Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Einkaviðtal við handritshöfund frá Hollywood um verkfallið: „Fólk hefur misst heimili sín“

Einkaviðtal við handritshöfund frá Hollywood um verkfallið: „Fólk hefur misst heimili sín“
Azie Dungey (vinstra megin) í Black Live Matters kröfu­göngu í Ástralíu. Mynd: Instagram-skjáskot

Hand­rits­höf­undar í Hollywood hafa verið í verk­falli frá 2. mars á þessu ári og lítið virð­ist þok­ast í samn­ings­við­ræðum. Leikarar í Hollywood fóru svo í verk­fall í júlí og hefur harkan í verk­föll­unum stig­magn­ast síðan. Mannlíf ræddi við hand­rits­höf­und­inn Azie Dungey í einka­við­tali.

Azie Dungey

Íslands­vin­ur­inn Azie Dungey er hand­rits­höf­undur og leik­kona í Hollywood en hún var meðal ann­ars í hand­ritateym­inu sem skrif­aði hinn geysi­vin­sæla gam­an­þátt Unbr­eaka­ble Kimmy Schmidt en einnig kom hún meðal ann­ars að hand­rita­gerð við þætt­ina Ask a Slave, Harlem, Girls5Eva og Sweetbitter. Azie hefur hlotið til­nefn­ingar fyrir hand­rita­skrif sín en hún hefur meðal ann­ars unnið með Hollywood-kanónum á borð við Tinu Fey og Amy Poehler.

Azie ræddi við blaða­mann Mannlífs um verk­föllin og stemmn­ing­unni meðal verk­falls­fólks. Hún flutti nýlega til Ástralíu en gaf sér tíma til að spjalla.

„Samn­ingar okkar hand­rits­höf­unda við AMPTP (Félag fram­leið­enda sjón­varps­þátta og kvik­mynda) rann út og samn­inga­við­ræður hófust. Í þeim við­ræðum kom í ljós að AMPTP vildi ekki ganga að kröfum okkar. Helsta deilu­efnið snýr að þeirri stað­reynd að streym­isveit­urnar borga okkur ekki fyrir streymin. Áður var það þannig að ef að þáttur sló í gegn, borg­uðu sjón­varps­stöðv­arnar okkur auka­lega þegar þætt­irnir voru end­ur­sýndir, seldir áfram til ann­arra sjón­varps­stöðva og þegar þeim var dreift með öðrum hætti, til dæmis þegar þeir voru settir á DVD eða mynd­bands­spólur. Ef að þátt­ur­inn gaf pen­ing, þá fengum við pen­ing í kjöl­farið. En streym­isveitur hafa þetta ekki svona. Þannig að hand­rits­höf­undar eru ekki að fá greitt það sem þeir eiga skilið. Efnið er að skapa millj­arða doll­ara gróða fyrir streym­isveit­urnar en við fáum ekki hluta af þeim gróða.“

Azie Dungey í kröfu­göngu.

Azie sagði að deil­urnar snér­ust einnig um fleira. „Önnur deilu­mál snúa að því að stúd­íóin vilji nota gervi­greind til að skrifa eða end­ur­skrifa og vanda­mál varð­andi stærð skrif­stofu­rýmis, og það að lág­marks­viku­launin héldu ekki í við kaup­mátt­inn og fleira.“

En bjóst Azie við að verk­fallið drægist svona á lang­inn, að það væri enn í gangi í sept­em­ber?

„Þetta er fyrsta verk­fallið mitt þannig að ég vissi ekki hverju ég mátti búast við. Ég veit að lengsta verk­fall WGA (Félag hand­rits­höf­unda) varði í 154 daga en það var árið 1988. Ég von­aði sann­ar­lega að verk­fallið yrði styttra en það er orðið.“

Hvernig er stemmn­ingin meðal hand­rits­höf­unda?

„Ég held að and­inn sé bara góður hjá fólki því við vitum að við erum að gera hið rétta. Það sem við berj­umst fyrir er algjör­lega nauð­syn­legt svo við getum lifað af. Og þetta er rúm­lega sann­gjarnt. Sumir yfir­menn í Hollywood hafa meira að segja við­ur­kennt nafn­laust, að kröfur okkar séu meira en sann­gjarnar. Og þeir hafa tapað meira en hund­ruðum millj­óna doll­ara meira en það sem það hefði kostað þá að semja við okkur.“

Azie segir að þó að and­inn sé góður hjá hand­rits­höf­undar hafi margir þeirra átt afar erfitt í verk­fall­inu.

„Hand­rits­höf­undar hafa orðið fyrir miklu höggi, bæði per­sónu­lega og fjár­hags­lega. Fólk hefur misst heim­ili sín og sumir minna þekktir höf­undar sofa í bílum sínum. Vegna þessa erum við mjög döpur og þetta hefur haft gríð­ar­leg áhrif á aðra starfs­menn sem starfa við þátta- og kvik­mynda­gerð, þó þeir séu í öðrum stétt­ar­fé­lögum.“

En hefur Azie fundið fyrir stuðn­ingi frá leik­urum Hollywood?

„Já. Þeir eru líka komnir í verk­fall þannig að við erum í sömu mót­mæla­göng­unum. En jafn­vel áður en þeir fóru í verk­fall mættu þeir þegar þeir gátur og sýndu mik­inn stuðn­ing.“

En hvað hefur Azie tekið sér fyrir hendur í verk­fall­inu?

„Ég fór dag­lega í mót­mæla­göngur til að byrja með. En per­sónu­lega finnst mér erfitt að hafa efni á að búa í Los Angeles. Og ég hef verið að spá í að flytja um nokk­urt skeið. Þannig að ég seldi öll hús­gögnin mín og flest fötin mín og fór. Í augna­blik­inu bý ég í Ástralíu í lít­illi borg á Norð­ur­svæð­inu.“

Aðspurð hvort hún sé bjart­sýn á fram­tíð­ina þegar snýr að atvinnu, seg­ist Azie ekki vera viss.

„Þeir geta ekki gert sjón­varps­þætti eða kvik­myndir án hand­rits­höf­unda. Ég veit ekki hvernig lands­lagið mun verða þegar við snúum aftur því stúd­íóin hafa tapa svo miklum fjár­munum á verk­fall­inu. Mig grunar sterk­lega að við munum vinna mikið til í fjar­vinnu, því það sparar pen­ing sem færi ann­ars í skrif­stofu­leigur. Þannig að það er gott því ég bý í öðru landi. En ann­ars er þetta allt svo­lítið í lausu lofti. Ég held að það hafi verið gott fyrir okkur öll að end­ur­meta líf okkar, hvað vinnan þýðir fyrir okkur og hvert verð­mæti okkar er fyrir atvinnu­grein sem hagn­ast stjarn­fræði­legan af vinnu okkar.“

En hvernig heldur Azie að verk­fall­inu ljúki?

„Eins og kröfu­spjaldið sagði: „Hösk­uld­ar­við­vörun: Við vinnum.“

Azie hefur eitt að segja að lokum:

„Ég elska Ísland. Ég hef komið þangað þrisvar sinnum. Í augna­blik­inu er mjög heitt hér í Ástralíu en ég myndi alveg þiggja kalda íslenska golu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco