíma  sem  hún  starf­aði  með  henni  kvað  hún  hana  oft­ast  hafa  verið  hrjúfa („rough“) og ekki sýnt þeim nægi­lega virð­ingu.“

Konan hafði nokkrum sinnum áður setið inni á geð­deild vegna geð­klofa. Á meðan á síð­ustu inn­lögn stóð hafi hún greinst með lungna­bólgu og verið færð á aðra deild innan Land­spít­al­ans. Hún var send til baka á geð­deild vegna pláss­leysis og óró­legs ástands hennar. Þar átti hún að vera ef lík­am­leg heilsa hennar héld­ist stöðug en ann­ars átti að senda hana á bráða­deild. Konan átti að vera á fljót­andi fæði. Vitað var til þess að hún ætti það til að borða mat hratt og kyngja honum ekki. Vitni sem starf­aði með Steinu sagði kon­una hafa verið hressa þegar hún spurði hana hvort hún vildi borða sem hún ját­aði. Þegar vitnið sá að konan kyngdi ekki matnum heldur lagð­ist niður kall­aði hún á Steinu og óskaði eftir aðstoð. Vitnið segir Steinu hafa tekið tvær flöskur af nær­ing­ar­drykk úr lyfja­skápnum og haldið inn á her­bergi kon­unnar.

„Vitnið  kvaðst  hafa sótt  ákærðu  sem  var  í  lyfja­her­berg­inu  og  sagt  henni  að brota­þoli  hefði  borðað  hratt,  ekki  kyngt  og  væri  þungt.  Hefði ákærða  þá strax tekið tvær flöskur afnær­ing­ar­drykk sem voru geymdar í lyfja­her­berg­inu og farið með  henni  til  brota­þola. Hefði­vitn­inufund­ist  nauð­syn­legt  að  hún  kæmi  þó að ekki væri „akút“ ástand.Hefði brota­þoli­verið róleg þegar þær komu.Brota­þoli hefði­ekki viljað setj­ast  upp og  ákærða hefði  þá togað hana upp. Tók vitnið þá eftir að brota­þoli hafði pissað aðeins í rúmið.Ákærða hefði­sagt vitn­inu að sækja glas og frek­ari aðstoð. Hefði hún þá beðið Iog Kað koma inn og skip­að­i­á­kærða Iað  fara  aftur  fyrir  brota­þola  og  halda  henni.  Ákærða  hefði haldið  henni  á rúm­stokknum.  Brota­þoli  hefði  bandað  hendi  frá  sér  eins  og  hún  vildi  ekki nær­ing­ar­drykk.“

Allar þrjár sam­starfs­konur Steinu sögðu svip­aða sögu fyrir dómi. Tveir rétt­ar­læknar gerðu krufn­ingu á sjúk­lingnum og voru þeir á sama máli um að dán­ar­or­sök hafi verið fram­andi vökvi í loft­vegi.

„Fram  kemur  að  í  hálsi  aft­ast  í  munn­koki  hafi  sést  ljós  treg­fljót­andi  vökvi  með ljósum kekkjum og fínum og grófum pörtum (mæl­ast 2,5–3 cm) af fæðu sem hafi útlit blóm­káls. Saman myndi þetta mót­an­legan massa sem gæti verið tepp­andi og situr í barka­kýl­inu, að mestu fyrir ofan radd­böndin en hluti hans hafi­troð­ist niður fyrir radd­bandaplanið,ekki þó skorð­aður heldur fremur laust sitj­andi. Í maga hafi verið „hóf­leg skvetta“ af glærum til ljós­skýj­uðum grugg­ugum vökva og í honum fáeinir partar, nokkuð heil­legir, af því sem sýnd­ist vera blóm­kál og mæl­ast hver um sig 1,6 cm í stærsta mál. Út frá rétt­ar­lækn­is­fræði­legu rann­sókn­inni einni sé ekki unnt að segja sér­tækt til um með hvaða hætti efnið hafi borist ofan í neðri önd­un­ar­veg­inn. Þó megi taka það til greina að veru­leg lungna­þemba og tölu­verð fylla í ystu lungna-blöðr­unum sé ódæmi­gerð fyrir inn­öndun fram­andi efnis fyrir slysni og getienn­fremur bent til þess að ferlið hafi farið fram af meiri festu en þegar um slys ræði. Rann­sókn­ar­nið­ur­stöð­urnar séu vel sam­rým­an­legar því að þýð­ing­ar­miklu­magniaf ljósu fljót­andi efni, t.d. þeim nær­ing­ar­drykk sem inn barst sýn­is­horn af, hafi verið hellt upp í munn hennar á meðan henni var haldið, eins og fram hefur komið í frá­sögnum vitna, og á meðan hún hafi mögu­lega ver­ið­undir áhrifum slævandi lyfja, og að hún hafi ekki viljað og/eða ekki megnað að kyngja vökv­anum heldur hafi hann í mark­verðu magni hafnað í loft­veg­inum, hún þar með andað honum að sér, hann dreifst víða um lungun, hindrað loft­skiptin og valdið köfnun.“

 Nokkrum sinnum kemur fram í dómi máls­ins að magn efn­is­ins klózapín hafi verið langt ofar eðli­legum mörkum. Efnið er að finna í lyfjum sem notuð eru við geð­klofa og eru þau lyf flokkuð sem sef­andi. Magn lyfs­ins í blóði kon­unnar gæfi til kynna eitrun en tekið er fram að þekkst hefur að gildi efn­is­ins í blóði hækki veru­lega eftir and­lát. Veikindi kon­unnar og ein­kenni fyrir and­lát eru þó sam­bæri­leg þeim sem verða við eitr­unar­á­stand. Konan var á mörgum teg­undum lyfja sem hækka líkur á eitrun.

„Með  hlið­sjón  af  þeim  upp­lýs­ingum  sem  liggi  fyrir  um  lík­am­legt ástand    brota­þola    klukku­tím­ana fyrir   and­látið    og    atvika­skrán­ingu    um með­vit­und­ar­á­stand hennar í aðdrag­anda atviks­ins tali það sterk­lega gegn því að mögu­leg  eit­urá­hrif  klózapíns  hafi  verkað  með  slíkum  og  afger­andi  hætti  á blóð­rásar-, önd­unar-og/eða  mið­tauga­kerfi  að  dauði  hafi  hlot­ist  af.“

Í nið­ur­stöðu dóms­ins kemur fram að líkur megi færa á því að sjúk­ling­ur­inn hafi lát­ist vegna nær­ing­ar­drykks­ins en ekki sé hægt að færa sann­anir fyrir ásetn­ingi Steinu. Þá var ekki hægt að stað­festa hvers lags vökvi hafi verið í lungum sjúk­lings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag