Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni
Hlíf Una Báru­dóttir er starf­andi teikn­ari. Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Hlíf Una Báru­dóttir er starf­andi teikn­ari. Hún útskrif­að­ist úr Mynd­lista­skóla Reykja­víkur af teikni­braut árið 2016. Hún tók á móti Mannlífi á dög­unum í fal­legu heim­ili sínu í miðbæ Reykja­víkur þar sem hún býr með eig­in­manni sínum og ungri dóttur.

Hún var komin yfir þrí­tugt þegar hún fann loks­ins rétta hillu, en óhætt er að segja að hún blóm­stri nú sem teikn­ari og eru verk­efnin sem frá henni koma þessa stund­ina ótal mörg. Hún hefur alla tíð leitað í skap­andi umhverfi, eftir stúd­ents­próf af lista­braut vann hún lengi í leik­muna­gerð hjá Íslensku óper­unni, hún hóf nám hjá Mynd­lista­skól­anum og kláraði þar diplómunám í ker­am­iki: „Ker­am­ikið var svo mik­ill útúr­dúr í mínu lífi, sem tald­ist lítið með.“

Þrátt fyrir ótal kúrsa frá barns­aldri, reynslu sína og námið sem hún hafði á bak­inu segir hún: „Það hvarfl­aði samt aldrei að mér að ég gæti unnið við þetta. Þetta var bara hobbíið mitt.“

Vegg­myndin á Gljúfra­steini. Mynd/aðsend
Hlíf Una við vinnslu á vegg­mynd á Gljúfra­steini. Mynd/aðsend

Eftir útskrift af teikni­braut lýsir Hlíf Una því hvernig hún hafi beðið eftir hinu eina, rétta svari við því hvernig hún ætti að koma sér á fram­færi. Þrátt fyrir að skila inn sýn­is­horni af verkum sínum hjá for­lögum og þá hafi það ekki skilað neinu í hennar til­viki. „Þetta var eitt­hvað algjört happa­glappa,“ útskýrir Hlíf og segir frá því hvernig til­viljun ein varð til þess að lítið hand­teiknað afmæliskort fyrir vin­konu hafi skilað sér í verki að heilli vegg­mynd á Gljúfra­steini.

Hvernig lýsir þú stílnum þínum?

„Hann er gam­al­dags, retro, nákvæmur og raun­sær,“ segir hún og bætir við að það hafi komið henni sjálfri á óvart. „Lang­flestar teikn­inga minna eru ljúfar, sak­lausar og ein­lægar.“ Hún hefði sjálf búist við því að þær yrðu meira upp á kant og kald­hæðn­ari, en það hafi ekki orðið raunin. „Um leið og ég er komin með blað og blý­ant þá brýst ein­hver voða ljúf hlið fram.“

Ekki er langt síðan að Hlíf Una færði sig frá blað­inu og blý­ant­inum og yfir á tölvu­tækt form en hún segir þá veg­ferð hafa verið nauð­syn­lega, tím­ans vegna. 

„Ég er tækni­leg risa­eðla,“ svarar Hlíf Una aðspurð hvort hún sé með heima­síðu til að halda utan um verkin hennar. Hún segir það hafa verið í mörg ár á mark­mið­a­list­anum að koma upp slíkri síðu, en ekki sé enn komið því að. Hlíf Una brosir sposk og rifjar upp skondið atvik frá fundi í tengslum við teikni­verk­efni. Fund­ur­inn hafi verið hinn form­leg­asti, hald­inn í fund­ar­sal með skjáv­arpa og öllu hinu helsta. Svo kom að því að sýna dæmi um verkin og lýsir Hlíf Una því sem þá gerð­ist. „Upp á skjáv­arpa var ég með mitt per­sónu­lega Facebook og skroll­aði í gegnum ljós­myndir af Halldóri [eig­in­manni Hlífar Unu, innsk. blm.] og Báru Mjall­hvíti [dóttur Hlífar Unu, innsk. blm.] – Mjög indælt, en ekki mjög pró,“ segir Hlíf Una.

„Ég á mjög erfitt með þetta. Mig langar í umboðs­mann­eskju sem hangir yfir öxl­ina á mér og tekur myndir af verkum í vinnslu,“ útskýrir hún og segir það pressu að fylgja eftir sam­skiptum og almennu utan­um­haldi rekstr­ar­ins.

Nærðu að fram­fleyta þér á list­inni?  

„Já, núna, en þetta kemur í svona bylgjum. – Stundum og stundum ekki.“ Hlíf seg­ist vera með nóg að verk­efnum í augna­blik­inu, en telji sig seint til ríkra. Hún segir það raun­hæft að vinna ein­göngu í teikn­ingu þar sem þau hjónin væru ekki bæði í starfi. „Ég vinn hægt, ég teikna hægt og ég er nostr­ari. Þar af leið­andi tek ég mér of mik­inn tíma í hvert verk.“  

Margir ættu að þekkja stíl Hlíf Unu, en teikn­ingar hennar skreyta oft síður Heim­ild­ar­innar. Hún seg­ist þurfa að vinna þær teikn­ingar hraðar. Hlíf verður hugsi og ögn hik­andi og bætir við: „… jafn­vel hraðar en ég get.

Ég fór að gráta yfir einni for­síðu sem unnin var á tveimur tímum,“ segir Hlíf Una hlæj­andi en bætir við að til­finn­inga­við­brögð hennar hafi ekki staðið í útskýr­ing­ar­texta undir teikn­ing­unni. Hún seg­ist hafa áttað sig á því fyrir skemmstu að hún væri ekki alltaf sjálfri sér best:

„Ég tala stundum upp­hátt við sjálfa mig, og því miður er það aldrei neitt jákvætt. Þá er ég að skamma mig, með svona tón: – Hlíf Una, nú hættir þú!“ 

Ertu með full­komn­un­ar­áráttu?

„Já, algjöra en ég er samt ekki við­kvæma týpan. Þannig að fái ég tár í augun er það alveg í frá­sögur fær­andi.“ Hlíf Una er með sterka sýn á hver end­an­leg útkoma myndar á að vera og þykir því erfitt að skila frá sér verki sem rími ekki nægi­lega vel við þá hug­mynd: „Ókei – Ég fór ekki að hágráta, en ég var ekki ánægð með þetta. Þarna er teikn­ing sem á að fara á for­síðu og ég er ekki ánægð með mynd­ina.“ Alla jafna stendur Hlíf Una samt hreykin upp frá hverju verki.

Hvað gefur listin þér? 

„Þegar ég er komin ákveðin stað í teikn­ing­unni …,“ það er eftir skipu­lagn­ingu og hug­mynda­vinnu, útskýrir Hlíf: „… að þá verður þetta næstum því eins og hug­leiðslu­á­stand.“ Hún lýsir gleð­inni við útfærslu smá­at­riða, eins og til dæmis áferð peysu eða mynstri hennar. „Sem skiptir ekki endi­lega öllu máli í mynd­inni – en gerir það samt!“ Viðbætur og smá­at­riði eru upp­á­halds­partur teikn­ing­ar­innar hjá Hlíf.

Hlíf Una Báru­dóttir

Harkið og fórnarkostnaður

Hlíf Una ræðir um kosti þess og galla að vinna sjálf­stætt og heima, en í gegnum tíð­ina hefur hún unnið hluta­störf sam­hliða list­inni til að sjá sér far­borða. 

„Ég hafði verið að reikna árs­laun mín frá árinu áður og þau voru ekki há – Bara alls ekki há. En samt hafði það ár verið þannig að ég hafði varla tíma til að hitta vini mína. Ég gerði ekk­ert nema teikna – árang­ur­inn var ein­hvern veg­inn þannig að ég lagði mikið á mig fyrir lítið,“  segir Hlíf Una sem tók að sér fyrir einu og hálfu ári hluta­starf sem aðstoð­ar­mann­eskja í eld­húsi. 

Þrátt fyrir að skil­greina sig sem „introvert“ þá fann hún fljótt hversu mikið hún hafði saknað nær­veru við sam­starfs­fólk – og seg­ist hafa vantað kaffi­stofu­spjallið í lífið. „Ég finn fyrir því núna að vera hætt þarna, þar sem þetta var góður vinnu­staður og ég var að vinna með vin­konu minni – og því mikið hlegið.“ 

Í dag starfar Hlíf Una að fullu við teikn­ingu og er að berj­ast við að mynda sér ein­hverja rútínu og var­ast að vera alltaf ein heima að teikna. Hún fer því stundum á kaffi­hús til að vera meðal fólks og vinnur þar. Hún segir það ekki endi­lega vera vina­tengsl innan vinnu­staðar sem hún sakni heldur nær­veran við annað fólk.

„Ég segi ekki nei við teikni­verk­efnum sem mér finn­ast áhuga­verð,“ segir Hlíf Una, en hún fann fljótt að álagið var orðið of mikið til að halda tveimur störfum gang­andi. „Ég er frekar til í að leggja á mig vökunætur og mæta síðan í vinnu. Þetta bara gekk ekki,“ bætir hún við og lýsir því hvernig ástandið hafi hvað mest bitnað á fjöl­skyldu­líf­inu og félags­lega part­inum.

Álagið og streitan voru orðin það mikil að litlir hlutir voru farnir að taka á. „Ég var komin með svona til­finn­ingu þegar vin­konur mínar hringdu til að hitt­ast að þá voru fyrstu við­brögð mín að ég varð pirruð,“ og hún seg­ist hafa hugsað með sér: „Vita þær ekki að það er brjálað að gera? Af hverju eru þær að setja mig í þá stöðu að þurfa að segja nei?“ Í dag hlær hún og gerir grín að við­brögðum sínum og seg­ist átta sig á hversu sjálf­hverf hugs­unin hafi verið, í stað þess að vera þakk­lát fyrir að eiga vin­konur sem þó hringdu. 

Öryggið og reglu­legar tekjur við að vera launa­maður eru ómet­an­legar. Jóla­hlað­borð, sum­ar­frí og stétt­ar­fé­lag eru hluti þess sem oft mætir rest hjá sjálf­stætt starf­andi og seg­ist Hlíf hafa verið ofboðs­lega þakk­lát fyrir að hafa rétt­indi á stuðn­ingi stétt­ar­fé­lags þegar í ljós kom að hún þurfti að fá heyrn­ar­tæki fyrir ári: „Þau eru rosa­lega dýr.“

Verkin

Fyrir jólin eru komnar út tvær bækur sem Hlíf Una er mynd­höf­undur að. Ljóða­bókin Flagsól, með ljóðum eftir Melkorku Ólafs­dóttur, og barna­bók eftir Ólöfu Sverr­is­dóttur um Sólu og stjörn­u­rnar. Að auki teikn­aði hún bók­ar­kápu og tvær myndir í bók­ina; Maðurinn með strik fyrir varir, eftir Ragnar H. Blöndal. En bókin byggir á bréfum á milli Ragnars, Hlífar Unu og Ólafs sem eru ein­stakir penna­vinir. „Svo þetta er í fyrsta skipti sem ég sem per­sóna kem fyrir í bók.“

Aðspurð hvort hún mundi ekki penn­ann sjálf við skrif, segir Hlíf Una að mynd­málið sé hennar frá­sagn­ar­leið. Hún nefnir loka­verk­efni sitt við Mynd­lista­skól­ann sem hana langar að vinna áfram. Verkið eru teikn­aðar smá­sögur með yfir­skrift­inni; „Erótík í eld­hús­inu“. Mynd­irnar end­ur­spegl­uðu hvers­dags­legt fólk inni á sínum heim­ilum og til hliðar lítil texta­box með bundnu máli. Hlíf Una segir það væri gaman að fá rit­höf­unda til að skrifa texta út frá mynd­unum.

Loka­verk­efni Hlífar Unu frá Mynd­lista­skóla Reykja­víkur. Mynd/Aðsend
Loka­verk­efni Hlífar Unu frá Mynd­lista­skóla Reykja­víkur. Mynd/Aðsend

Hvað er á döf­inni?

Á teikni­borð­inu hjá Hlíf er plötu­umslag, stórt verk­efni fyrir borg­ina: „Þar sem þessi væmna hlið mín fær að njóta sín,“ segir Hlíf Una hlæj­andi og bætir við að í því gef­ist henni kostur á dreifa hlýju og mildi út í sam­fé­lagið. Þá teiknar hún Fauna-myndir fyrir Mennta­skól­ann í Reykja­vík og eru það yfir 100 teikn­ingar. Að auki er barna­bók sem Hlíf Una seg­ist ætla að taka sér góðan tíma til að vinna: „Það er þannig bók sem ég ætla að leyfa mér að taka nokkra mán­uði í að gera,“ segir Hlíf Una að lokum. 

Fleiri sýn­is­horn af verkum Hlífar Unu má sjá hér að neðan:

Teikning eftir Hlíf Unu Mynd/Aðsend
Teikning eftir Hlíf Unu Mynd/Aðsend
Teikning eftir Hlíf Unu Mynd/Aðsend
Teikning af Megasi eftir Hlíf Unu Mynd/Aðsend
Teikning eftir Hlíf Unu Mynd/Aðsend

Viðtalið birt­ist í tíma­riti Mannlífs. Lesa má blaðið hér í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur