Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fimmtán ára stúlka myrt á leið sinni í skólann: „Versta martröð allra foreldra“

Fimmtán ára stúlka myrt á leið sinni í skólann: „Versta martröð allra foreldra“

Fimmtán ára stúlka var stungin til bana á leið sinni í skól­ann í Croydon, suður Lundúnum.

Samkvæmt frétt BBC umkringdu lög­reglu­bílar og sjúkra­bíll tveggja hæða stræt­is­vagn í Wellesley-vegi, nærri Whitgift Centre, í kjöl­far árás­ar­innar um klukkan 8:30 í morgun.

Sautján ára ung­lings­piltur, sem tal­inn er þekkja fórn­ar­lambið, var hand­tek­inn stuttu eftir að stúlkan lést klukkan 09:21.

Í yfir­lýs­ingu Old Palace of John Whitgift skól­ans seg­ist skól­inn vera í „djúpu áfalli.“

Einka­rekni stúlkna­skól­inn í Croydon sagði að fórn­ar­lambið hefði verið „mjög elskuð og vel met­inn vinur og nem­andi.“ „Það mun taka nokkurn tíma fyrir Old Palace-sam­fé­lagið að átta sig á þessum hræði­legu fréttum og við munum bjóða nem­endum okkar hjálp. Umfram allt, sendum við ást okkar og dýpstu sam­úð­ar­kveðjur til fjöl­skyldu stúlkunnar á þessum ólýs­an­legu erf­iðu tímum. “

Andy Brittain, stað­geng­ill Met lög­reglu­stjór­ans, sagði við fjöl­miðla að málið væri „versta martröð allra for­eldra. Ég veit að þeir lög­reglu­menn sem mættu fyrstir á vett­vang, ásamt öðrum við­bragðs­að­ilum, eru algjör­lega nið­ur­brotnir vegna dauða fórn­ar­lambs­ins.“

Sagði hann að lög­reglu­menn­irnir hafi verið komnir á vett­vang innan tveggja mín­útna frá því að til­kynn­ing um árás­ina barst. Þeir hafi veitt fyrstu hjálp.

„Innan 75 mín­útna var 17 ára drengur hand­tek­inn í New Add­ington og er enn í varð­haldi,“ bætti hann við.

Lög­reglan stað­festi einnig á blaða­manna­fund­inum að ekki væri verið að leita að öðrum ein­stak­lingi í tengslum við árás­ina.

Hvítt rann­sókn­ar­tjald var sett upp í morgun við morð­stað­inn en fjöldi blóma hafa verið lögð við hlið tjalds­ins. Þá hefur lög­reglan einnig sett upp rautt lím­band í kringum stræt­is­vagn­inn og fjöldi lög­reglu­manna hefur verið á staðnum í allan dag.

Eitt vitni sagð­ist hafa séð bíl­stjóra stræt­is­vags­ins og konu reyna að end­ur­lífga stúlk­una á gang­stétt fyrir utan stræt­is­vagn­inn. Vitnið, sem vill aðeins koma fram undir nafn­inu Bridget sagði: „Ég var í vagn­inum áður og sá þau reyna að end­ur­lífga hana. Bíl­stjór­inn var að halda henni ásamt konu. Við­bragðs­að­ilar voru svo mættir fljót­lega.“

 Anthony King, sem vinnur með ung­mennum í hverf­inu, ræddi við BBC Radio London en hann heldur utan um sam­tök sem vinna að því að draga úr glæpum í Croydon-hverf­inu. Sagði hann í við­tal­inu að hann hafi hitt vini og fjöl­skyldu­með­limi stúlkunnar í kjöl­far árás­ar­innar. „Þetta er í fjórða eða fimmta skiptið sem ég hef þurft að horfa í augu for­eldra og segja þeim að barnið þeirra hafi dáið. Þetta er versti dagur lífs mín og ég get ekki ímyndað mér hvernig til­finn­ingin er fyrir for­eld­rana. Hávaðinn og öskrin sem ég heyrði í morgun mun sitja á sál minni að eilífu. Hafið fjöl­skyld­una í huga ykkar og bænum.“ Bætti hann við að 22 mán­uðir séu síðan ung­lingur var myrtur í Croydon.

Morðið í morgun er fimmt­ánda ung­lingamorð árs­ins í land­inu en í fyrra voru þau fjórtán tals­ins.

Samkvæmt gögnum Met-lög­regl­unnar voru fleiri hnífa­árásir í Croydon en í nokkrum öðrum hvefum Lundúna, frá ágúst 2022 til ágúst 2023.

Georgina Slater, íbúi í Croydon, sagði BBC að morðið sé „algjör­lega við­bjóðs­legt og sé að ger­ast allt of oft á þessu svæði. Ég skil ekki hvernig lítil stúlka getur verið stungin svo snemma morg­uns.“ Bætti hún við: „Ég veit ekki hvað lög­reglan er að gera … þau [fórn­ar­lömbin – inn­skot blaða­manns] eru bara að yngj­ast. Við þurfum inn­grip, við þurfum hluti fyrir börnin, þau hafa enga leið­sögn. Lög­reglan mætir þegar þetta er skeð – hvar er inn­gripið í skól­unum?“

Georgina Slater

Annar veg­far­andi, Christopher Ita sagði við BBC: „Þetta mun ger­ast aftur í næstu viku og í næsta mán­uði, þetta verður bara ein­hver annar.“

Borg­ar­stjóri Lundúna, Sadiq Khan sagð­ist vera „algjör­lega hrygg­brot­inn“ vegna morðs­ins og biðl­aði til vitna en bætti við að hann væri í sam­skiptum við lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæði Lundúna, Sir Mark Rowley. „Ég lofa því að halda áfram að vinna dag og nótt að því að enda þá plágu hnífa­árása sem plagar borg­ina okkar,“ sagði Khan í við­tali við útvarps­stöð­ina Greatest Hits Radio.

Sarah Jones, þing­kona Croydon Central, sagði: „Ég er nið­ur­brotin yfir því að barn í bænum mínum hafi verið myrt á leið sinni í skól­ann.“ Þakkaði hún lög­regl­unni og sjúkra­liðum fyrir snögg við­brögð og til­raunir til að bjarga lífi stúlkunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco