Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Segir nauðsynlegt að vera með breitt bak: „Stundum gat þetta verið vesen“

Segir nauðsynlegt að vera með breitt bak: „Stundum gat þetta verið vesen“
Daníel Alvin er eins og þú

Rapp­ar­inn Daníel Alvin er kom­inn aftur á stjá en það ætti að gleðja ansi marga því hann var um tíma einn af vin­sælstu röpp­urum lands­ins. Daníel vakti fyrst athygli þegar hann sigr­aði Rímnaflæði árið 2006 og byggði í fram­haldi upp vin­sældir með útgáfu á eigin lögum og með hljóm­sveit­inni Þriðju Hæðinni, sem hann var með­limur í. Nú er hann eldri og reynsl­unni rík­ari og gaf út plöt­una Þetta Líf í gær. Mannlíf ræddi við Daníel um plöt­una, fer­il­inn og lífið.

„Mig lang­aði fyrst og fremst að byrja gera tón­list aftur, ekki endi­lega nýja plötu,“ sagði Daníel þegar hann var spurður um hvernig nýja platan varð til. „Mig lang­aði að kom­ast aftur í gír­inn. Ég fór að vinna í lögum og áður en ég vissi af því þá var ég búinn að hlaða í sjö lög sem ég var bara nokkuð ánægður með. Svo er fátt skemmti­legra en að skapa nýja tón­list.“

En hver er Daníel Alvin í dag?

„Dags­dag­lega er ég bara að lifa venju­legu fjöl­skyldu­lífi. 9-5 vinnan og svo heim til fjöl­skyld­unnar. Ég reyni að vera eins góður maki og ég get verið og reyni að vera eins góður pabbi og ég get verið.“

Daníel er fjöl­skyldu­maður mik­ill

„Það er svo margt sem hægt er að telja upp,“ svar­aði Daníel þegar hann spurður út í hvað stendur upp úr á ferl­inum. „Öll giggin „back in the day“, þegar ég túraði í Litháen með stærstu hljóm­sveit Litháens var magnað. Svo bara allar minn­ing­arnar uppí stúdíó með strák­unum að fífl­ast og gera það sem okkur fannst skemmti­leg­ast að gera.“

Umdeildur í góðra vina hópi

„Það var ákveðið vibe,“ sagði Daníel hlægj­andi þegar hann er spurður um hvernig var að vera með­limur í Þriðju Hæðinni, en sú hljóm­sveit þótti nokkuð umdeild á sínum tíma.
„Við vorum að vinna svo­lítið með að reyna „sjokka“ eins og við gátum. Öll athygli var ein­hvern­vegin góð athygli. Auðvitað er fullt sem ég hefði vilja gera öðru­vísi. Það eru alveg ein­ver „bars“ sem ég hefði vilja sleppa eða skrifa öðru­vísi. Stundum gat þetta verið vesen en í lok dags vorum við allir bara mjög góðir vinir og höfðum gaman að þessu.“

Daníel var um tíma einn af vin­sæl­ustu röpp­urum lands­ins en sumir telja að þeir sem hafi á undan honum komið hafi aldrei sýnt Daníel næga virð­ingu. Upplifði Daníel það eða er þetta mis­skiln­ingur?

„Þegar maður er í þessu, þá þarf maður að vera með breitt bak og geta tekið því sem kemur. Mín upp­lifun var að ég fann aldrei fyrir neinni van­virð­inu frá þeim sem komu á undan. Við vorum bara „the young cats“ og það var alltaf bara gaman að vera þeir nýju í sviðs­ljós­inu. Ég tel að við höfum veitt inn­blástur og margir sem litu upp til okkar. Jelousy is just love and hate at the same time.“

Daníel er með breitt bak og segir það nauð­syn­legt

„Minn maður Krist­mundur Axel er að gera stór­kost­lega hluti, því­líkt „comeback“,“ sagði Daníel um hvaða íslensku rapp­arar væru að gera bestu hlut­ina um þessar mundir.
„Að geta tekið sér svona stóra pásu, unnið virki­lega í sér og komið svona til­baka eins og hann er að gera veitir mér inn­blástur. Gæinn er magn­aður. Herra Hnet­ur­smjör, Birnir, Daniil, þessir gæjar eru á öðru „leveli“ líka að mínu mati.“

Þroskaður pabbarappari

„Óþarfi að minn­ast á ald­ur­inn,“ sagði rapp­ar­inn hlægj­andi þegar hann spurður hvort að það sé skrýtið að vera rapp­andi á fer­tugs­aldr­inum. „Sko, platan Þetta Líf er rosa­lega mikið alvöru tal og pabb­arapp. Þetta eru bara mun þroskað­ari lög en ég var að gera fyrir tíu árum. Þetta er samt mikið „boom bap hip hop“. En svo er ég að vinna núna í enn nýrri tón­list og hún verður allt öðru­vísi en þessi plata. Hlakka mikið til að leyfa ykkur að heyra.“

En hvað tekur svo við?

„Planið er bara að halda áfram að gera tón­list, lífið er óskrifað. Hvort sem það kemur önnur plata eða bara fullt af skemmti­legum „sing­les“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur