Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Brottreknir starfsmenn Skagans 3X sviknir um árshátíð: „Hún er ekki í boði fyrir ykkur lengur“

Brottreknir starfsmenn Skagans 3X sviknir um árshátíð: „Hún er ekki í boði fyrir ykkur lengur“
Sig­steinn Grét­ars­son er for­stjóri Skagans 3X

Starfs­mönnum sem var sagt upp fengu ekki að koma með í árs­há­tíð­ar­ferð til útlanda.

Fyr­ir­tækið Skaginn 3X sagði upp 27 starfs­mönnum á Ísafirði í ágúst og til­kynnti á sama tíma að starfs­stöð­inni yrði lokað. Það var aðeins tíu dögum áður en starfs­menn fyr­ir­tæks­ins áttu að halda í skemmti­ferð til Þýska­lands. Þegar starfs­mönnum var til­kynnt að þeim yrði sagt upp var einnig tekið fram að þeir myndu ekki fá að koma með í skemmti­ferð­ina. Mikið ósætti ríkir meðal starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins á Ísafirði með þessa ákvörðun en starfs­menn fyr­ir­tæks­ins sem vinna á Akranesi og Reykja­vík eru þessa stund­ina í ferð­inni meðan Ísa­firð­ing­arnir sitja heima með sárt enni. Skaginn 3X er í eigu þýska fyr­ir­tæk­is­ins Baader og hefur verið í fullri eigu þess síðan í fyrra. Mannlíf ræddi við starfs­mann Skagans 3X um málið.

„Þetta er svona „worldwide“ hitt­ingur þar sem allir starfs­menn Baader hitt­ast. Það væri hægt að kalla þetta árs­há­tíð Baader-sam­steypunar,“ sagði starfs­mað­ur­inn sem ekki vildi koma fram undir nafni. Þetta er í fyrsta skipti sem Baader, eig­endur Skagans 3X, bjóða íslenskum starfs­mönnum sínum á þessa hátíð. Starfs­mað­ur­inn telur að um 1500 manns séu í ferð­inni.

Starfs­mað­ur­inn greinir frá að þegar þeim var sagt upp hafi starfs­menn spurt um ferð­ina. „Það var spurt á fund­inum, 18. ágúst, þá eru ekki nema 10 dagar í ferð­ina. „Hvernig er þá með ferð­ina, megum við þá koma?“. Þá sagði for­stjór­inn sem er á fund­inum “„Hún er ekki í boði fyrir ykkur lengur,“ en for­stjóri Skagans 3X er Sig­steinn Grét­ars­son.

Starfs­mönnum var sagt frá því í apríl að ferðin væri á dag­skrá og hófst skrán­ing en stóð til Baader-veldið borg­aði hót­elgist­ingu og flug fyrir alla. „Það eru sirka fjórir mán­uðir síðan við skráðum okkur. Snemma í vor var hengt upp blað, hvað yrði gert og blabla og yrði aug­lýst nánar síðar. Síðan kom aldrei nánar aug­lýst síðar til okkar, við vorum alltaf að bíða.“

„Maður er svo hissa,“ sagði starfs­mað­ur­inn. „Ef þetta á að hafa komið frá Þýska­landi að loka á Ísafirði þá ég á erfitt með að trúa því. Að það hafi átt að fara í hag­ræð­ingu á Íslandi og þeir hafi ákveðið að loka á Ísafirði.“

En ótt­að­ist fólk að missa vinn­una eftir að Baader keypti Skagann 3X?

„Það var eig­in­lega öfugt. Okkur fannst vera rosa­lega mikið að gera og mikil fram­tíð­ar­stefna. Mikið af verk­efnum framundan, okkur var alla­vega sagt það á fundi síð­asta sumar. Menn voru komnir yfir það að hafa áhyggjur af því að það yrði lokað. Þetta lætur mann efast um raun­veru­legar ástæður upp­sagn­ar­innar. Við megum ekki koma í ferð­ina, ekki út af hag­ræð­ingu heldur að þau vilja ekki fá okkur upp á móral­inn. Búið að segja okkur upp „Nei, nei þau verða bara með skíta­móral, þau koma ekk­ert“, þannig vibe fáum við starfs­menn­irnir. Af því að starfs­stöðin á Íslandi var aldrei að fara borga þessa ferð heldur höf­uð­stöðv­arnar úti. Þetta er allt mjög skrýtið.“

Ekki náð­ist í Sig­steinn Grét­ars­son, for­stjóra Skagans 3X, við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil