Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Guðrún fetar ótroðnar slóðir: „Við munum breyta snyrtivöruheiminum“

Guðrún fetar ótroðnar slóðir: „Við munum breyta snyrtivöruheiminum“

Dr. Guðrún Mart­eins­dóttir er braut­ryðj­andi í íslenska vís­inda­geir­anum, á því leikur lít­ill vafi. Hún hefur tekið þátt í fjölda verk­efna sem snerta á ýmsum hlutum í þá ára­tugi sem hún hefur starfað sem vís­inda­maður, en það sem verður lík­lega hennar helsta arf­leið er fyr­ir­tækið TARAMAR sem hún stofn­aði ásamt eig­in­manni sínum. Fyr­ir­tækið sér­hæfir sig í fram­leiðslu á líf­rænum, öruggum og hreinum húð­vörum og hefur hlotið fjölda verð­launa erlendis fyrir sín störf. Mannlíf ræddi við Guðrúnu til að fræð­ast um líf hennar og til­veru.

„Ég er fædd og upp­alin á Selfossi. Faðir minn, Marteinn Björns­son, var bygg­ing­ar­full­trúi Suð­ur­lands og þjón­u­staði allt svæðið frá Þor­láks­höfn austur að Lómagnúp. Hann á ættir að rekja í Kjósina og Húna­vatns­sýsl­una. Í gegnum móður mína, Arndísi Þor­bjarn­ar­dóttur, á ég einnig ættir að rekja í Kjósina sem og vestur á Strandir,“ sagði dr. Guðrún Mart­eins­dóttir um æsku sína, en hún ætl­aði upp­haf­lega að flytja til Dan­merkur en elti ást­ina og fram­tíð­ar­eig­in­mann sinn til Banda­ríkj­anna. „Frá Selfossi fór ég í Mennta­skól­ann á Laug­ar­vatni og síðar í Háskól­ann þar sem ég lauk BS í líf­fræði. Það má segja að ég hafi elt ást­ina yfir til Ameríku, en ég kynnt­ist Krist­bergi á síð­asta ári í Háskól­anum og hann hafði þá þegar sótt um nám við Rutgers Uni­versity í New Jersey. Ég var hins vegar á leið til Kaup­manna­hafnar til að hefja nám hjá Pétri M. Jónassyni, pró­fessor við Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla, en sneri við á miðri leið og flutti með Krist­bergi til Ameríku. Þegar þangað var komið eign­að­ist ég dóttur okkar, hana Hlín, en lauk svo MS-prófi í dýra­fræði og síðan PhD í vist­fræði við Rutgers. Samhliða nám­inu og eftir námið vann ég á mörgum stöðum, m.a. hjá Center of Environ­mental Science, en einnig sem aðstoð­ar­maður rit­stjóra hjá frægu vís­inda­riti, EVOLUTION. Við fluttum heim frá Ameríku árið 1989 og Krist­berg fékk stöðu í mat­væla­fræði við Háskóla Ísland en ég hóf störf fyrst hjá Veiði­mála­stofnun og síðar Haf­rann­sókna­stofn­un­inni. Þegar Jakob Jak­obs­son, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar­innar og pró­fessor við Háskóla Íslands hætti störfum, þá sótti ég um stöðu hans við Háskól­ann og hef sinnt því starfi síða árið 2000.“

En Guðrún er ansi fjöl­hæf mann­eskja og óhætt er að segja að í vís­inda­mann­inum blundi lista­maður. „Ég hef alla tíð haft mikla þörf fyrir að búa til hluti í hönd­unum og í mér felst lít­ill lista­maður sem hefur þó ekki fengið að dafna þar sem áherslan var á hug­vit og þekk­ingu í námi og starfi,“ sagði Guðrún. „Til að halda sál­inni glaðri þá hef ég fönd­rað mikið og til­einkað mér flest áhuga­mál sem að því snúa, svo sem olíu og vatns­lita­málun, silki­málun, gler­skurð, útskurð, leir­kera­gerð, smíðar, saum og prjón og margt fleira. Síðar, þegar TARAMAR-verk­efnið hófst, þá fékk þessi hluti af per­sónu minni mikla útrás, en að vinna með jurtir, þang og líf­virk efni úr nátt­úru Íslands er ekki ólíkt því að vefa eða mála stór­kost­leg mál­verk.“

Guðrún Mart­eins­dóttir – Taramar

Guðrún átti aldrei von á að líf hennar tæki þessa stefnu, sér­stak­lega í ljósi mennt­unar hennar.

„Það má segja að nám mitt og starf hafi ekki verið aug­ljós und­ir­bún­ingur fyrir TARAMAR. Ég held að engum hafi getað dottið í hug að ég færi inn í húð- og snyrti­vöru­heim­inn. Þvert á móti þá átti ég mínar bestu stundir á sjó á kafi í slori eða úti í nátt­úr­unni, vað­andi í gegnum ár og flæða engi,“ sagði hún, en stuttu eftir að hafa komið heim til Íslands fann Guðrún fyrir veik­indum, en hún telur að heil­brigð­is­kerfið hafi brugð­ist henni algjör­lega. Það hvatti hana til að taka málin í eigin hendur.

„Á árunum eftir að við komum heim frá Ameríku þá fór að bera á heilsu­bresti hjá mér. Fyrstu 20 árin, þá var þetta þó eitt­hvað sem ég gat að mestu haldið niðri, en síðar fór þetta að versna og á árunum eftir 2005 þá var ég orðin tölu­vert veik. Það tók mig langan tíma að átta mig á hvað þetta var og heil­brigð­is­kerfið gat enga hjálp veitt. Að lokum kom í ljós að í ferðum mínum tengdum nám­inu, við sýna­tökur upp eftir allri aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna, þá hafði ég sýkst af mörgum sníkju­dýrum, s.s. „lyme“ og fleiri kvik­indum. Í bar­áttu minni við þessar sýk­ingar þá gerði ég mér ljóst að til þess að halda lífi þá yrði ég að taka upp ástund á ein­hverju sem ég hefði svo gaman af, til hjálpa mér að dreifa hug­anum. Á sama tíma þá átti ég við erfið húð­vanda­mál að stríða, m.a. sem afleið­ingu af „lyme“-sýk­ing­unum, og ég fór að skoða hvað það gæti verið í húð­vörum sem færi svona illa með húð­ina mína. Ég verð að segja að ég varð fyrir algjöru áfalli og enn þann dag í dag verð ég reið þegar ég sé hvað fram­leið­endur ætl­ast til að við berum á húð­ina. Mörg af þessum efnum eru í raun skelfi­leg og án efa verða þau öll bönnuð í fram­tíð­inni. En alla­vega, þá leiddi þetta til þess að ég fór að blanda mínar eigin for­múlur og safna jurtum til að prófa áhrif af mis­mun­andi andox­un­ar­efnum. Eitt leiddi af öðru og eins og oft með mín fyrri áhuga­mál, þá stækk­aði þetta áhuga­mál mjög hratt og gladdi sál mína mikið, þannig að það varð auð­veld­ara að eiga við veik­indin.

Þar sem mitt aðal­starf tengd­ist sjó, þá hef ég í gegnum tíð­ina farið í marga leið­angra með sjó­mönnum og starfs­mönnum á rann­sókna­skip­unum. Á milli vakta þá var oft rabbað um áhuga­verða hluti og ég lærði af þessum fræknu sæförum hvernig þeir not­uðu efni úr sjáv­ar­líf­verum til að græða og auka þrek,“ sagði Guðrún aðspurð af hverju TARAMAR not­að­ist svo mikið við sjáv­ar­líf­verur. „Það lá því beint við að í TARAMAR-verk­efn­inu myndi ég leggja sér­staka áherslu á sjáv­ar­fang og þá líf­virkni sem þar er að finna. Það sem var sér­stak­lega áhuga­vert var þegar ég upp­götv­aði að Krist­berg, sem er pró­fessor í mat­væla­fræði, hafði rann­sakað líf­virk efni úr sjáv­ar­fangi til fram­leiðslu á orku­mik­illi fæðu og var að nota tækni og þekk­ingu sem gæti nýst sér­stak­lega vel í húð­vörum. Þetta varð byrj­unin á flutn­ingi á meira en 30 ára rann­sókn­ar­nið­ur­stöðum á mat­vælum inn í húð­vör­urnar. Þar sem hvor­ugt okkar kom úr heimi lyfja­fræð­innar, þar sem flestar húð­vörur eiga upp­runa sinn, þá urðum við frá upp­hafi að þróa okkar eigin leiðir. Þar sem líf- og mat­væla­fræði var eitt­hvað sem við kunnum vel, þá varð það til þess að húð­vör­urnar okkar eru að mörgu leyti lík­ari mat­vælum en venju­legum húð­vörum, sem eru ekki beint góðar til neyslu.“

Guðrún seg­ist spennt fyrir fram­tíð­inni, telur að hún sé björt og við­brögðin hafi verið stór­kost­leg. Hún sé þakk­lát fyrir allan þann stuðn­ing sem þeim hefur verið sýndur.

„Við ætlum okkur mjög stóra hluti í TARAMAR og teljum að við munum breyta snyrti­vöru­heim­inum með því að bjóða upp á svona hreinar lausnir, eitt­hvað sem er ekki til í dag. Varan okkar er ein­stök og í öllu ólík því sem hefur staðið til boða. Í dag eru þús­undir kvenna og karla sem nota vör­unar okkar á degi hverjum. Í hverri viku fáum við skila­boð frá við­skipta­vinum okkar sem bæði ánægðir og þakk­látir fyrir að hafa fundið húð­vörur sem virka og fara svona vel með húð­ina. Stærsta verk­efni okkar núna er að kynna vör­urnar erlendis. Þetta er lang­hlaup, en það er mik­ill áhugi og við eigum von á að sér­staða var­anna muni stytta þann tíma sem það getur tekið að brjót­ast inn á stóra mark­aði. Allt bendir til að við verðum komin á mjög góðan stað eftir 5-10 ár. Sala á húð­vöru­fyr­ir­tækjum sem hafa vörur sem hafa slegið í gegn hefur skilað mjög góðum ágóða, ekki síður en það sem við sáum hjá Kerecis. Það er vissu­lega þangað sem við erum að stefna.“

Viðtal þetta birt­ist í fyrst í nýjasta tölu­blaði Mannlífs

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur