Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

ADHD-hjón handtekin að ástæðulausu: „Þessum lögreglumönnum ætti að vera vikið úr starfi“

ADHD-hjón handtekin að ástæðulausu: „Þessum lögreglumönnum ætti að vera vikið úr starfi“
Valdimar og Hanna voru hand­tekin fyrir að keyra á ADHD-lyfjum – Mynd: Vísir.is

Hjónin Valdimar og Hanna Randrup voru hand­tekin sama kvöld og segja það hafa verið að ástæðu­lausu.

Valdimar og Hanna Randrup lýstu upp­lifun sinni af lög­regl­unni á Suð­ur­landi í miklum smá­at­riðum í þætt­inum Bítið á Bylgj­unni í morgun. Búa þau saman í Hvera­gerði og voru bæði hand­tekin fyrir að keyra í ann­ar­legu ástandi. Hjónin neita því og segj­ast bæði vera með ADHD-grein­ingu og á ADHD-lyfjum. Þau segja Valdi­mari hafa verið beittur harð­ræði af lög­reglu, telja það eigi að reka lög­reglu­menn­ina sem sinntu þessu máli og hafa leitað sér lög­fræði­að­stoðar.

„Lög­reglan hand­tekur mig fyrir framan heim­ili mitt fyrir fíkni­efna­akstur og segir að ég sé ann­ar­legu ástandi og fer með mig á lög­reglu­stöð­ina. Ástæðan: Ég tók ADHD-lyfin mín. Það þýddi ekk­ert fyrir mig að vera kurt­eis og reyna koma lög­reglu­þjón­unum í skiln­ing um að ég væri venju­legur maður sem væri með lyf­seðil inn á Heilsu­veru sem ég sýndi þeim þar sem kom fram heiti lyfs­ins og hvernig lyfið er skammtað, sem er ein tafla að morgni og ein tafla seinni­part­inn,“ sagði Valdimar í þætt­inum en einnig sé hann hjart­veikur og var nálægt því að deyja þess vegna þess fyrir stuttu síðan. Þá á hann erfitt með and­ar­drátt vegna veik­inda. 

„Engu var hægt að koma fyrir í höfð­inu á lög­reglu­mönn­unum um að ég væri ekki í ann­ar­legu ástandi og það að ég væri fyrr um dag­inn búinn að vera sinna mínu starfi sem mál­ari á lög­reglu­stöð­inni á Akranesi og hefði átt sam­skipti allan dag­inn við ynd­is­legt starfs­fólk lög­regl­unnar þar í þessu sama ástandi sem lög­regl­unni á Selfossi fannst vera ann­ar­legt ástand. Nei, ég var fluttur með blá blikk­andi ljós í lög­reglu­bíl til Selfoss og þegar ég spurði áður en við lögðum af stað hvort ég mætti tala við kon­una mína þá var fyrst svarið skýrt frá lög­regl­unni: Nei, ég væri í ann­ar­legu ástandi og væri hand­tek­inn. En svona tíu mín­útum seinna opn­uðu þeir glugg­ann á bif­reið­inni um sirka 7 senti­metra og ég gat talað út um rif­una og sagt kon­unni minni að ég væri hand­tek­inn fyrir að vera á ADHD-lyfjum. Ég sagð­ist vera þyrstur og hvort ég gæti farið yfir í bíl­inn minn og náð app­el­sín­flösk­una mína. Alveg skýrt: Nei. Eftir að ég var búinn að sitja á lög­reglu­stöð­inni and­stuttur vegna veik­inda minna, blá sak­laus maður sem hvorki drekkur áfengi, dópar eða reykir, var ég orð­inn blóð­ugur á hönd­unum vegna síend­ur­tek­ina til­rauna við að stinga mig og draga úr mér blóð og gólfið blóð­ugt vegna þess að ég er á blóð­þynn­ingu tókst mér að fá það í gegn eftir síend­ur­teknar beiðnir í um 45 mín­útur að fá vatns­glas. Ég tók upp sím­ann minn á þessum tíma­punkti og sá mér til mik­illar skelf­ingar að ég hafði fengið sms-skila­boð frá tengda­syni mínum en þar stóð að konan mín væri líka hand­tekin. Ég fyllt­ist þá enn meiri ótta og reyndi að spyrja lög­reglu­þjóna hvað væri um að vera en þá var svarið sem ég fékk að sím­inn minn væri tek­inn af mér og ég sagður vera í ann­ar­legu ástandi og hand­tek­inn og ég fengi ekki að hafa sím­ann minn og fengi ekk­ert að vita um kon­una mína, hvers vegna hún væri líka orðin síma­laus og hand­tekin. Seinna kom í ljós að þessi elska, sem konan mín er, hafði nýlega sagst elska 14 ára son minn og hún ætl­aði að elta pabba hans á lög­reglu­stöð­ina og kæmi svo heim. En hún kom ekki heim fyrr en hálf tvö um nótt­ina en þetta var um tíu­leytið, um kvöldið. Lög­reglan hafði sem sagt tekið mig, sem mann í ann­ar­legu ástandi, hand­tekið kon­una mína fyrir allt það sama. Að vera í ann­ar­legu ástandi vegna þess að hún notar líka ADHD-lyf.“

Hefur þessi upp­lifun Valdimar gjör­breytt áliti hans á lög­regl­unni og á erfitt með að ímynda sér að þessir lög­reglu­menn hafi and­lega getu til að með­höndla skot­vopn.

„Síðasta hálf­tím­ann var ég var far­inn að geta breytt ástand­inu ásamt lög­reglu­mönn­unum og hjúkr­un­ar­fræð­ingnum. Vorum farin að geta átt létt spjall og hlæja. Ég gekk út af lög­reglu­stöð­inni full­viss um að allt væri búið og sett­ist upp í bíl­inn minn sem konan kom á. En þá hleypur lög­reglu­þjón­inn út og segir við mig að ég megi ekki keyra heim vegna þess að ég sé ann­ar­legu ástandi. Ástæðan fyrir því að ég er kom­inn í þetta við­tal er sú að ég vil ekki borga skatt­pen­ing­inn minn í svo hæfi­leika­lausa lög­reglu­menn sem ekki bara kunna ekki að lesa í aðstæður né taka neinum sönsum varð­andi það að ég sýndi lyf­seð­il­inn minn, að ég væri kurt­eis, hrós­aði þeim fyrir sitt starf, væri and­stuttur vegna veik­inda minna og minnar van­líðan vegna hennar. Það var alltaf hert meira og meira þetta kvöld á mína van­líðan af lög­reglu­mönnum og þau væru að taka mið­aldra hjón og gera þau að glæpa­mönnum í sínum löggu­leik heldur líka það að ein helsta ósk lög­regl­unnar er að fá skot­vopn. Ég myndi ekki, miðað við með­ferð­ina sem þessir menn létu okkur hjónin hafa þá myndi ég ekki vilja sjá svona lög­reglu­menn halda á skot­vopni. Eins og ég segi, mér var neitað um vatn, ég er hjart­veikur og var nærri dáinn fyrir nokkrum mán­uðum. Það er nokkuð ljóst að vinir mínir, ætt­ingjar, kunn­ingjar, fjöl­skylda ásamt öðrum sem ég hef rætt þetta mál við eru öll sam­mála um að þessum lög­reglu­mönnum ætti að vera vikið úr starfi.“

Valdimar telur að eitt­hvað þurfi að breyt­ast innan veggja lög­regl­unnar vegna þess að þetta fólk sé ekki starfi sínu vaxið.

„Það virð­ist vera að svo, að mínu mati, að í lög­regl­una er ráðið starfs­fólk sem með engum hætti hefur getu til að sinna sínu starfi sóma­sam­lega,“ sagði Valdimar að lokum en tók fram að mik­ill meiri­hluti lög­reglu­manna væri sóma­fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag