Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Guðni minnir á mikilvægi íslenskunar: „Þannig heldur hún styrk sínum“

Guðni minnir á mikilvægi íslenskunar: „Þannig heldur hún styrk sínum“
Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands Mynd / Aðsend

Forseti Íslands setti Alþingi í dag.

Klukkan 14:00 í dag setti Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, 154. lög­gjaf­ar­þing Alþingis. Í ræðu sinni snerti Guðni á ýmsum hlutum og má þar á meðal nefna stjórn­ar­skránna, íslenskt mál og fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lagið.

Hægt er að lesa ræðu Guðna hér fyrir neðan:

Ágætu alþing­is­menn!

Ég býð ykkur vel­komna til þings og óska ykkur góðs gengis í mik­il­vægum
störfum. Fram undan er anna­samur tími að vanda, að mörgu að hyggja þegar
horft er fram á veg. Þennan þing­vetur og allt næsta ár er einnig margs að
minn­ast ef horft er um öxl. Þannig er vel við hæfi að nefna það hér á hinu háa
Alþingi að árið 2024 verða rétt þús­und ár liðin frá því að merk þing­ræða var
flutt, ef marka má Heimskringlu Snorra Sturlu­sonar. Einar Þveræ­ingur mælti þá
gegn þeirri ósk Ólafs helga Nor­egs­kon­ungs að fá Grímsey til eignar og hafa rök
Einars eins og Snorri skráði þau lengi lifað, verið nýtt í sjálf­stæð­is­bar­áttu og
póli­tískum rök­ræðum; þótt kóngur væri ágætur gætu aðrir verri komið í hans
stað, ánauð sú myndi aldrei hverfa af þessu landi og myndi mörgum
kot­bónd­anum þykja þröngt fyrir dyrum. Einar vildi samt góð sam­skipti við
valdið ytra og Snorri líka ef út í það er farið; þeir voru engir ein­angr­un­ar­sinnar.
Fyrir þús­und árum urðu einnig þau tíð­indi að Þorgeir Hávars­son safn­að­ist
til feðra sinna, megi trúa Fóst­bræðra sögu. „Aldregi skyldi góður drein­gur láta
þá skömm af sér spyrj­ast að kjósa frið ef ófriður var í boði.“ Þetta er Þórelfur
móðir hans látin segja í Gerplu, snilld­ar­legu verki Halldórs Laxness í anda
forn­sagn­anna. Aumri aðdáun and­hetj­unnar Þorgeirs á valdi má halda á lofti nú
um stundir þegar ráða­menn í Rúss­landi reyna að sýna mátt sinn og megin með
því að ráð­ast með ofbeldi inn í grann­ríki.

Þannig teng­ist for­tíð nútíð og fleiri tíma­mót bíða á þessum vetri. Fimmta
jan­úar verða 150 ár liðin frá því að Kristján IX. Dana­kon­ungur stað­festi
stjórn­ar­skrá um hin sér­stak­legu mál­efni Íslands, þau grunn­lög sem okkur voru
færð að utan þegar landið til­heyrði Dana­veldi.

Annarra og enn merk­ari straum­hvarfa þarf að minn­ast eftir þing­frestun
eða þar um bil, ef að líkum lætur. Sautj­ánda júní 2024 verða 80 ár liðin frá
stofnun lýð­veldis á Íslandi. Full­veldi var áður fengið en eftir var að færa
þjóð­höfð­ingja­valdið hingað til fram­búðar. Það var gert og ný stjórn­ar­skrá
sam­þykkt. Áfram bar hún þess þó skýr merki að eiga rætur í kon­ungs­ríki, vera
samin fyrir kon­ungs­ríki. Enn var því mikið verk að vinna í stjórn­ar­skrár­málum.
Það fannst for­seta hins nýja lýð­veldis og þing­heimi öllum, almenn­ingi og
lög­spek­ingum sömu­leiðis.

Að síð­ustu nefni ég kafla­skil sem eru okkur næst í tíma. Fyrsta jan­úar
2024 verða 30 ár liðin frá því að samn­ing­ur­inn um Evrópska efna­hags­svæðið tók
gildi. Satt er það sem Sigurður Líndal sagði skömmu síðar, að „[ö]nnur eins
breyt­ing hefur ekki orðið á íslenzkri lög­gjöf síðan á 13. öld þegar Járnsíða og
síðar Jónsbók voru lög­leiddar“.

Satt er það líka að síð­ustu ára­tugi hefur Ísland ger­breyst að mörgu leyti.
Nú er stór hluti íbúa lands­ins af erlendu bergi brot­inn. Fólk sækir hingað vinnu
eða skjól og sé vel að verki staðið verður sam­fé­lagið fjöl­breytt­ara og fal­legra,
öfl­ugra og fram­sækn­ara. Um leið þurfum við að tryggja að ein­ing ríki um
grunn­stoðir okkar, mál­frelsi og athafna­frelsi hvers og eins, rétt­ar­ríki og sam­hjálp
– sam­fé­lag þar sem fólk getur sýnt hvað í því býr, sjálfu sér og öðrum til heilla,
en fær líka þá aðstoð sem þörf krefur hverju sinni.

Samtímis má efla þá þætti í menn­ingu okkar og mann­lífi sem geta
sam­einað flesta íbúa lands­ins. Við eigum tungu­mál sem gerir okkur kleift að
skilja það sem var skráð á bók­fell fyrir nær þús­und árum, Heimskringlu og
Fóst­bræðra sögu, Járnsíðu og Jónsbók og allan okkar menn­ing­ar­arf í ald­anna
rás. Í þá íslensku taug vefj­ast sífellt nýir og ferskir þræðir; þannig heldur hún
styrk sínum í bráð og lengd.

Ágætu alþing­is­menn: Þessi sann­indi hafa aðrir orðað mun betur en ég.
Ísak Harð­ar­son var eitt mesta trú­ar­skáld okkar tíma á Íslandi en orti ann­ars um
allt milli him­ins og jarðar. Heyrið hvernig hann lýsir mætti máls­ins í kvæð­inu

Til móts við Orð og fer ég hér með hluta þess:

Þegar Ingólfur Arnarson hélt burt
af þeirri kringlu er menn byggðu á hans tíð
og sigldi með fólk sitt og fé á vit lands­ins
er hermt var að lægi yst í norðri
þá hélt hann ekki til móts við land
– heldur Orð.

Þrjóskt sigldi skipið
öldu eftir öldu eftir
öld eftir öld,
ell­efu hund­ruð ár.
Djarft sigldi skipið …
Og hér
siglum við enn
djúpan geim­inn á bláum hnetti
knúnum sól­vindum
til móts við Orð.

Þannig orti skáldið og megi orðin og málið lifa áfram. Öll getum við lagt
okkar af mörkum og sjálf­sagt er að rík­is­valdið sé í far­ar­broddi. Í stjórn­ar­skrá
mætti vera kveðið á um það sem segir nú þegar í lögum, að íslenska er
þjóð­tunga Íslend­inga og opin­bert mál á Íslandi. Ályktun þess efnis gæti jafn­vel
þótt við hæfi á afmæl­is­ár­inu fram undan. Best væri líka að opin­ber fyr­ir­tæki
hefðu íslenskt mál ætíð í for­grunni, á flug­völlum, hjá stofn­unum og hvar­vetna.
Lítt stoðar að kvarta undan því að alþjóða­málið enska sæki á ef við sjálf gerum
því óþarf­lega hátt undir höfði en látum okkar eigin tungu liggja í lág­inni.
Svo verðum við að gera þeim sem hingað flytja betur kleift að læra
íslensku, bjóða fleiri nám­skeið og náms­efni, sýna jafn­vel aukna lip­urð og aðstoð
á starfs­vett­vangi. Það kæmi okkur öllum til góða.
Virðu­legu alþing­is­menn: Vita­skuld mætti gera ýmis­legt annað að
umtals­efni. Að svo ótal­mörgu er að hyggja í flóknu þjóð­fé­lagi. Og þegar allt
kemur til alls varðar meiru hvað við segjum við hvert annað heldur en á hvaða
máli.

Nú við upp­haf þings lýsi ég því þeirri von að ykkur megi auðn­ast að vinna
vel í þágu lands og þjóðar. Vissu­lega á þingið að vera vett­vangur ágrein­ings og
átaka ef svo ber undir. Vissu­lega getur verið að ein­hverjum þyki orð Bríetar í
lag­inu um Esjuna eiga vel við, að við förum „eftir ein­breiðum vegi sem liggur í
öfuga átt“ og „allt er síend­ur­tekið, samt er svo mikið ósagt“. Engu að síður má
vona að góður andi ríki hér, að virð­ing verði borin fyrir ólíkum sjón­ar­miðum, að
þing­menn geti notið ljúfra stunda milli stríða, slegið á létta strengi og fundið að
þrátt fyrir allt er það mun fleira sem sam­einar okkur í þessu landi en það sem
sundrar okkur.

Að svo mæltu bið ég ykkur öll að minn­ast fóst­urjarð­ar­innar með því að
rísa úr sætum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag