Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hætta við brennu og kaupa kyndla fyrir hundruð þúsunda: „Umsagnaraðilar gera ákveðnar kröfur“

Hætta við brennu og kaupa kyndla fyrir hundruð þúsunda: „Umsagnaraðilar gera ákveðnar kröfur“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Visit Reykjanes

Íbúar og gestir Suð­ur­nesja­bæjar munu ekki fá að njóta ára­móta­brennu þetta árið en ekki tókst að finna hent­uga stað­setn­ingu fyrir hana þetta árið. Frá þessu var greint í fund­ar­gerð ferða-, safna- og menn­ing­ar­ráði bæj­ar­fé­lags­ins fyrir stuttu og segir í fund­ar­gerð­inni að full­trúar Suð­ur­nesja­bæjar harmi það. Þess í stað verða keyptir kyndlar og þeim dreift til íbúa. Mannlíf hafði sam­band við Oddnýju Ásgeirs­dóttur, for­mann ferð-, safna- og menn­ing­ar­ráðs og bæj­ar­full­trúa, til að spyrj­ast betur í málið.

„Síðast þegar að ára­móta­brennur hafa verið haldnar í Sand­gerði þá hafa þær verið á tveimur stöðum, síð­ast við Sjáv­ar­götu en þar áður sunnan við knatt­spyrnu­svæði Reynis, brennur hafa ekki verið haldnar árlega í Sand­gerði heldur almennt annað hvert ár ef veð­ur­að­stæður hafa verið hag­stæðar ásamt því að brenna féll niður vegna Covid árið 2020,“ sagði Oddný þegar hún var spurð af hverju þeir staðir sem hafa verið not­aðir áður fyrir brennur henti ekki lengur.

„Í lögum nr. 40/2015 um með­ferð elds og varnir gegn gróð­ur­eldum og sam­nefndri reglu­gerð nr. 325/2016 er að finna þær kröfur sem gerðar eru til slíkra brenna ásamt því að leyfi þarf frá heil­brigð­is­eft­ir­liti og slökkvi­liði áður en sýslu­maður gefur út sitt leyf­is­bréf. Í fram­an­greindri reglu­gerð er m.a. að finna kröfur varð­andi fjar­lægð brennu frá íbúða­byggð, mann­virkjum, mat­væla­fram­leiðslu ofl. Á þeim stað sem brenna var haldin síð­ast við Sjáv­ar­götu er ekki hægt að upp­fylla þessar kröfur um fjar­lægð ásamt því að það svæði er nú geymslu­staður fyrir efni í sjó­varnir. Á hinum staðnum sunnan við knatt­spyrnu­svæðið er nú ný íbúða­byggð og það svæði upp­fyllir því ekki lengur kröfur um fjar­lægð frá íbúða­byggð og mann­virkjum.“

En hvað þarf stað­setn­ing að hafa til að henta fyrir ára­móta­brennu?

„Stað­setn­ing fyrir brennur þarf að upp­fylla þær kröfur sem til­teknar eru í reglu­gerð nr. 325/2016 um með­ferð elds og varnir gegn gróð­ur­eldum ásamt því að fá starfs­leyfi frá heil­brigð­is­eft­ir­liti og slökkvi­liði. En þessir umsagn­ar­að­ilar gera ákveðnar kröfur m.a. um aðgengi að slökkvi­efnum, und­ir­lag undir brennu­svæði og hreinsun á jarð­vegi eftir að brennu líkur.“

Þegar Oddný var spurð út í kostnað þess að kaupa alla þessa kyndla sagði hún að það væri milli 200-300 þús­und krónur og að það væri einnig áætl­aður kostn­aður fyrir brenn­una sem ekki verður haldin.

„Vil þá koma því á fram­færi og minna á að flug­elda­sýn­ing Björg­un­ar­sveit­ar­innar Sig­ur­vonar verður á sínum stað kl. 20 við smá­báta­höfn­ina og útsýni er best frá Sjáv­ar­göt­unni þar sem íbúar munu safn­ast saman með kyndla. Búast má við nokkuð hag­stæðu veðri á þessum stað á gamlárs­kvöld og íbúar hvattir til að eiga skemmti­lega sam­veru­stund,“ sagði Oddný að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil