Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jólaskemmtun breyttist í martröð þegar Archie litli hætti að anda: „Ég sat bara þarna og grét“

Jólaskemmtun breyttist í martröð þegar Archie litli hætti að anda: „Ég sat bara þarna og grét“
Archie litli á skemmt­un­inni

Ókunnug kona bjarg­aði lífi unga­barns á jóla­skemmtun í Manchester í gær.

Móðir lít­ils drengs opn­aði sig við Manchester Evening News, um þann hræði­lega atburð sem gerð­ist í gær er hún fór ásamt fjöl­skyldu sinni að horfa á tendrun jóla­ljósa í Umrston á Stór-Manchester svæð­inu. Rifjaði hún upp panikkið sem greip hana þegar „besta kvöld lífs­ins“ breytt­ist skyndi­lega í martröð.

Archie litli

Nicola Williams var á gangi með 15 mán­aða gamla syni sínum Archie í skóg­lendi þegar strák­ur­inn datt skyndi­lega og byrj­aði að halda niður í sér and­anum, eitt­hvað sem mamma hans segir að hann geri reglu­lega en að það hætti venju­lega innan við mín­útu. En hin þriggja barna móðir byrj­aði að panikka þegar Archie rang­hvolfdi aug­unum og varð grút­mátt­laus í örmum hennar, sem varð til þess að hún öskr­aði á hjálp. Ókunnug hetja stökk þá til og gaf Archie munn við munn aðferð­ina og setti hann í læsta hlið­ar­legu. Eftir það, byrj­aði hann að hreyfa sig aftur en konan setti hann þá á hné sér og hélt uppi hök­unni hans til að halda önd­un­ar­vegi hans opnum.

Til allrar lukku opn­aði Archie augun og fór aftur í fang móður sinnar. Atburð­ur­inn var án efast afar átak­an­legur fyrir Nicolu en hún missti annan son þegar hann var aðeins 14 mán­aða.

Í við­tali við Manchester Evening News sagði Nicola: „Kvöldið var algjör­lega ynd­is­legt. Við vorum að dansa við tón­list plötu­snúð­ar­ins og að eiga besta kvöld ævinnar. Krakk­arnir voru að skemmta sér kon­ung­lega. Við tókum eftir gönguslóða í skóg­lend­inu og ákváðum að fara í smá göngutúr áður en við tækjum rút­una heima. En svo datt Archie og byrj­aði að gráta. Frænka mín tók hann upp og hann byrj­aði að halda í sér and­anum. Hann gerir það venju­lega en hættir því alltaf fljót­lega. Ég sagði: „Archie, þetta er allt í lagi“, en hann var ekki að jafna sig. Ég tók hann af frænku minni en hann var bara ekki að svara mér. Hann rang­hvolfdi aug­unum og varð algjör­lega mátt­laus. Ég setti hann á jörð­ina og sagði: „Guð minn góður, hjálpið mér, barnið mitt“, og kona stökk til og gerði snöggvast munn við munn aðferð­ina og hann byrj­aði að hreyfa sig. Hún setti hann þá í læsta hlið­ar­legu og hann byrj­aði að hreyfa sig aðeins meira. Þá setti hún hann á hné sér og hélt hök­unni upp til að halda önd­un­ar­veg­inum opnum.“ Nicola segir að það sem gerð­ist næst sé enn í nokk­urri móðu. „Hann leit á mig og svo á kon­una, mjög hissa,“ sagði móð­irin sem vinnur við umönnun.

„Hún rétti mér hann og þegar hún var að því sagði hún mér að hringja í sjúkra­bíl. Ég sat þarna með sím­ann í hend­inni. Ég hringdi ekki einu sinni í sjúkra­bíl. Ég vissi ekki hvað ég  var að gera. Ég sat bara þarna og grét. Ég fór bara í algjört sjokk. Ég var þarna ena samt ekki. Þetta var svo átak­an­legt.“

Archie var að lokum fluttur á sjúkra­hús og skoð­aður en sendur heim stuttu síðar. Nicola heldur nú að ef ekki hefði verið fyrir snögg við­brögð ókunn­ugu kon­unnar, hefði sonur hennar dáið. „Þetta var hræði­legt,“ sagði hún og bætti við: „Ef hún hefði ekki verið þarna, hefði eng­inn heyrt í okkur öskra. Hún bjarg­aði lífi hans. Hann dó bók­staf­lega. Hann var far­inn. Andlitið var orðið blátt, varir hans voru bláar og svæðið í kringum nefið hans var blátt. Ég hélt að hann væri dáinn. Archie er krafta­verk og regn­boga­barn. Ég missti barn áður en Archie var tví­buri. Ég missti tví­bura hans 14 mán­aða.“

Bætti hún við að lokum: „Við reyndum í fimm ár að eign­ast Archie. Öll börnin mín eru blessun, en af því að það tók svo langan tíma að koma honum í heim­inn, er hann sér­stakur. Engin orð geta lýst þakk­læti mínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco