Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segja skýrslu Vinnueftirlitsins á alvarlegu slysi illa unna:„Hroðvirknislega gert og ófullnægjandi“

Segja skýrslu Vinnueftirlitsins á alvarlegu slysi illa unna:„Hroðvirknislega gert og ófullnægjandi“
Vinnu­eft­ir­lit rík­is­ins

Sér­fræð­ingar sem skoðað hafa rann­sókn­ar­skýrslu Vinnu­eft­ir­lits­ins, á alvar­legu vinnu­slysi í Grenivík í fyrra, segja skýrsl­una afar illa unna.

Í ára­tugi hefur Vinnu­eft­ir­lit rík­is­ins rann­sakað vinnu­slys og byggt upp mikla þekk­ingu á því sviði. Samkvæmt upp­lýs­ingum Mannlífs not­að­ist stofn­unin við gát­lista sem hafði verið þró­aður ára­tugum saman en þá var spurt staðl­aðra spurn­inga og ákveðnu verk­lagi fylgt, svo tryggja mætti gæði rann­sókna. Heim­ildir Mannlífs herma að eftir að Hanna Sigríður Gunn­steins­dóttir tók við sem for­stjóri Vinnu­eft­ir­lits­ins árið 2019, hafi gát­list­inn og fyrra verk­lag verið lagt til hliðar.

Sjá einnig: Vinnu­eft­ir­litið við­ur­kennir lög­brot

Breytt verklag

Heim­ild­ar­menn Mannlífs segja að fyrir 2019 hafi rann­sóknir og skýrslur vegna alvar­legra vinnu­slysa aldrei verið gefnar út fyrr en lög­reglu­skýrsla lægi fyrir. Skýrlur um banaslys voru ekki gefnar út fyrr en krufn­ing­ar­skýrslur lágu fyrir. Þá er það lög­reglan sem yfir­heyrir vitni við rann­sókn slysa, ekki Vinnu­eft­ir­litið, þó stofn­unin hafi oft beðið lög­regl­una um að spyrja ákveð­inna spurn­inga sem gátu gefið þýð­ing­ar­miklar upp­lýs­ingar við rann­sókn þess.

Mannlíf hefur undir höndum rann­sókn­ar­skýrslu um alvar­legt vinnu­slys sem varð í verk­smiðju Pharmarctica í Grenivík í fyrra. Tveir starfs­menn slös­uð­ust illa en annar þeirra, Kinga Kleinschmidt, var heppin að lifa af en hún hlaut þriðja stigs bruna­sár á 85 pró­sent lík­am­ans. Mannlíf bar skýrsl­una undir sér­fræð­inga í slysa­rann­sóknum, sem ekki vildu koma fram undir nafni. Telja sér­fræð­ing­arnir að skýrslan sé afar illa unnin. Sögðu þeir eft­ir­far­andi í sam­tali við Mannlíf:

„Í þess­ari skýrslu um slysið á Grenivík er eins og sá sem rann­sakar fyrir hönd Vinnu­eft­ir­lits­ins tali ekki við neinn, það er ekk­ert haft eftir vitnum, það er ekki talað við atvinnu­rek­anda, það er ekki talað við verk­stjóra, það er ekki talað við sam­starfs­fólk slös­uðu. Síðast en ekki síst er ekki talað við fólkið sem slas­að­ist. Haft var sam­band við stjórn­endur en ekk­ert er haft eftir þeim. Það er eitt­hvað haft óbeint eftir ein­hverju fólki:

Að sögn við­mæl­enda var farið að lækka veru­lega í tunn­unni og stutt í að hún tæmd­ist. 

Eins og kom fram í upp­hafi var lítið efni orðið eftir í tunn­unni og starfs­maður var að kanna hve mikið var eftir í tunn­unni.“

Hér eru nokkrar spurn­ingar/fyr­ir­sagnir úr gát­lista Vinnu­eft­ir­lits­ins sem not­aður var í ára­tugi. Skoðum hvernig þessi rann­sókn kemur út sam­kvæmt honum.

Gagnrýnin

1. Inn­gangur:  Dags, til­kynnt af, hvar og hverjir voru á staðnum.

„Þetta er hroð­virkn­is­lega gert og ófull­nægj­andi. Dag­setn­ing kemur fram og að tækni­deild lög­regl­unnar hafi verið vænt­an­leg. Haft var sam­band við stjórn­endur en svo er ekk­ert haft eftir þeim. Ekkert kemur fram hverjir tóku á móti rann­sak­anda og ræddu við hann annað en að það voru stjórn­endur. Ekkert er minnst á örygg­is­trún­að­ar­menn og örygg­is­verði eða aðra.“

2. Tildrög slyss:  Stutt lýs­ing, hvernig slysið bar að og hvað fór úrskeiðis.

„Lýsing á slys­inu er óljós og full af ágisk­unum, eðlis- og efnaræði spreng­ing­ar­innar er lýst ítar­lega eins og það skipti mestu máli. Hvernig slysið bar að er lýst með hreinum ágisk­unum: 

Það er því lík­legt að starfs­maður hafi hallað tunn­unni til að sjá betur ofan í hana. Einnig er hugs­an­legt að tunnan hafi verið látin halla til að slöngu­end­inn væri á kafi í vökva, til að reyna að ná öllu upp úr henni. Starfs­mað­ur­inn hefur þá haldið við tunn­una og hefur lík­lega misst takið á henni með þeim afleið­ingum að tunnan fellur á hlið­ina.

Senni­lega var það hosuklemman sem slóst utan í…

Jafn­framt kann að vera að tunnan hafi mögu­lega staðið upp­rétt og starfs­maður tekið slöng­una upp til að sjá hve mikið var eftir og óvart slegið ein­streym­is­lok­anum utan í tunn­una…

Það eru hreinar ágisk­anir um hvernig slysið bar að og hvað fór úrskeiðis. Svona vinnu­brögð hafa aldrei áður sést í skýrslum frá Vinnu­eft­ir­lit­inu. Það er ekk­ert hægt að læra af ágisk­unum og þær halda ekki vatni fyrir dóm­stólum.“ 

3. Vinnu­brögð og starfs­hættir: Vinnu­brögð slas­aða, almenn vinnu­brögð við verkið, aldur slas­aða, reynsla, fræðsla og þjálfun. Verk­stjórn og sam­verka­menn.

„Það er ekk­ert fjallað um vinnu­brögð þeirra sem slös­uð­ust. Lagðar eru fram ágisk­anir eins og kom fram í spurn­ingu 2. Það kemur eitt­hvað lítið fram um almenn vinnu­brögð við svona verk. Ekkert kemur fram um aldur, reynslu, fræðslu og þjálfun þeirra sem slös­uð­ust. 

Fræðsla og þjálfun þeirra sem vinna með var­úð­ar­merkt hættu­leg efni skiptir mjög miklu máli. Hafði fólkið fengið fræðslu og þjálfun til að vinna þetta verk­efni? 

Hvar var verk­stjór­inn, hafði hann stjórn á verk­inu? Hvar voru sam­verka­menn slös­uðu, höfðu þau hlotið fræðslu og þjálfun til að vinna þetta verk?“ 

4. Aðstæður á slys­stað: Inni og/eða úti. Umhverf­is­þættir. Veðurfar.

„Aðstæðum á slys­stað er lýst og sýndar eru nokkrar myndir en enn er verið að giska:

Gólf­flötur er á að giska 4×8 m, veggir eru á þrjá vegu en þar sem gengið er inn er ekki hurð, hliðin er alveg opin…

Það er giskað á stærð rým­is­ins en ekki mælt með mál­bandi eða stuðst við upp­gefið mál á teikn­ingum. Ekkert kemur fram um stað­bundna loft­ræst­ingu né almenna loft­ræst­ingu í rým­inu. Loft­ræst­ing skiptir miklu máli þar sem unnið er með var­úð­ar­merkt efni. Ekkert kemur fram um það hvort annar bún­aður í rým­inu en áfyll­ing­ar­vélin hafi verið neista­frír.“

5. Áhættu­mat:

„Það er skylda sam­kvæmt lögum nr. 46/1980 að gera áhættu­mat hjá öllum fyr­ir­tækjum. Því hættu­legri sem vinna er því ítar­legra þarf áhættu­matið að vera. 

Það kemur ekk­ert fram um áhættu­mat þessa vinnu­staðar, hvorki hvort gert hafi verið almennt áhættu­mat eða áhættu­mat fyrir þetta verk.“ 

6. Tæki og búnaður: Ástand, skoðun og merkingar

„Fjallað er um tæki og búnað og það kemur fram að dælan var neista­frí en ekki annar bún­aður sem var not­aður.“ 

7. Efni og efnasambönd: Meðferð, verklagsreglur og öryggisblöð

„Fjallað er um efnið sem var verið að vinna með, þ.e. hreinsað bensín. Lítið er fjallað um með­ferð á því og ekk­ert er minnst á verk­lags­reglur um notkun þess. Ekkert er minnst á hvort til voru verk­lags­reglur um það verk sem var verið að vinna. Það er hlut­verk atvinnu­rek­anda að búnar séu til verk­lags­reglur og sjá til þess að farið sé eftir þeim. 

Vísað er í lið 9 í örygg­is­blöðum fyrir hreinsað bensín en ekk­ert er fjallað um aðra liði. Mikið er fjallað um blossa­m­ark og fleira tengt því. 

Sýnt er úr örygg­is­blöð­unum fyrir hreinsað bensín á ensku. Þessi örygg­is­blöð eru til á íslensku og mjög und­ar­legt að sýna þau ekki. 

Ekkert er fjallað um aðra liði í örygg­is­blöð­unum, t.d. lið 7 en þar er fjallað um með­höndlun og geymslu. Í lið 7 kemur m.a. fram að ein­göngu skal nota sprengi­tryggan vél­búnað (ATEX) fyrir þetta efni. Í lið 8 í örygg­is­blöð­unum er fjallað um per­sónu­hlífar.“ 

8. Persónuhlífar: Notkun, merkingar og ástand

„Ekkert kemur fram um hvort slös­uðu not­uðu per­sónu­hlífar þegar slysið varð. Það kemur ekk­ert fram um það hvort atvinnu­rek­andi fór fram á það við slös­uðu eða aðra að not­aðar væru per­sónu­hlífar við þessa vinnu. Ekkert kemur fram um hvort það voru til við­eig­andi per­sónu­hlífar fyrir hreinsað bensín, það er hlut­verk atvinnu­rek­anda að sjá starfs­fólki fyrir nauð­syn­legum per­sónu­hlífum. 

Samkvæmt örygg­is­blöðum um hreinsað bensín á að nota önd­un­ar­grímu, hanska, örygg­is­gler­augu eða and­lits­hlíf og bómull­ar­föt eða föt úr háhita­þolnu gervi­efni þegar unnið er með hreinsað bensín.

Notkun per­sónu­hlífa hefði getað mildað áhrif spreng­ing­ar­innar og minnkað skaða fólks­ins sem slas­að­ist mjög alvar­lega.“ 

9. Niðurstaða rannsóknar: Allt sem tengist orsök slyssins

Hér er nið­ur­staða skýrsl­unar:

Orsök slys­ins má rekja til neista­mynd­unar í stáltunnu með eld­fimu efni. Þegar slysið varð fór af stað ákveðin atburða­rás, sem má m.a. rekja til þess að tunnan var nær tóm og til­viljun réð því að kjörað­stæður m.t.t. spreng­ingar skap­ast. 

Búnaður not­aður við vinn­una var ekki af hent­ugri gerð og ekki var­inn þannig að hann gat valdið neista­myndun. 

Mögulega hefði mátt verja hosuklemm­una og ein­streym­is­lok­ann þannig að málm­hlutir hefðu ekki getað sleg­ist saman. 

Áfylli­vélin sjálf var ekki vottuð neista­frí en neisti frá henni er ekki ástæða spreng­ing­ar­innar.

Byrjunin er rétt svo langt sem hún nær: Orsök slys­ins má rekja til neista­mynd­unar í stáltunnu með eld­fimu efni. Þegar slysið varð fór af stað ákveðin atburða­rás, sem má m.a. rekja til þess að tunnan var nær tóm og til­viljun réð því að kjörað­stæður m.t.t. spreng­ingar skap­ast.

Næsta setn­ing stenst enga skoðun: Búnaður not­aður við vinn­una var ekki af hent­ugri gerð og ekki var­inn þannig að hann gat valdið neista­myndun. 

Mögulega hefði mátt verja hosuklemm­una og ein­streym­is­lok­ann þannig að málm­hlutir hefðu ekki getað sleg­ist saman.

Það er hrein vit­leysa að tala um að bún­að­ur­inn hafi ekki verið hent­ugur. Bún­að­ur­inn var ólög­legur. Nota átti sprengi­tryggan búnað, ATEX.

Ekkert í þess­ari rann­sókn og nið­ur­stöðu hennar snýr að ábyrgð atvinnu­rek­and­ans. Rann­sóknin snýst aðal­lega um eðlis- og efna­fræði spreng­ing­ar­innar og svo er giskað á að slös­uðu hafi gert hitt eða þetta. 

Orsök slyss­ins er að atvinnu­rek­andi stóð ekki undir skyldum sínum sam­kvæmt lögum. Það var ekki not­aður neista­frír, við­ur­kenndur bún­aður við verkið, ATEX. Það kemur ekk­ert fram um að vinnu­um­hverfið stand­ist kröfur sem eru gerðar um vinnu með hreinsað bensín, m.a loft­ræst­ing og ráð­staf­anir gagn­vart stöð­ur­af­magni. 

Það kemur ekk­ert fram um að starfs­fólkið hafi fengið fræðslu og þjálfun til að vinna með þetta hættu­lega efni.

Það kemur ekk­ert fram um að gert hafi verið áhættu­mat, hvorki almennt né vegna vinnu með hættu­leg efni.  

Það kemur ekk­ert fram um að not­aðar hafi verið per­sónu­hlífar sam­kvæmt örygg­is­blöðum fyrir efnið. 

Gefið er í skyn að slös­uðu beri ábyrgð á slys­inu vegna þess að tunn­unni var hallað eða það hafi verið kíkt ofan í hana. Einnig er gefið í skyn að hosuklemma hafi verið orsök slyss­ins, það stenst enga skoðun.

Hið rétta er að það var ekki not­aður lög­legur, við­ur­kenndur bún­aður og ekk­ert í vinnu­ferl­inu var í lagi. Öll þessi atriði eru á ábyrgð atvinnu­rek­anda, hann upp­fyllti alls ekki skyldur sínar sam­kvæmt lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, holl­ustu­hætti og öryggi á vinnu­stöðum. 

Fyrr­ver­andi starfs­fólk Vinnu­eft­ir­lits­ins

Október 2023 

Skýrslan

Hér má sjá skýrsl­una sjálfa en athugið að ljós­myndir vantar.

Til­kynn­ing um spreng­ingu í verk­smiðju Pharmarctica á Grenivík barst frá Neyð­ar­lín­unni 112 mið­viku­dag­inn 23. mars kl.15:17. Spreng­ing varð í  verk­smiðj­unni og voru tveir starfs­menn illa slas­aðar, með tölu­vert mik­inn bruna. Síðar sama dag hafði lög­regla á Akureyri sam­band við sér­fræð­ing 

Vinnu­eft­ir­lits­ins á Akureyri. Þá hafði vett­vangur verið tryggður, slas­aðir fluttir í  burtu og von var á mönnum frá tækni­deild Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu dag­inn eftir. Ákveðið var að full­trúi slysateymis Vinnu­eft­ir­lits­ins færi einnig  norður dag­inn eftir til að rann­saka aðdrag­anda slyss­ins. 

Starfs­fólk Vinnu­eft­ir­lits­ins var komið á svæðið um kl. 13, fimmtu­dag­inn 24.  mars. Tækni­deild lög­reglu var ekki komin á stað­inn en var vænt­an­leg fljót­lega  og vett­vangur því lok­aður. Meðan beðið var eftir að vett­vangur yrði opn­aður, var haft sam­band við stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins til að afla frek­ari upp­lýs­inga um  atvik. 

Lýsing á aðstæðum: 

Starfs­fólk var að vinna við að fylla hreins­uðu bens­íni á litlar flöskur úr stáltunnu og spreng­ing með miklum eldi verður í því vinnu­ferli. Að sögn við­mæl­enda var  farið að lækka veru­lega í tunn­unni og stutt í að hún tæmd­ist. 

Vinnu­ferlið er þannig að sér­stök vél dælir efn­inu upp úr stáltunnu og skammtar  fyr­ir­fram ákveðnu magni í litlar flöskur, í þessu til­viki 100 ml. Starfs­maður setur  flösku undir þar til gerðan stút og virkjar áfyll­ingu með loft­stýrðum loka sem  stigið er á. Þegar efnið er komið í flösk­una er hún tekin undan og tappi settur  hand­virkt á af öðrum starfs­manni og að lokum fara flösk­urnar í vél sem setur  við­eig­andi lím­miða á þær. Fram­leið­andi vél­ar­innar sem skammtar efn­inu í  flöskur er „Fillflex“. Ferlið við áfyll­ingu má sjá á skýr­ing­ar­mynd úr leið­bein­ingum  fram­leið­anda vél­ar­innar. 

Mynd 1. Skýr­inga­mynd úr bæk­lingi frá fram­leið­anda áfylli­vélar

Hreinsað bensín er eld­fimt efni og á örygg­is­blaði efn­is­ins (SDS) er að finna  ýmsar upp­lýs­ingar um eig­in­leika þess. Í lið nr. 9 á örygg­is­blöðum má nálg­ast  upp­lýs­ingar um helstu eðlis- og efna­fræði­lega eig­in­leika við­kom­andi efna.  Eft­ir­far­andi upp­lýs­ingar er að finna á örygg­is­blaði hreins­aðs bens­íns . Þar sem  hér var um elds­voða/spreng­ingu að ræða, þá skipta upp­lýs­ingar varð­andi  blossa­m­ark (flash point), suðu­mark (boil­ing point ) og sprengi­mörk (explos­ion  limit) mestu máli m.t.t. hvaða eig­in­leikar efn­is­ins gætu valdið slíku. 

Mynd 2. Kafli 9 á örygg­is­blaði hreins­aðs bens­íns 

Í til­viki hreins­aðs bens­íns er ekki um eitt efni að ræða heldur blöndu  sam­bæri­legra efna (aðal­lega svk. alifat­ískra kol­vatns­efna), sem hafa  mis­mun­andi suðu­mark og því er gefið upp suðu­marks­bil, þ.e. suðu­mark efna í blönd­unni er á bil­inu 90-165°C og blandan byrjar því að sjóða við 90°C. 

Blossa­m­ark segir til um hversu eld­fimt efnið er og þeim mun lægra sem  blossam­arkið er því eld­fimara er efnið. Blossa­m­ark þessar blöndu er 1°C sem  þýðir að það kviknar auð­veld­lega í henni með t.d. litlum neista, ef hún er við  hita­stig sem er hærra en 1°C. Þess má geta að efni sem hafa blossa­m­ark 60°C  eða lægra eru vana­lega skil­greind sem eld­fim. 

Sprengi­mörk er styrk­bil gufu efnis blandað við loft þar sem efnið getur brunnið  með sprengi­hraða. Efni af þessu tagi hafa oftar en ekki til­tölu­lega þröngt bil, 

(umrætt efni 0,6-7%) þar sem sprengifimar aðstæður eru til staðar. Gufur þessa  efnis bland­aðar við loft munu t.d. ekki springa ef styrk­ur­inn er yfir 7% í lofti. 

Þegar tappað er úr tunnu er sett slanga ofan í hana og fer hún í gegnum op  sem er nokkuð víð­ara en slangan sjálf. Þar dregst því inn loft eftir því sem  lækkar í tunn­unni. Í ferl­inu stendur tunnan og vökv­anum er dælt rólega upp.  Gufur hreins­aðs bens­íns eru þyngri en loft þannig að þær liggja að mestu næst  vökv­anum og má gera ráð fyrir að loftið sem kemur inn liggi í púða ofan á  vökv­anum. Þannig að hugs­an­legt sprengifimt and­rúms­loft er á mjög  tak­mörk­uðu svæði inni í tunn­unni og þar ætti ekki að geta mynd­ast neisti við  venju­legar aðstæður. 

Dælan í þessu til­viki var þannig útbúin að á enda slöngu sem liggur við botn  tunn­unnar er svk. ein­streym­is­loki sem er gorm­drif­inn og virkar þannig að hægt  er að draga vökva upp úr tunn­unni en hann lekur ekki til baka. Með þessu er  tryggt að loft­tappi mynd­ast ekki í slöng­unni ef tunnan tæm­ist og flytja þarf  slöng­una í nýja tunnu. Ein­streym­is­lok­inn er úr ryð­fríu stáli og er festur við  slöng­una með hosuklemmu úr ryð­fríu stáli. Vegna þess að sprengifimt  and­rúms­loft getur mynd­ast í tunn­unni ætti ekki að nota búnað sem getur  myndað neista ofan í tunn­unni. Ef ryð­frítt stál nudd­ast við stáltunnu getur  mynd­ast neisti og ryð­frítt stál telst því ekki neista­frítt. Samkvæmt upp­lýs­ingum  fram­leið­anda er umræddur ein­streym­is­loki ekki vott­aður sem neista­frír. 

Vinnslu­rýmið var inni í miðju húsi. Gólf­flötur er á að giska 4×8 m, veggir eru á  þrjá vegu en þar sem gengið er inn er ekki hurð, hliðin er alveg opin. Í enda  rým­is­ins gengt opnu hlið­inni var tankur sem not­aður var við aðra fram­leiðslu  og þar var tunnan með efn­inu stað­sett sem unnið var með í þessu til­viki.. Á  borði innst var áfylli­vél en fremst var vél sem setur lím­miða á flösk­urnar. Þegar  komið var inn í vinnslu­rýmið var ljóst að þar hafði verið mik­ill eldur. Nokkuð var  af flöskum með efni í á borði við hlið átöpp­un­ar­vélar sem var ekki búið að loka.  Vélin sjálf lá á hlið­inni og hafði kippst úr sam­bandi og hluti af slöngu sem flytur  efnið að vél­inni var brunn­inn í sundur. Tunnan sem var verið að tappa úr lá á  hlið­inni og botn­inn úr henni lá á gólf­inu við hlið­ina. Ein­streym­is­lok­inn hafði  skot­ist af slöng­unni og fannst graf­inn inn í vegg upp undir lofti fyrir ofan áfylli­vél.  Skemmdir voru í lofti fyrir ofan þar sem tunnan hafði staðið og voru ummerki á  botni tunn­unnar um að hann hafi kast­ast upp í loftið og brotið klæðn­ingu. 

Mynd 3. Áfylli­vélin á borði innst í rým­inu 

Mynd 4. Slanga frá tunnu að áfylli­vél brunnin í sundur

Mynd 5. Opnar og sviðnar áfylltar flöskur á borði við hlið átöpp­un­ar­vélar 

Mynd 6. Skemmdir í lofti fyrir ofan þar sem tunnan stóð

Mynd 7. Veggur fyrir ofan áfylli­vél. Ein­streym­is­loki fannst þar sem klæðn­ing er brotin. Mynd 6  er af svæði vinstra megin við þessa mynd 

Ummerki bentu ekki til þess að upp­tök elds­ins teng­ist raf­kerfi húss­ins né  raf­magni tengt vél­inni. Hins vegar þykir af ummerkjum að dæma ljóst að tunnan  sem efnið var í, hafi sprungið. 

Líkleg atburða­rás: 

Til að spreng­ing geti orðið í tunn­unni þarf ein­hvern vegin að mynd­ast neisti og  hann eða eldur sem hann kveikir þarf að kom­ast í „rétta“ blöndu af gufum  efn­is­ins sem um er að ræða og lofts. Sprengi­mörk efn­is­ins eru á þröngu bili  þannig að standi tunnan og loft kemur inn í hana rólega að ofan er mjög ólík­legt  að nauð­syn­legar aðstæður skap­ist fyrir spreng­ingu.  

Eins og kom fram í upp­hafi var lítið efni orðið eftir í tunn­unni og starfs­maður var  að kanna hve mikið var eftir í tunn­unni. Það er því lík­legt að starfs­maður hafi  hallað tunn­unni til að sjá betur ofan í hana. Einnig er hugs­an­legt að tunnan hafi  verið látin halla til að slöngu­end­inn væri á kafi í vökva, til að reyna að ná öllu  upp úr henni. Starfs­mað­ur­inn hefur þá haldið við tunn­una og hefur lík­lega misst  takið á henni með þeim afleið­ingum að tunnan fellur á hlið­ina. Þegar tunnan féll á hlið­ina slóst slangan í hlið tunn­unnar af nokkru afli. Senni­lega var það  hosuklemman sem slóst utan í með þeim afleið­ingum að neisti mynd­ast, tunnan  var húðuð að innan en skrúfa á hosuklemmu getur auð­veld­lega brotið húð­ina  ef hún slæst utan í, þannig að málmur nær að snerta málm. 

Jafn­framt kann að vera að tunnan hafi mögu­lega staðið upp­rétt og starfs­maður  tekið slöng­una upp til að sjá hve mikið var eftir og óvart slegið  ein­streym­is­lok­anum utan í tunn­una, en neisti virð­ist hafa mynd­ast ofar­lega i  tunn­unni, atburða­rásin í fram­haldi yrði sú sama og lýst er hér á eftir. 

Mynd 8. Slanga sem var í tunn­unni ásamt ein­streym­is­loka, rauður hringur um hosuklemmu  sem hélt ein­streym­is­loka sem snéri eins og á mynd­inni 

Mynd 9. Mynd innan úr tunn­unni inni í rauðum hring eru senni­lega ummerki um  neista­myndun. Inni í bláa hringnum er opið sem slangan kom niður um. 

Neisti sem mynd­að­ist hefur lík­lega kveikt eld í ein­streym­is­lok­anum sem var  blautur af efn­inu og jafn­framt með leifar efn­is­ins í neðri hluta og sam­hliða  kviknar í því. Við brun­ann snögg­hitnar ein­streym­is­lok­inn sem er úr málmi og  leiðir hitan upp í efri hluta lokans þar sem efnið var lokað inni í slöng­unni, hit­inn  verður það mik­ill að hluti efn­is­ins sem liggur í lok­anum hitn­aði á auga­bragði það  mikið að hluti þess sýður. Útreiknað við 0°C verður rúm­máls­aukn­ing þessa  efnis um 150 föld við að breyt­ast úr vökva í gufu, hit­inn hér var hærri þannig að  áhrifin eru í raun enn meiri. Þar sem tak­markað rými var fyrir efnið að þenj­ast  inni í slöng­unni mynd­að­ist mik­ill þrýst­ingur vegna þensl­unnar en slangan var  lokuð í báða enda. Þrýst­ing­ur­inn veldur því að ein­streym­is­lok­inn skaust af  slöng­unni og lenti í kanti við botn tunn­unnar, niður við gólf. Við þetta rifnar  botn­inn af (byrjar neðst þar sem lok­inn lendir) og þeyt­ist upp í loftið fyrir ofan.  Ein­streym­is­lok­inn lenti á veggnum eða tanknum fyrir aftan og end­ur­kast­ast upp  í vegg­inn fyrir ofan vél­ina. Þegar lok­inn skýst af ýrð­ist efni sem var í slöng­unni  út úr end­anum og bland­ast lofti og eldi sem var fyrir og sam­tímis varð heild­ar­spreng­ing í tunn­unni. Allt gerð­ist þetta svo að segja á sama augna­bliki. Það ber að hafa í huga að þegar tunnan féll og slangan slóst til varð blöndun á  loft­inu sem lá ofan á vökv­anum í tunn­unni. Ef tunnan var næstum tóm mætti  gera ráð fyrir að t.d. 95% af rúm­máli hafi verið loft og afgangur ein­hver vökvi og svo gufur efn­is­ins þannig að það má ímynda sér að kjörað­stæður hafi verið til  spreng­ingar að teknu til­liti til sprengi­marka efn­is­ins, styrkur gufu mv. þessar  for­sendur um 5%. 

Mynd 10. Botn tunn­unnar í rauðum hring má sjá hvar ein­streym­is­loki hefur lent og fyrir ofan  sést að stálið er togað í átt að þessum punkti. 

Með botn­inum kom eld­hnöttur með brenn­andi efn­inu og miklum hita. Eld­bylgjan  lenti á veggnum innst í rým­inu, ferð­að­ist upp eftir veggnum, lenti á loft­inu og  kastað­ist þannig fram í rýmið og kveikti í öllu framar í rým­inu. Hitinn sem fylgdi olli mik­illi eyði­legg­ingu á leið­inni. Eld­bylgjan kveikti í þeim hluta slöng­unnar úr  tunn­unni sem er næst áfylli­vél­inni. Það er eðli svona eld­bylgju að hún tekur fljótt  af vegna þess að súr­efni og „fóður“ klár­ast þannig að það er mik­ill eldur í  augna­blik sem slokknar svo í fram­haldi.

Mynd 11. Á gangi fyrir framan vinnslu­rýmið má sjá mikla eyði­legg­ingu og hvernig eld­bylgja  hefur farið yfir uppi við loft. 

Sá ein­stak­lingur sem slas­að­ist meira stóð við hlið tunn­unnar og fékk senni­lega  á sig eld­bylgj­una þegar hún kast­ast af loft­inu. Mögulega hefur eitt­hvað efni  gusast á hinn slas­aða og aukið bruna­á­hrif en hit­inn var gríð­ar­legur, jafn­vel yfir  1000°C og hann einn getur valdið miklum bruna.

Nið­ur­staða:  

Orsök slys­ins má rekja til neista­mynd­unar í stáltunnu með eld­fimu efni. Þegar  slysið varð fór af stað ákveðin atburða­rás, sem má m.a. rekja til þess að tunnan  var nær tóm og til­viljun réð því að kjörað­stæður m.t.t. spreng­ingar skap­ast.  

Búnaður not­aður við vinn­una var ekki af hent­ugri gerð og ekki var­inn þannig að  hann gat valdið neista­myndun. Mögulega hefði mátt verja hosuklemm­una og  ein­streym­is­lok­ann þannig að málm­hlutir hefðu ekki getað sleg­ist saman 

Áfylli­vélin sjálf var ekki vottuð neista­frí en neisti frá henni er ekki ástæða  spreng­ing­ar­innar.  

07.03.2023 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við